Vikan - 28.06.1990, Page 64
sagði Annie biðjandi. - Hann og Lady Gwen
voru í garðinum.
- Auðvitað man ég það en ég skildi það
ekki.
- En það var svo einfalt. Hún fyrirgaf hon-
um brosandi.
- Hann og Lady Gwen tóku eftir því á sól-
skífunni í garðinum að klukkan var nákvæm-
lega hálffjögur. Hún sagði það meira að segja
upphátt, var það ekki? Svo reiknuðu þau út að
þetta var aðeins sólartíminn, tveim mínútum á
eftir raunverulega tímanum, svo réffklukkavar
tvær mínútur yfir hálffjögur. En svo komst
Hercule að því að sólskífan var yfir þrjú hundr-
uð ára gömul og á þeim tíma hafði snúningur
jarðarinnar breyst eitthvaö ...
- Það er atriði sem ég get ekki skilið.
- Ég skil það nú ekki heldur nákvæmlega.
En einhvern veginn breytti snúningur jarðar-
innar afstöðu við sólina svo sólskífan var rétt.
Skiljið þér það ekki? Klukkan var í raun og
veru hálffjögur, svo Lacy gat alls ekki hafa gert
það.
- Ég hélt, sagði Charley kurteislega, að það
hefði getaö verið Lady Jane.
- Nei. Annie teygði út höndina til að laga
bindið á Charley. - Það gat heldur ekki hafa
verið hún. Manstu ekki að hún var inni í setu-
stofunni að tala við Blake, máginn? Og hann
tók eftir því hvernig sólin glitraði í hári hennar
og framkallaði þessa fíngerðu gullroðnu tóna.
Manstu það ekki?
- Jú, þaö var víst, sagði Charley.
- Jæja, sagði Annie ánægð. - Skilurðu það
þá ekki? Það var skýjað allan daginn.
- Skýjað?
- Ó, Charley! Hún hallaði sér áköf áfram og
taldi atriðin á fingrum sér. Það var engin sól all-
an daginn, nema einusinni og þá aðeins í eina
sekúndu eða svo. Svo ef Blake sá sólina í hári
Lady Jane hlýtur klukkan að hafa veriö hálf-
fjögur því það var í eina skiptið, sem Lacy og
Lady Gwen hefðu getað séö hvaö klukkan var
á sólskífunni í garðinum. Annie tók sér mál-
hvíld til að draga andann. - Undirforingi, sagði
hún svo - Þér skiljið þetta, er það ekki?
- Ætli það ekki, sagði undirforinginn með
hálfkæfðri röddu. - Nema - ja, þaö gæti svo-
sem hafa glitt í sólina einhvern annan tíma
líka, án þess að nokkur tæki eftir því.
Annie lét fallast aftur að sófabakinu. - Auð-
vitað ekki, sagði hún vonleysislega.
- En hvers vegna? spurði undirforinginn.
Undirforinginn gaut augunum á Charley. -
Hvers vegna? spurði hann þráalega. - Hvers
vegna? Segið mér bara hvers vegna, það er
allt og sumt!
- Undirforingi, sagði Annie með hættulegri
ró. - Verið ekki fáránlegur. Sólin gafekki skinið
í annan tíma - það væri bara ekki réttlátt.
Það var löng þögn meðan undirforinginn
strauk rakann hægt utan af glasinu sínu með
þumalfingrinum. Að lokum leit Charley upp. -
Kannski, sagöi hann glaðlega. - Kannski þeir
myrði öðruvísi í Englandi.
- Já, sagði undirforinginn, þeir hafa svo
strangar reglur. Hann leit á Annie. - Sjáið þér
nú til, unga kona. í tuttugu ára starfi mínu í lög-
reglunni hef ég aldrei rekist á eina einustu sól-
skífu í neinu máli sem ég hef unnið að eða
heyrt um. Og jörðin heldur áfram að snúast á
sama hátt, hvort heldur er nú eða fyrir þrjú
hundruð árum. Ég skal segja yður hvernig
morð í raun og veru gerast: Einn fær högg í
hausinn, annar er stunginn með hníf eöa skot-
inn með byssu. Endrum og eins eru menn
drepnir á eitri. Sá sem morðið framdi reynir að
koma sér undan og við förum og leitum að
honum, þangað til við finnum hann. Það er allt
og sumt i níu tilfellum af hverjum tíu. Sönn-
unargögn og ábendingar. Já. Það er stundum
erfitt að finna það. Auðvitað. En ég hef aldrei
rekist á eins fáránlegt sönnunargagn og sól-
skífu eða fjarvistarsönnun sem byggist á sek-
úndubroti í minni þeirra sem í hlut eiga. Trúið
mér til. Morð eru næstum aldrei framin á sama
hátt og í leynilögreglusögunum og fram úr
morðgátunum er aldrei ráöið á sama hátt og
þér hafið lesið yður til. Undirforinginn þagnaði
og saup á tómu glasinu.
- Glasið yðar, sagði Annie blíðlega, er
tómt. Hún stóö upp, losaði þaö varlega úr
máttvana höndum undirforingjans og gekk
fram í eldhúsið.
- Colhaus, sagði undirforinginn. - Ef...
- Nei, sagði Charley. - Annie. En ég held
aö þú hafir haft töluverð áhrif á hana.
- Ég vildi hafa meiri áhrif. Ég myndi vilja
sýna henni nú, undir eins og persónulega,
hvernig morð er framið.
Annie kom aftur með glas undirforingjans og
hringaði sig upp í sófann. - Mér skilst sem
- Undirforingi, sagði Annie
með hœtfulegri ró. - Verið
ekki fórónlegur. Sólin gat
ekki skinið í annan tíma -
það vœri bara ekki rétttótt.
sagt á yður, undirforingi, að hverju því sönn-
unargagni, sem fer minna fyrir en alblóðugu
morðvopninu með fullkomnu setti af fingraför-
um, sé varla gaumur gefandi vegna þess
að...
Undirforinginn greip fram í um leið og hann
gretti sig og skoðaöi í glasið sitt. - Það er
skrýtið bragð af þessum drykk, sagði hann.
- Er það? Súpið á aftur, sagöi Annie.
Undirforinginn saup á aftur. - Það er ennþá
skrýtið bragð.
- Ég veit það, sagöi Annie elskulega. - Ég
setti salt í það.
Undirforinginn setti glasið varlega frá sér.
- Salt? spurði hann með ógnþrunginni ró-
semi. - Hvers vegna?
- Til að sýna yöur að ef þetta væri ekki salt,
sagði Annie, heldur tse tsam væruð þér nú
dauður. Þér hefðuð dáið á tveimur sekúndum.
- Sjáið...
- Ég skal ná í nýtt í glasið yðar, flýtti Annie
sér að segja.
- Ég vil ekki meir! Hvað á þetta að þýða?
Annie leit í vörn af undirforingjanum á Char-
ley og svo aftur á undirforingjann. - Þið eruð
báðir svo sniðugir að ég ætlaði að sýna ykkur
svolítið. En þið eruð ekki sniðugri en svo að
þið gætuð báðir legið hér á gólfinu núna, dauð-
ir. Þegar tse tsum, sem er sjaldgæft frum-
skógaeitur, er notað sýnir krufningin ekkert
annað en hjartabilun svo að það er ekki hægt
að sanna neitt. Og þar að auki myndi enginn
gruna mig vegna þess, eins og þér voruð að
útskýra rétt í þessu, að morð eru aldrei framin
á þennan hátt.
- Já, sagði undirforinginn rólega. - Og hvar
fáið þér þetta sessum? ( næsta apóteki?
- Það fæsti ekki, sagði Annie kæruleysis-
lega.
Undirforinginn dró djúpt andann. Hann hélt
áfram að anda að sér með þöndum nasa-
vængjum eins og hann ætlaði að breyta sjálf-
um sér í blöðru. Hörundslitur hans breyttist úr
rósbleiku í mjög fallega appelsínugult, lit eyði-
merkursólarlagsins. Svo hringdi síminn.
Annie flýtti sér fram á ganginn til að svara.
- Annie ætlar að vinna, sagði Charley. - Á
stigum.
- Það er til yðar, undirforingi, kallaði Annie
blíðlega og undirforinginn andaði frá sér, reis
upp og tók símann meðan Annie hreiðraöi aft-
ur um sig í sófanum.
Já, heyrðu þau hann segja, síðan þögn. -
Strax, sendið bíl. Hafið þér heimilisfangið?
Rétt, sagði hann, lagði á og kom aftur inn í
stofuna. - Morð, sagði hann mjúklega. -
Raunverulegt morð. Þér hafið aldrei séð morð,
er þaö? Ekki framið með sessum heldur framið
með því aö skjóta næstum höfuðið af manni.
- Nei, sagði Annie.
- Setjið á yður hattinn, sagði undirforinginn
harðlega. - Við skulum líta á nýtt og raunveru-
legt morð. Hann snerist á hæli, leit á Charley
og augu hans minnkuðu. - Ef mér gæti dottið
í hug að þú hefðir skipulagt nokkuð þessu
líkt...
- Fáránlegt, sagði Charley. - Slík skipu-
lagning væri allt of flókin fyrir venjulegan flatfót
eins og mig.
Herbergið, sem dauði maðurinn lá í, var
hótelherbergi, ekki ódýrt eða lítið en illa hirt og
dapurlegt, undir daufu Ijósinu frá Ijósakrónunni
í loftinu. Á því var einn gluggi, skínandi svartur
móti nóttinni. Inni var dökkt gólfteppi, rúm,
borð, stóll, skrifborð og standlampi.
En hvorki Annie, Charley eða undirforinginn
sáu neitt af þessu þar sem þau stóðu í dyrun-
um. Þau sáu aðeins manninn liggjandi á gólf-
inu með útglennta fætur. Annar handleggurinn
lá tuskulega yfir brjóst hans, hinn var teygður
frá líkamanum. Það voru engar augabrúnir,
það var ekkert andlit. Undirforinginn ýtti Annie
mjúklega inn fyrir og lokaði á eftir þeim.
Fjórir menn, tveir krjúpandi við hlið hins
látna, hinir tveir að athuga skrifborðsskúffurn-
ar, kinkuðu kolli til Charley og undirforingjans,
litu undrandi á Annie og héldu svo áfram aö
vinna.
Charley sneri sér að Annie sem starði stór-
eyg á manninn á gólfinu. Charley fannst hún
sérstaklega falleg af grannri stúlku að vera.
- Sjáðu til, sagði hann blíðlega. - Það var
ekki fallega gert að fara með þig hingaö. Ég
skal fara með þér niður og þú getur...
Annie sneri sér dramblát við. - Það er allt í
lagi með mig, sagði hún með annarrar konu
rödd. Hún færði sig djarflega nær þeim látna,
yggldi sig svolítið og starði á hann með pírðum
augum. Charley laut að leynilögreglumannin-
um, sem sat á hækjum sér við hlið mannsins.
- Þekkið þið hann? spurði hann.
- Já, Lou þekkir hann. Fjárglæframaður,
svartamarkaðsbraskari í stríðinu. Marijuana-
sali, ræningi.
Charley stóð upp og gekk til Annnie sem
64 VIKAN 13. TBL.1990