Vikan - 28.06.1990, Qupperneq 32
nm
BORGIN ER STAÐUR
MENNTAFÓLKS
- SEGIR SKÚLI MOGENSEN SEM STJÓRNAR SKEMMTISTAÐNUM HÓTEL BORG
auutni
Skúli Mogensen og Bjarni Þórhallsson, tveir af þremur
aðstandendum skemmtistaðarins Hótel Borg. Á myndina vantar
Birgi Bieltvedt. Það lofar góðu það sem þeir strákarnir eru að gera
á Borginni. Dýragarðsstemmning, lifandi tónlist, framandi matur og
drykkur, djass og blús væntanlegt og margt nýtt og ferskt sem
kemur frá þeim félögum. „Við forðumst allt sem verið hefur,“ segir
Skuli.
o
o
ö
□
Miðað við höfðatölu eigum við íslendingar
eflaust heimsmetið í skemmtunum. Það er
ótrúlegur fjöldi fólks sem stundar skemmtanalífið
hér ö íslandi og í Reykjavík er mest úrval af
skemmtistöðum. Hver kannast ekki við eitthvað ö
þessa leið? Við fórum út að borða ö œðislegum
nýjum kínverskum veitingastað, sötum þar til
svona ellefu, litum svo inn ö Gaukinn í smötíma
og fórum svo á ball. Það var œðislegt ö ballinu
og var maður ekkerf ö því að hœtta þegar
ballið var búið enda vorum við í partíi til
klukkan sex.
Ungir íslendingar eru
sérstaklega duglegir aö
skemmta sér, einkum
fólk á aldrinum átján til tuttugu
og fimm ára. En hvert fer fólk?
Nýlega tóku þrír ungir drengir
við rekstri skemmtistaðarins
Hótel Borgar. Eins og flestir
vita er það Reykjavíkurborg
sem á staðinn en Ólafur
Laufdal leigir hann. Það má
því segja að drengirnir séu
nokkurs konar undirverktakar.
Þeir sem að skemmtistaðnum
standa heita Skúli Mogensen,
Birgir Bieltvedt og Bjarni Þór-
hallsson. Ég hitti Skúla einn
laugardaginn nú fyrir stuttu á
Borginni og ákvað að kanna
þetta mál betur.
Skúli er fæddur 1968 og
verður 22 ára á þessu ári.
Hann er stúdent frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð en
stundar núna nám við Háskóla
íslands og lærir þar heimspeki
og stjórnmálafræði. Reyndar
eiga viðskipti margs konar hug
hans allan og segir hann að
þegar líða tekur á fari hann út
og læri alþjóðasamskipti og
stjórnmálafræði. Hann segir
að heimspekin sé góð undir-
staða fyrir viðskipti og alþjóð-
leg samskipti.
„Ég byrjaði í skemmtana-
bransanum á síðasta ári þeg-
ar ég og tveir félagar mínir tók-
um við skemmtanastjórn í
Tunglinu," segir Skúli. „Þetta
gekk mjög vel fram að áramót-
um en eftir þau fór ég á fullt í
Háskólann og gat ekki sinnt
staðnum eins vel. Það er allt
annað uppi á teningnum núna
vegna þess að við vinnum ekki
hjá neinum öðrum en sjálfum
okkur. Þegar við vorum með
Tunglið vorum við í vinnu hjá
eigendunum en við rekum
Borgina núna. Það er því undir
okkur komið hvort illa fer eða
vel,“ segir Skúli.
Þeir eru með samning út
sumarið og koma til með að
sjá um reksturinn á skemmti-
staðnum Hótel Borg út ágúst.
- Hvernig verður skemmti-
staður vinsæll?
„Það skiptir öllu máli að
hafa rétta fólkið í húsinu," seg-
ir Skúli. „Ástæðan fyrir því að
við ákváðum að taka við Borg-
inni var sú að við vildum byrja
frá grunni. Ég held að fólk sé
orðið frekar þreytt á Tunglinu
(eða Laguna eins og það heitir
núna) og Casablanca. Borgin
er fyrst og fremst staður
menntafólks, hefur alltaf verið
vinsæl meðal háskólafólks og
einnig eru menntskælingar
tíðir gestir þar. Við þekkjum
bransann mjög vel.“
Töluvert miklu hefur verið
breytt á Borginni síðan Skúli
og félagar tóku við. Þeir hafa
náð að skapa sannkallaða
dýragarðsstemmningu í
gamla skuggasalnum. Þar er
boðið upp á lifandi tónlist og
framandi mat eða drykk. „Loð-
in rotta hefur séð um tónlistina
undanfarið en við komum til
með að bjóða líka upp á djass
Framhald á bls. 44
32 VIKAN 13. TBL. 1990
TEXTI. BJARNI HAUKUR ÞORSSON