Vikan - 28.06.1990, Síða 48
ur af allan vafa um aö þessi
dama getur enn haldið sínu
striki í poppheiminum í sam-
keppni viö sína líka. Það eru
stjörnur eins og Martika,
Debbie Gibson og Paula
Abdul.
Eins og allir vita er Tina
Turner kona meö fortíð.
Dekkri hliðarnar á tilveru
hennar hafa þegar verið útlist-
aðar opinberlega, jafnvel í
skelfilegum smáatriðum í
ævisögubók hennar frá 1986,
Ég Tina. Hún var skrifuð í
samvinnu við fréttahauk MTV
News, Kurt Loder. Samt er
Tina enginn fangi fortíðarinn-
ar. Þráfaldlega hefur hún sýnt
fram á ótrúlega hæfileika til að
endurskapa sjálfa sig og troð-
fylla áhorfendapalla af aðdá-
endum. Hið dirfskufulla sjálf-
stæði hennar, stolt og trú -
- ásamt þeirri staðreynd að
hún lítur ennþá vel út í stutt-
pilsi - veitir Tinu þann per-
sónulega stíl sem óteljandi
mörgum finnst aðlaðandi.
Margir aðdáendur hennar
gætu verið barnabörn hennar.
Sjálf á hún tvö, fjóra syni og
sjö Grammy-verðlaun.
Ef eitthvað, þá hefur hálfrar
aldar markið sett Tinu í ein-
hvers konar yfirdrif. Síðan hún
gaf út síðustu plötu sína fyrir
þremur árum, Break Every
Rule, virtist hún ætla sér þaö
besta með þeirri ógnun. Fyrir
þremur árum hóf hún svipti-
vindasamt ástarsamband við
þýskan framkvæmdastjóra.
Sá er sautján árum yngri en
hún. Hún hefur selt allar eigur
sínar í Bandaríkjunum og flutt
allt sitt hafurtask til Evrópu.
Síðustu tvö árin hefur hún
búið í London en ráðgerir nú
að flytja til Kölnar í Vestur-
Þýskalandi. Sprechen Sie
Deutsch? Nein. Tina setur
ekki tungumálaerfiðleika fyrir
sig. Persónuleiki er tungumál
án landamæra.
Eftirfarandi viðtal átti banda-
rískur fréttamaður við hana í
hótelíbúð á Sunset Marquis
hótelinu í Hollywood. Meðan
þau ræddust við leit hún eftir
Desmond, ungum syni kunn-
ingja sinna. Þegar hún talar
virkar hún settleg á breska
vísu en áhugamálin sveiflast
frá austurlenskri speki yfir í
kjaftasögur frá Hollywood.
Á snyrtiborðinu er troðfullur
plastpoki, í það minnsta
hundrað og fimmtíu varalitir og
f stofunni er ferðaheilsurækt.
Það er engin tilviljun að Tina
Turner skuli líta svona vel út
þótt hún sé að verða fimmtug.
Hún hefur greinilega uppgötv-
að að það er einungis á færi
hennar sjálfrar að koma því til
leiðar.
Hvað finnst þér um opin-
bera ímynd Tinu Turner?
Hún er stórkostleg. Auðvit-
að er ég mjög ánægð með
frægðina en stundum finnst
mér að í þessu lífi sé ég hing-
að komin til að takast á við
hluti sem mér er ekki vel við að
gera. Þetta eru óuppgerð örlög
úr fyrri lífum. Mér líkar ekki að
vera kyntákn. Stundum hef ég
skammast mín fyrir þessa
ímynd, fyrir það hvernig fólk
kemur fram við mig. Fólki
finnst ég vera almennings-
eign, því finnst það eiga mig
og vill hafa mig út af fyrir sig.
Það sem hefur bjargað mér er
að ég er ekki hóra, ég sef ekki
hjá hverjum sem er. Ég hef
stundum gefiö til kynna aö ég
sé hirðulaus rokkvillingur en
ég hef alltaf reynt að nota þá
orku á jákvæðan hátt. Ég vildi
þó að þetta hefði verið betra á
einhvern hátt. Kannski finnst
mér þetta núna þegar ég er
orðin fullorðin, þroskuð kona
og reynslunni ríkari. Ungar
stúlkur vilja aftur á móti þessa
brjálæðislegu ímynd. En ég er
ánægð með útkomuna. Ég
held að ég verði ánægðari
með seinni helming ævinnar.
Hver er skýringin áþvíað
þú berð aldurinn svona vel
þrátt fyrir allt það sem þú
hefur gengið í gegnum?
í fyrsta lagi breytti ég lyfja-
notkun minni fyrir tíu árum.
Núna tek ég ekki einu sinni
verkjatöflur. Ef ég verð veik
viðurkenni ég það og læt lík-
amann lækna sig sjálfan. Ég
hef grasalækni á Englandi
sem ég leita til ef ég þarf á ráð-
leggingum að halda. Annað
mikilvægt í lífi mínu er andleg
iðkun. Ég er virkur búddisti og
það hjálpar mér að lifa lífinu í
sátt og samlyndi við náttúruna.
Búddatrú kemur mér í takt við
alheiminn. Þaö er ekkert
undarlegt við það. Þetta er
bara heilbrigt líferni.
Hvernig er líf þitt þegar
þú ert ekki í fjölmenni?
Ég lifi mjög kyrrlátu lífi, ekk-
ert sjónvarp, engin glymjandi
tónlist. Ég lifi eins og munkur,
munkur með rauðar varir, í
stuttum kjól og með mikið hár.
Mín vegna má heimurinn sturl-
ast af því að ég veit að þegar
ég dey með mína trú er mér
borgið.
Með Mick Jagger á Live Aid
tónleikunum. Jagger fékk Tinu
á sínum tíma til að gerast
villtari i útliti.
Hvernig er ástariíf þitt?
Ég er ástfangin af manni
sem heitir Erwin Bach. Hann
vinnur við tónlistarbransann.
Hann er aðeins 33ja ára en
hann er þroskaðri en aldur
hans segir til um. Hann er
sjálfstæður, fjárhagslega og
veraldlega, svo hann þarf ekki
á peningunum mínum að
halda. Ég held að þetta sé
ákjósanlegasta sambandið
sem ég gæti haft í lífi mínu
núna. _____
Hvernig hittust þið?
Þegar ég hitti Erwin fyrst
varð ég fyrir einkennilegum
áhrifum. Eitthvað sagði mér að
þessum manni ætti ég eftir að
kynnast. En sambandið þró-
aðist mjög hægt. Ég hitti hann
nokkrum sinnum í gleðskap
hjá plötufyrirtæki og loksins
eitt kvöldið daðraði ég við
hann. Hann varð auðvitað
mjög hissa. Ég var mjög
ákveðin. Það eru mörg ár síð-
an ég gerði mér grein fyrir að
ég geng á eftir því sem ég ætla
mér að eignast. Ég var ekkert
dónaleg, ég var bara að segja
manninum að mér líkaði vel
við hann. Og vonaðist til að
honum líkaði við mig. Ég
hugsaöi ekkert út í að mér yrði
hafnað. En hann var ekki auð-
veld bráð og það voru margar
hindranir í veginum. í fyrsta
lagi var ég eldri, ég bjó í öðru
„Nú verð ég að finna mér stað á hvíta tjaldinu," segir Tina Turner
sem hér sést í kvikmyndinni Mad Max sem sýnd var hér árið 1985.
48 VIKAN 13. TBL. 1990