Vikan - 28.06.1990, Qupperneq 60
Það eru hinir ófrýnilegustu fantar og fúlmenni sem þau Warren Beatty og Madonna hafa hér látið
mynda sig með. Við kynnumst þeim betur í myndinni um Dick Tracy.
hef hitt sem ekki er leikkona
eða módel.“
Warren segir margt og alltaf
á riddaralegan hátt; hann gef-
ur konum bækur og býðst til
að halda á vélunum fyrir þær
sem eru á kvikmyndaskólum.
Madonna er með númerið
heima hjá honum. í fyrra sagði
hann við kunningja sinn:
„Stundum lít ég í spegilinn og
segi við sjálfan mig: Ég er með
Madonnu!" í ástinni er hann
sem endurborinn, orðinn að
opinberri persónu. Því það
sést aldrei til Warrens nema
þegar hann er ákaflega ást-
fanginn (þegar hann er á veið-
um heyrir fólk aöeins af
honum). Frá því á sjöunda
áratugnum sást hann best (en
aldrei of greinilega) með Joan
Collins, Natalie Wood, Leslie
Caron, Michelle Philips, Julie
Christie, Diane Keaton og Isa-
belle Adjani. Madonna er
frægari en nokkur þeirra; hún
er frægari en hann; hún er
frægari en allir. Með því að
elska hann gerir hún hann enn
frægari en hann var. Ást þeirra
er eins konar blóðsuguást.
Hún þarf á trúverðugleika
hans að halda; hann á æsku
hennar. Hann er 53 ára og hún
er 31 árs. Þau eru goðsagnir
og hæfa hvort öðru; goðsögn-
in um hana er háværari, goð-
sögnin um hann er lengri.
Warren Beatty er nýbúinn
að leikstýra myndinni um
teiknimyndafígúruna Dick
Tracy með sjálfum sér í titil-
hlutverki og Madonnu sem
vinkonu leynilögreglumanns-
ins, Breathless Mahoney. Síð-
asta mynd sem hann leikstýrði
var Reds fyrir níu árum og síð-
an hefur hann aðeins komið I
fram í einni lélegustu mynd
kvikmyndasögunnar, Ishtar
með Dustin Hoffmann. Dick
Tracy á að verða upprisa
hans. Dustin Hoffmann og Al
Pacino leika í henni erkiþrjóta
en sem Tracy klæðist Beatty
gulum fötum og berst gegn
óþjóðalýðnum. Þessi 26 millj-
ón dollara mynd er aðeins í sjö
litum og hún er gjörólík hinum
Warren Beatty myndunum
sem ýmist eru um hégómlega
bófa (Bonnie og Clyde), kyn-
óða hárgreiðslumenn (Sham-
poo), endurholdgaða fótbolta-
menn (Heaven Can Wait) eða
dauða kommúnista (Reds).
Ekki að ósamræmið í Dick
Tracy skipti miklu máli; flestir
af þeirri ungu kynslóð sem fer
í bíó þessa dagana hafa ekki
hugmynd um hver Warren Be-
atty er.
Warren Beatty er haldinn
ofsóknarbrjálæði. Hann er lok-
að Hollywoodgoð sem lokar
sig af og ímyndar sér að hann
sé ósýnilegur. Vegna þess að
hann óttast að vera misskilinn
segir hann ekkert og er mis-
skilinn enn meir. Þannig vill
hann hafa það. Þögn hans er
samt sýndarmennska því
hann hringir í blaðamenn og
segir þeim í löngu máli að
hann neiti að eiga samstarf við
fjölmiðla. í tólf ár hefur hann
ekki sagt neitt. Kannski nokkur
orð fyrir vin sinn - forsetafram-
bjóðandann seinheppna Gary
Hart. Þaö var Warren sem ýtti
honum aftur inn í kosninga-
baráttuna eftir hneykslið með
Donnu Rice. Að öðru leyti hef-
ur Warren verið svo þögull að
hann hefur nánast gufað upp.
Kenningin um Reds er sú að
hún hafi gengið illa vegna
þess að Warren neitaði að
koma í viðtöl. Ef Dick Tracy
farnast illa gæti frama War-
rens farnast jafnilla. Því eru
takmörk sett hve langt er hægt
að komast á tilgerðinni.
Svo nú er hann farinn að
tala. Þá blaðamenn sem ná af
honum tali langar til að kála
honum en finna líka til vænt-
umþykju í hans garð. Allt sem
ekki er úr steinaríkinu fellur
fyrir töfrum hans. Hann er
bæði góður og óþekkur í senn
og virðist allt vilja gera til að
bæta fyrir það. Þegar hann er
beðinn um að segja sannleik-
ann um samband sitt og Ma-
donnu svarar hann aðeins:
„Sannleikurinn felst í listinni."
Beatty hefur aldrei farið í
meiðyrðamál þó mesta áhersl-
an í greinum um hann hafi
ávallt verið lögð á frammistöðu
hans sem kyntrölls. í bresku
bókinni Hver hefur verið með
60 VIKAN 13. TBL. 1990