Vikan - 11.07.1991, Side 9
hvers tíma, stundum meö tiltölulega fáum hlutum
en hann veröur líka aö hugsa fyrir smáatriöum á
borö viö rauðmaga.
Út úr leikmyndateiknarastarfinu kemur svo
áhugi á liðnum tíma og í gegnum það starf fer ég
aö kynna mér gömul hús og innréttingar.
Annað sem ég hef kynnst í gegnum þetta fag
er sagnfræðin og hún er í rauninni mitt
tómstundagaman. Þá á ég viö menningarsögu;
hvernig bjó fólk, hvernig klæddist það, hvernig
voru híbýli og húsagerð? Ég hef leiöst út í þaö
undanfarin ár að gera þætti um söfn og gamlar
byggingar svo þar bítur maður eiginlega i skottið
á sér.“
HUGMYND
Eftir tíu ára sjónvarpstíð vann Björn hjá sjálfum
sér í fjögur ár við allan fjárann, eins og hann segir
sjálfur, og meðal annars mikið fyrir Sjónvarpið.
„Á þeim tíma vann ég að Paradísarheimt og
var þá um tíma i mormónabyggðum i Utah. Þar
teiknaði ég næstum því heilt þorp sem var byggt
úti í auðninni. Það var heilmikið stórvirki. Að því
loknu gerði ég leikmynd við myndina Punktur,
punktur, komma, strik, eftir Pétur Gunnarsson.
Pétur, Þorsteinn Jónsson, Þórhallur Sigurðsson og
ég höfðum allir verið saman í menntaskólanum
svo það voru skemmtilegir endurfundir og þarna
vorum við auk þess að fjalla um okkar eigin tíma.
Um leið og því verkefni lauk stofnuðum við Egill
Eðvarðsson fyrirtækiö Hugmynd."
Framkoma Björns er hressileg en þó laus við
alla sýndarmennsku. I samræmi við það var
Hugmynd alla tíð ætlað að vera lítið tveggja
manna fyrirtæki sem skilaði góðri vinnu í sínu
fagi en sleppti yfirbyggingu uppalífsstílsins.
„Við vorum eingöngu að selja okkar þekkingu
á sjónvarpi. Við geröum einar sjö hundruð sjón-
varpsauglýsingar og fleira til á sjö árum og þá
hafði markaðurinn mikið breyst. Á sínum tíma
var það nýjung að selja einungis sérþekkingu og
| KttSENMAC,
í m lin nv fihi |
i 1
yj m
„Langastétt." Brekkukotsannáll 1972.
handrit að auglýsingum, auk leikstjórnar. Við átt-
um engin tæki, keyptum allatæknivinnu af öðrum
og vorum eiginlega bara hugbúnaður. Nú byggist
þetta allt á að eiga græjur og að undirbjóða
keppinautana.
Við gerðum líka eina leikna bíómynd, Húsið,
sem Egill leikstýrði og fékk góða dóma. Þetta er
vönduð mynd og eldist vel. Við gerðum hana í
samvinnu við Saga-film, seldum 65.000 miða,
borguðum allt og engar skuldir. Allir voru sælir og
við fórum eina æðislega skemmtiferð til New
York með myndina og sýndum í einhverju litlu
bíói, ég man ekki hvar, sem enginn kom í.
Þegar við síðan hættum í Hugmynd kvödd-
umst við með virktum, skiptum á milli okkar
tveimur skrifborðum og því litla sem fyrirtækið
átti. Við skulduðum ekkert eins og svo margir
sem maður horfði upp á, menn sem fóru út í að
kaupa tölvubúnað, tækjabúnað og þetta og hitt,
fóru á hausinn og sátu uppi með skuldir. Við
héldum okkur á góðum launum allan timann,
Frh. á næstu opnu
„Húsið“ 1983. Helgi Skúlason og Kristín Bjarnadóttir.
14. TBL.1991 VIKAN 9