Vikan - 28.06.1990, Blaðsíða 14
TEXTI: JÓN KR, GUNNARSSON
Þorgerður Þorgilsdóttir á afmælisdaginn.
LÍFIÐ HEFUR VERIÐ MÉR GOTT
- ÞÓ AÐ ÞAÐ HAFIEKKIALLTAF VERIÐ DANS Á RÓSUM
- SEGIR ÞORGERÐUR ÞORGILSDÓTTIR, NÍRÆTT AFMÆLISBARN, í VIKU-VIÐTALI
Fleiri og fleiri íslendingar nd
háum aldri en það er misjafnt
hversu ernir þeir eru. Fyrir
skömmu hélt nírœð kona,
Porgerður Þorgilsdóttir, upp á
afmœli sitt á Hótel Borg og það
vakti athygli hversu vel hún ber
aldurinn. Fjöldi vina og kunningja
samfagnaði þessari hressu og
keiku konu sem lék á als oddi og
hefði eins getað verið tuttugu
árum yngri.
Heilbrigt líf og heilsurækt ber oft á
góma og flestir hugleiða á hvern
hátt þeir geti best varðveitt heils-
una. Hver er lykillinn að heilbrigði
á ævikvöldi? Það er þess vert að
taka þetta glaðbeitta afmælisbarn tali. Hefur
Þorgerður alltaf verið heilsuhraust?
Já, eiginlega alltaf. Að vísu fékk ég áfall fyrir
hjarta en það er að jafna sig. Annars hef ég allt
lifið verið heldur heilsuhraust.
- Hver er lykillinn að heilbrigðu lífi og því að
fólk nær heilsuhraust háum aldri? Er það
mataræöið eða lífshættirnir að einhverju leyti?
Ætli það séu ekki að einhverju leyti erfða-
þættir og upplag hvers og eins. Ég held að það
hafi líka mikið að segja að foreldrar mínir voru
óskyldir. Ef mikil veila er í ættum er eins og
það komi meira fram en annað. En lífshættir
mínir hafa verið ósköp venjulegir og eðlilegir
og ég hef ekki lifað neinu sérstöku lífi. Maður
hefur haft góða heilsu til að geta unnið og
fundið gleði í starfinu. Ég hef verið svo heppin
að hvar sem ég hef verið, bæði heima og
heiman, hef ég kynnst góðu fólki. Það auðgar
sálarlífið mikið og það kom meðal annars vel
fram á afmælisdaginn minn 30. apríl hvað
margir minntust mín og glöddu mig á afmælis-
daginn. Þetta lífgar allt, sálarylinn, getur maður
sagt. Ég held það hjálpi mikið til með aldurinn
að hafa létta og góða lund. Það er náðargjöf.
1 4 VIKAN 13. TBL. 1990