Vikan - 28.06.1990, Page 34
TEXTI: FRÍÐA BJÖRNSDÓTTIR
A
/ \ góðviörisdögum má
finna grillilm í loftinu og reyndar ekki aðeins
á góðviðrisdögum. Það gerist nú æ
algengara að fólk grilli jafnt virka daga sem
helga og jafnt í góðu veðri sem slæmu.
Ástæðan er meðal annars sú að mikið úrval er
á markaðinum af alls konar útigrillum sem mörg
hver eru með hjálmum sem gera fólki kleift að
grilla hvort heldur sem er í sól, rigningu eða
snjókomu.
Tilkoma útigrillsins hefur líka breytt nokkuð
veisluhaldi manna bæði hérlendis og erlendis.
Erlendis þótti lengi vel mjög við hæfi að taka
með sér vínflösku ef fólki var boðið í kvöldmat
en nú er þetta að breytast og í stað flöskunnar
eða ef til vill auk hennar kemur fólk nú með
pylsupakka eða kjötflís. Trúlega eru íslendingar
einnig búnir að tileinka sér þennan sið og eru
farnir að grípa kjötbita um leið og þeir bregða
sér af bæ í þeim tilgangi að heimsækja
kunningjana, ekki síst ef þeir eru í sumar-
bústaðnum en þar er nokkuð víst að boðið
verður upp á grill ef kvöldmáltíð er á næsta leiti.
Konur hafa yfirleitt verið ofurseldar elda-
mennskunni hingað til en mér er sagt að með
tilkomu grillsins hafi þetta breyst mikið. Það er
álitið allt eins ef ekki miklu frekar verk
húsbóndans að huga að grillinu á meðan konan
kemur borðbúnaði fyrir á matborðinu. Ekki veit
ég hvort þetta tengist á einhvern hátt
jafnréttisbaráttu síðustu ára eða hvort körlum
finnst bara meira til koma að velta kjöti á grilli en
hræra í súpupotti eða færa fisk af pönnu á disk.
Það má grilla nokkurn veginn hvað sem er,
kjöt, fisk, grænmeti og ávexti og hér á eftir
birtum við ykkur nokkrar gómsætar uppskriftir
sem þið getið reynt. Ef ykkur líkar ekki alls
meðferð krydds eða annars sem ætlað er
þá er frjálst að láta hugmyndaflugið ráða
það sem til er í skápnum, ekki síst ef
ekki heima í eldhúsi þar sem úr meiru
heldur en til dæmis í eldhússkápnum
í sumarbústaðnum.