Vikan - 11.07.1991, Page 15
undirbúa ferö mína til Asíu og
þá einkum Nepal því þangað
fýsti mig sérstaklega að fara.
Ég hafði heyrt samferðafólk
mitt í Afríkuferðinni tala mikið
um Asíu, Indónesíu, Ástralíu
og Nýja-Sjáland og ég varö æ
spenntari fyrir því að halda
þessu flakki áfram. Sumt af
þessu fólki hafði verið á ferða-
lagi mánuðum og jafnvel árum
saman og ætlaði að halda því
áfram. Stór hluti þess hefur
það að hugsjón að skoða sig
um í heiminum og margirferð-
ast á mjög ódýran hátt. Ég lét
mér oft nægja að sofa úti undir
berum himni og ferðast langar
vegalengdir á puttanum eins
og það heitir. Þess vegna eru
ferðir af þessu tagi ekki eins
dýrar og margir halda, en auð-
vitað fer þetta eftir því hversu
miklar kröfur maður gerir.
Ég haföi öðlast ágæta
reynslu í Afríkuferðinni. Hún
var skipulögð af ferðaskrif-
stofu, eins og fyrr segir, og því
þurfti maður ekki í raun að
hafa áhyggjur af neinu. Hún
veitti mér samt kjark til að
halda áfram einn míns liðs og
án nokkurrar utanaðkomandi
aðstoðar.
Frá Nepal ferðaðist ég niður
Indland til Kalkútta og þaðan
fór ég til Tælands. Á þessum
slóðum var ég á ferðinni í
rúma þrjá mánuði. Ég þvældist
meðal annars mikið um við
landamæri Burma, Laos og
Tælands.
Að þessum þremur mánuð-
um liðnum hélt ég niður með
austurströnd Malasíu og það-
an til Singapúr. Þaðan fór ég í
langa bátsferð til Balí. Þar
dvaldi ég um tíma og heimsótti
nokkrar eyjanna.
Frá Indónesíu hélt ég til
Ástralíu og þar var ég í tæpa
þrjá mánuöi og fór víða um.
Næst fór ég til Nýja-Sjálands
þar sem ég dvaldi í fjóra mán-
uði. Ég verð að segja að þó
svo Nýja-Sjáland sé margfalt
minna en Ástralía hefur það
upp á miklu meira að bjóða.
Mér finnst miklu meiri náttúru-
fegurð þarog miklu máli skiptir
síðan hvað íbúar þess eru vin-
gjarnlegir. Ástralía er svo of-
boðslega stór að ef maður ætl-
ar til dæmis að sjá einhvern
ákveðinn stað þarf maður
marga daga til að komast
þangað. Á Nýja-Sjálandi eru
fjarlægðirnar miklu minni og
þar er því mun auðveldara að
ferðast og sjá sig um.
Að dvölinni á Nýja-Sjálandi
lokinni fór ég til Frönsku Pól-
f Himalaja
i Nepal
ásamt
innfædd-
um kunn-
ingja
sínum,
Mani
Lama, og
öldnum
klæðskera.
ónesíu og þar dvaldi ég í
nokkurn tíma og heimsótti þar
margar eyjar. Þaðan flaug ég
til Bandaríkjanna og ferðaðist
þar um nokkurt skeið og skoð-
aði mig um. Þegar ég loks
flaug heim hafði ég verið í
nærri heilt ár á þessu flakki -
en síðan eru liönir sex mánuð-
ir.“
- Getur þú nefnt þá staði
sem hafa haft hvað mest áhrif
á þig?
„Þeir staðir sem mér finnst
hafa borið af eru Sahara í
Afríku, Himalajafjöllin í Nepal
og staður á suðureyju Nýja-
Sjálands, Able Tassmann.
Þeir standa algjörlega upp úr
að mínum dómi og höfðu
dýpst áhrif á mig.“
ALLTAF HÆGT AÐ
BJARGA SÉR
- Varöstu aldrei uppi-
skroppa með farareyri allan
þennan tíma?
„Jú, þaö kom svo sem fyrir.
Til dæmis má nefna að ég gat
unnið mér inn svolítinn pening
bæði í Ástralíu og á Nýja-Sjá-
landi því auðvitað gengur á
skotsilfrið þó maður reyni að
genilecare
gentle care,
.. heiiiial
SHAMPOI
'0* HODMAl HAH“
EGC HtDTBH
SHAMPOQ
lAMPOO
LEMOX
■fOSORYHAlS-
GENTLE CARE
SENTLECARE
GENTIjE CARE
SHAMPO
GBmECARE
SJHAMPOO
rr'OíAU THl fAMILY—"
•gm
ILttreS
Húðsérfræðingar
Galenco-fyrirtækis-
ins hafa hannað
framleiðslu sína
sérstaklega fyrir
viðkvæma og
þurra húð.
Aðeins eru notuð
mild náttúruleg efni.
SjAMPÓ • FREYÐIBAÐ
• FREYÐIBAÐOLÍUR •
BARNASJAMPÓ O.FL.
ERCO sf.
SÍMAR 32010 OG 36462