Vikan - 28.06.1990, Qupperneq 27
Tíbetskir skæru-
liðar í lelðangri
frá dvergríkinu
Mustang sem
liggur við landa-
mæri Nepal og
Tíbets.
stærsta forðabúri heimsins fyr-
ir úraníum, lithium og boron.
Kínversk heimsvaldastefna
hefur hingað til einkennst af
kynþáttarembu gula kyn-
stofnsins í bland við dæma-
lausan skort á virðingu fyrir til-
verurétti einstaklingsins, villtra
dýra og óspilltrar náttúru.
Málflutningur Dalai Lama
XIV hefur verið öllu hófsamari
og kryddaður kyndugri kímni
sem undirokaðar þjóðir og ein-
staklingar verða að tileinka sér
til að geta lifað af í skolti rán-
dýranna. í viðtali, sem Wash-
ington Times tók við Dalai
Lama XIV í september 1984,
gerði hann grein fyrir muninum
á búddisma og kommúnisma.
„Búddisminn leggur áherslu
á mikilvægi þess að lifa lífinu
lifandi, bæði í þessu lífi og um
alla ókomna framtíð. Það er
ekki lögð áhersla á efnislægar
framfarir. Búddisminn lætur
sig varöa velferð allra lífvera
jarðarinnar.
Marxisminn lætur sig bara
varða þetta líf og efnisleg
gæði þess og þær mannverur
sem flokkast undir vinnandi
stéttir. Sérstakrar forsjónar
verða flokksfélagar aðnjótandi
og þá sérstaklega þeir sem
eru hátt settir."
Það kemur skýrt fram í
sjálfsævisögu Dalai Lama
XIV, Land mitt og þjóð, að
hann ber ekkert síöur hag al-
þýðunnar fyrir brjósti en boð-
berar kommúnismans enda
gerði hann misheppnaða til-
raun til að nota sér þróunar-
hjálp Kínverja til að jafna lífs-
kjör í landinu. Vegir voru
byggðir af Tíbetum fyrir kín-
Tíbetski munkurinn Gyalpo var
skotinn eins og hundur af
sérsveitum kínversku lögregl-
unnar í Lhasa 10. desember
1988 fyrir að hafa tekið þátt í
friðsamlegum mótmælum.
verska hertrukka og ríka túr-
ista, raforkuver voru líka reist í
þegnskylduvinnu til að lýsa
upp og hita híbýli þeirra átta
milljóna Kínverja sem fluttir
hafa verið nauðugir viljugir til
Tíbets á síðustu þrjátíu árum.
Þær sex milljónir Tíbeta sem
lifðu af hressilegar hreinsanir
menningarbyltingarinnar búa
enn við sult og seyru, borða
byggsúpuskammtinn sinn og
lýsa upp fátækleg híbýli sín
meö smjörlömpum. Ef þeir
ganga í flokkinn fá þeir að
læra kínversku, stærðfræði og
marxíska mannkynssögu.
Tíbetar eru [ viðjum þeirrar
gæsku sem gerir ekki ráð fyrir
að slegið sé frá sér, þegar
sniðug snikjudýr sjúga blóðið
úr þeim, í eiginlegri og óeigin-
legri merkingu. I því sambandi
má benda á að fyrir glæpi
gegn byltingunni í Kína er
refsað meö fangelsisvist í
kulda og vosbúð, barsmíðum,
nauðgunum og blóðtökum. Nýj-
asta nýtt i pyntingarbransan-
um í Kína er að afklæða nunn- j
ur og siga morðóðum blóð-1
hundum á þær.
Það grátlega við þessa ó- |
manneskjulegu harðneskju er §
að langflestir sem hafa verið
fangelsaðir af Kínverjum í Tí-
bet fyrir þátttöku í einhverjum
þeirra mótmæla sem hafa átt
sér stað síðustu 40 árin (mót-
mæli hafa átt sér stað fimmtíu
og fimm sinnum á síðustu
tveim árum), hafa ekkert til
saka unnið. Það var ekki að
ástæðulausu að Alexander
Solzhenitsyn lýsti því yfir 1982
að kverkartak Kínverja á Tíbet
væri grimmdarlegur skepnu-
skapur sem slægi öllu við sem
tíðkaðist í öðrum alræðisríkj-
um kommúnismans.
Þann 11. október 1989 barst
sú fregn til Tíbets að réttmæt-
ur leiðtogi þeirra og holdtekja
þeirra mannkosta sem í há-
vegum eru hafðir meðal Tí-
beta, miskunnsemi og gæsku,
hefði verið sæmdur friðarverð-
launum Nóbels. Búddistum
finnst jafnmikilvægt aö sam-
gleðjast fólki þegar vel gengur
og að votta samúð þegar sorg
tærir upp hjarta náungans.
Mikinn mannfjölda dreif að
Jhokhang musterinu í höfuö-
borg Tíbets, Lhasa, þennan
dag og sungu Tíbetarnir af
hjartans lyst eins og þeim ein-
um er lagið. Þrjár tíbetskar
konur, Kelsang, Dolma og
Tsekyi, voru handteknar þenn-
an dag. Tvær þeirra voru
dæmdar til þriggja ára fangels-
Friösöm mótmæli í Lhasa,
höfuðborg Tibets, þann
1. október 1987 enduðu með
ósköpum. Eldur var lagður að
lögreglustöð þar sem tíbetskir
mótmælendur voru hafðir í
haldi. Munkarnir á myndinni
gerðu heiðarlega tilraun til að
bjarga föngunum.
isvistar fyrir dulbúna undirróð-
ursstarfsemi sem fólst í að
syngja lítið lag sem innihélt
eftirfarandi meiningar.
„Lhasa var ekki seld,
Indland var ekki keypt.
Það er ekki það að heilagleikinn
Tenzin Gyatso eigi hvergi
höfði sínu að að halla. “
Þessar söngglöðu konur fá
að dúsa í Gutsa fangelsinu
næstu þrjú árin.
▲ Myndin hér að ofan sýnir mörg hundruð ára uppbyggingu
verða að engu þegar fornar dyggðir fengu að víkja fyrir
skemmdarfýsn innblásinni af blindri heift kínverskra
kommúnista.
að þeir hefðu aflétt herlögum í
Tíbet og túristum yrði leyft að
borga 200 beinharða Banda-
ríkjadali fyrir hvern dag sem
þeim leyfðist náðarsamlegast
að dvelja í landinu. Þessi á-
kvörðun sýnir svo ekki verður
um villst að Kínverjar kæra sig
ekki um að missa spón úr aski
sínum vegna vanhugsaðrar
harðneskju við fólk í Tíbet,
sem á annað og betra skilið en
að vera útrýmt án þess að
nokkur hafi nokkuð við það að
athuga. Hótanir kínverskra
stjórnvalda um að slíta stjórn-
mála- og viðskiptasambandi
við Noreg og Tékkóslóvakíu,
þegar æðstu leiðtogar þess-
ara þjóðlanda riðu á vaöið
með að veita heilagleikanum
sjálfum, Dalai Lama XIV, opin-
bera móttöku 1989, hafa
reynst marklaus orð. Næsta
skref og það stærsta til að
tryggja Tíbetum tilverurétt í
heiminum er að þeir eignist
fulltrúa hjá Sameinuðu þjóð-
unum, jafnvel þó það gæti
stórlega raskað valdajafnvæg-
inu í heiminum. Bandaríkja-
menn voru auðmýktir í Víet-
nam, Rússar í Afganistan og
nú er komið að því að þriðja
stórveldið i heiminum verði
kjöldregið.
13. TBL. 1990 VIKAN 27