Vikan - 28.06.1990, Page 36
»11!
I
GRILLUÐ RIF
Bandaríkjamenn gera mikið
að því að grilla það sem þeir
kalla „sþareribs" en munu
heita svínaskammrif á
íslensku. Nokkuð er farið að
bera á því í verslunum hér að
hægt sé að kaupa rif og það
má allt eins grilla íslensk
lambarif eins og svínarifin.
íslensku lambarifin bragðast
býsna vel. Það mun þurfa um
eitt kg af rifbeinum fyrir fjóra
og til þess að gera réttinn enn
bragðbetri kemur hér
uppskrift að grillsósu sem
hæfir vel:
GRILLSÓSA
11/4 dl tómatsósa, 2 msk. edik,
2 msk. worcestershiresósa,
1 tsk. salt, 1/2 tsk. svartur
pipar, nýmalaður, 2 tsk.
chiliduft, 1 lítill fínt saxaður
laukur, 2 dl vatn.
Grillsósuefnunum er
blandað vel saman á meöan
verið er að grilla rifbeinin.
Þegar þau eru nokkurn veginn
tilbúin er þeim raðað á
álpappír, sósunni hellt yfir,
pappírnum pakkað vandlega
utan um allt saman og
pakkinn settur á grillið. Þar
þarf hann að liggja í um
hálftíma. Nauðsynlegt er að
snúa honum nokkrum sinnum
við á meðan. Rétt áður en
bera á kjötið fram er það tekið
úr pappírnum og rifbeinunum
brugðið á grillið til þess að
þau fái stökka og góða húð.
Ekki er auðvelt að segja
nákvæmlega til um hversu
lengi rifin þurfa að vera á
grillinu, það fer eftir því
hversu mikið kjöt er utan á
þeim.
Mjög gott er að bera rifin
fram með maísstönglum og
heitu hvítlauksbrauði.
Það ætti að
nægja að láta
pakkana liggja
í 10-15 mínút-
ur á grillinu og
gott er að snúa
þeim. Til þess að
það sé hægt
verður að ganga
mjög vel frá þeim. Annars
lekur safinn út um allt.
GRÆNMETIGRILLAÐ í ÁLPAPPÍR
Grænmeti er bráðnauðsynlegt
með grilluðu kjöti og hér
kemur smáhugmynd að
grænmetisrétti sem hægt er
að grilla um leið og kjötið.
í uppskriftina fer 1 Vz bolli af
spergilkáli (brokollí), 11/2 bolli
blómkál, 1/4 bolli niðurskorin,
rauð paprika, 1/4 bolli
niöurskorin gul paprika, 1 tsk.
marinn hvitlaukur, 2 msk.
bráðið smjör, salt og pipar að
smekk, 4 msk. rjómaostur
með uppáhaldsbragðinu
Klippið niður fjóra 25x30
cm álpappírsbúta. Skiptið
grænmetinu í fjóra jafna
hluta og leggið á
álpappírinn. Blandið
hvítlauknum saman við
smjörið og penslið
grænmetið með því.
Stráið salti og pipar yfir.
Brjótið álpappírinn
saman og lokið
vandlega svo safinn,
sem á eftir að myndast, geti
ekki runnið út úr pakkanum.
Rjómaosturinn er nú hrærður
út með mjólkinni og hitaður í
potti á plötu. Gætið þess þó
að hann verði ekki of heitur.
Ostasósunni er loks hellt yfir
grænmetið þegar það er
tilbúið.
36 VIKAN 13. TBL.1990