Vikan - 11.07.1991, Page 14
TEXTI: HJALTI JÓN SVEINSSON
Pétur einn á ferð á Bora Bora í Frönsku Pólónesíu.
fcAjfos s.
jffip ij—----- ? ; , V
HEIMSHORNA Á MILLI
Vikan spjallar við Pétur Valgeirsson ferðagarp
Hann er grannur og
hávaxinn, brúnn á
hörund og vöðva-
stæltur. Þaö er greinilegt að
hann hugsar um það sem
hann lætur ofan í sig, er um
leiö reglusamur og gætir sín á
því að halda líkamanum í
þjálfun. Blaðamanni datt fyrst í
hug að þetta hlyti að vera
knattspyrnumaður úr
einhverju liðinu í
i fyrstu deild-
Vegir
liggja til
allra
átta...
Á nyrsta
odda
norðureyju
Nýja-
Sjálands.
myndum lýsir ævintýralegum
ferðum sínum um heiminn.
Hann segir það hugsjón sina
að ferðast einn á ókunnar
slóðir, engum háður en um
leið litill þáttur í öllu sköpunar-
verkinu.
Hann var spurður að því
hvert
upphafið
hefði verið
að þessari miklu
ferðaþrá hans.
„Það var alltaf árátta hjá
mér þegar ég var lítill að þvæl-
ast lengra en ég mátti og
því hefur þessi ferða-
og ævintýraþrá
líklega blundað í
mér alla tíð.
14 VIKAN 14. TBL. 1991
En mjög ungum gafst mér
þess kostur að fara nokkrum
sinnum á skíði í Alpana og þá
kviknaði neistinn fyrir alvöru
og ég hét því að láta einhvern
tíma verða af því að láta til
skarar skríða.
SKÍÐAFERÐIR í ALPANA
KVEIKTU NEISTANN
Ég kynntist Svisslendingi í
einni skíðaferðinni sem ferð-
ast hafði með breskri ferða-
skrifstofu. Hann hafði tekið
þátt í mjög skemmtilegri ferð á
vegum þessa fyrirtækis um
Asíu. Ég heillaðist mjög af
frásögn hans. Því var það að
stuttu eftir að ég kom heim úr
síðustu skíðaferð fór ég að
kynna mér málin og hafði
samband við ferðaskrifstofu
þessa til að athuga hvað hún
hefði upp á að bjóða. Mér leist
strax mjög vel á Afríkuferð,
sem heitir hjá þeim „The Great
Safari“ eða Safari-ferðin hin
mikla.
Þegar hér var komið sögu
hafði ég orðið fyrir umferðar-
óhappi. Bíllinn minn, sem ég
hafði lagt mikla fjármuni í,
eyðilagðist gjörsamlega. Sjálf-
ur slapp ég með skrekkinn og
fékk síðan drjúgan skilding frá
tryggingunum, þar eð ég hafði
tryggt bílinn mjög vel. Ég
ákvað að nota nú tækifærið og
láta drauminn rætast. Ég lét
því bóka mig í Afríkuferðina
miklu. Hún tók um sex mánuði
og segja má að ég hafi þvælst
niður alla Afríku.
Eftir þessa reynslu var
eldurinn orðinn óslökkvandi og
ég var staðráðinn í því að láta
hér ekki staðar numið. Ekki
síst spennandi þótti mér að
kynnast þarna fólki hvaðan-
æva úr heiminum.
SVAF OFT UNDIR
BERUM HIMNI
Þegar ég kom heim úr Afríku-
ferðinni dvaldi ég heima í rúm-
an mánuð. Ég fór þá strax að