Vikan - 11.07.1991, Síða 5
Ljósmyndasamkeppnin um
brúöi ársins hófst á Eng-
landi fyrir tuttugu árum.
Hún er mjög vinsæl þar í landi
og hefur það fyrst og fremst
sér til ágætis að bæði Ijós-
myndari og fyrirsæta - brúður
í þessu tilfelli - hafa til mikils
að vinna þar sem besta mynd-
in færir báðum verðlaun. Ann-
að sem keppt er um á svipuð-
um nótum á Englandi er barn
ársins undir fimm ára aldri,
fjölskylda ársins, gæludýr árs-
ins og andlitsmynd ársins.
Af þessum fimm flokkum er
keþpnin um brúður ársins
viðamest og vinsælust.
Á Bretlandseyjum og víðar
kemur það fyrir að Ijósmyndar-
inn eyði löngum tíma á heimili
brúðarinnar. Þá tekur hann
myndir þegar tilvonandi frú
klæðist brúðarkjólnum, þegar
athöfnin fer fram, í garðveisl-
unni á eftir og þar fram eftir
götunum. Svona er það haft á
bestu bæjum en það segir sig
auðvitað sjálft að myndatökur
af þessu tagi eru óhemju
dýrar. Hér á landi hefur sú
hefð myndast að brúðhjónin
skreppa til Ijósmyndarans rétt
fyrir athöfnina í kirkjunni eða
strax á eftir. Einnig kemur fyrir
að hjón fara í myndatöku
nokkrum dögum eftir brúð-
kaupið, þegar alit umstangið í
kringum það er afstaðið.
augabragði breytir hún tvíbök-
um og ristuðu brauði í rasp og
svo mætti lengi telja. Allar still-
ingar eru ofan á vélinni og þótt
hún sé drifin áfram af 500
vatta mótor er hún hljóðlátari
en aðrar hrærivélar. Þessi
einstaka hrærivél kostar um
17 000 krónur.
Brúður ársins, sem verður
valin úr hópi sigurvegara
hvers mánaðar, fær svo ferð til
Parísar, ásamt brúðguman-
um, og gistingu á fjögurra
stjörnu hóteli enda er verð-
mæti þess vinnings um
100.000 krónur.
Fimmtán Ijósmyndastofur víða
um land taka þátt í keppninni
svo að þau brúðhjón sem
hyggjast taka þátt í brúðar-
myndakeppni Kodak-umboðs-
ins og Vikunnar verða að snúa
sér til þeirra til að vera gjald-
gengir þátttakendur. Stimpill
viðkomandi Ijósmyndastofu
verður að vera aftan á þeirri
mynd sem við á Vikunni fáum
senda og að sjálfsögðu skilum
við öllum myndum til baka. Á
Englandi tíðkast að myndin af
brúði ársins sé notuð í auglýs-
ingar og gæti svo farið að það
yrði líka gert hér.
Það er um að gera að vera
með. Ensk kona, sem komin
var af léttasta skeiði, lét taka
af sér rúbínbrúðkaupsmynd,
fyrst og fremst til að gefa syni
MEIRA UM BRÚÐARMYNDAKEPPNI KODAK-UMBOÐSINS OG VIKUNNAR:
MYNDADISTILLA,
SLÓHLOG VANN
VEGLEG VERÐLAUN
í HVERJUM MÁNUÐI
Við viljum aftur vekja athygli á
verðlaununum sem brúður
hvers mánaðar fær. Þar ber
fyrst að nefna fullkomna og vel
búna snyrtivörutösku frá
NO NAME að verðmæti um
16.000 krónur, þá kvöldverð
fyrir brúðhjónin í Grillinu á
Hótel Sögu og Multipractic
UK400 hrærivélina frá
BRAUN. Sú vél er hreinasta
undratæki við matreiðslu enda
nota helstu matreiðslumenn
landsins hana. Þótt minna fari
fyrir þessari hrærivél en öðrum
rúmar hún hálfan annan lítra í
einu. Hún sker jafnt agúrkur
sem spægipylsur í sneiðar; 18
mismunandi þykktir. Jólaköku-
deig hrærir hún þannig að
setja má öll efnin í skálina
samtímis og þótt deigið sé al-
gerlega kekkjalaust og full-
komlega hrært skaðar hún
ekki rúsínurnar. Með öðrum
fylgihlutum býr hún til mauk úr
heilum jarðarberjum eða hakk:
ar kjöt niður í þétt kjötfars. Á
Braun Multipractic UK400>
hreinasta undratæki meðal
hrærivéla, er meðal verðlauna.
sínum sem býr á Nýja Sjálandi
og var i heimsókn í Englandi.
Frúnni var að visu heldur illa
við myndatökur þar sem henni
hefur alltaf fundist að hún
myndist hræðilega illa. Hún
vildi þó að sonurinn ætti mynd
af foreldrum sínum. Hún lét
því tilleiðast og sér ekki eftir
því. Þaulæfður Ijósmyndarinn
fékk hana til að slaka á og
vera eins og heima hjá sér. Ár-
angurinn var líka einhver
besta Ijósmynd sem hún hafði
séð af sjálfri sér. Hún varð svo
ánægð að hún sendi eintak af
myndinni í keppnina - og vann
þann mánuðinn.
14. TBL. 1991 VIKAN 5
TEXTI: PORSTEINN EGGERTSSON