Vikan - 11.07.1991, Blaðsíða 28
MYNDIR OG TEXTI: BJÖRG SVEINSDÓTTIR
MAÐURINN MED
LEÐURLUNGUN
VIKAN Á TÓNLEIKUM MEÐ JUDAS PRIEST
Ein elsta og um leið
þekktasta þungarokk-
sveit síðustu ára og
áratuga er án efa
breska hljómsveitin
Judas Priest. Hún hef-
ur starfað óslitið í
átján ár og sent frá sér
á þeim tíma fjórtán
breiðskífur sem selst
hafa í gríðarlegu upp-
lagi um heim allan.
Fyrir nokkru sá Björg
Sveinsdóttir sveitina
trylla brasilísk ung-
menni í Ríó de Janeiró
í Brasilíu. Stuttu fyrir
tónleikana náði hún
tali af forsprakka
sveitarinnar, Rob
Halford.
Rob Halford, sem kallaður hef-
ur verið maðurinn með leður-
lungun, er jafnan snoðaður og
sker sig þannig úr ( þunga-
rokkheiminum. Hann er lág-
mæltur og afskaplega kurteis
og ekki fer milli mála að hann
er skarpgreindur og vel að sér
í ýmsu öðru en þungarokki.
Talið berst fljótlega að síðustu
breiðskífu sveitarinnar, Pain-
killer, sem var með bestu
þungarokkskífum síðasta árs
en þar má segja að sveitin
endurnýi sig gjörsamlega og
sýni yngri mönnunum í þunga-
rokkinu í tvo heimana. Kraft-
mikill trommuleikur nýs
trommara sveitarinnar, Scotts
Travis, grípur áheyrandann
hálstaki þegar á fyrstu sek-
úndunum og síðan koma hár-
beittir gítarar Robs Halford og
K.K. Downing og ryðja öllu
öðru til hliðar. Undir kraumar
þéttur bassaleikur lans Hill. Sá
sem er í besta forminu á plöt-
unni er þó maöurinn meö leð-
urlungun sjálfur, Rob Halford.
Hann syngur og öskrar eins og
hann eigi lífið að leysa og
bregður fyrir ólíkum röddum
eftir því sem við á.
Rob segir aö plötunni hafi
seinkað um tvo mánuði því
sveitin hafi þurft að vera viö
réttarhöld í Nevada í Banda-
ríkjunum. Þar voru hljómsveit-
armenn ákærðir fyrir að hafa
valdið dauða ungs manns sem
á að hafa svipt sig lífi fyrir áhrif
frá tónlist Judas Priest. Rob
segir að við réttarhöldin hafi
komi fram að pilturinn hafi ver-
ið gjörsamlega firrtur; á kafi í
dópi og vesaldómi og upp á
kant við fjölskyldu sína. Hann
segir að dómarinn hafi sýknað
sveitina af öllum ákærum og
bætir við nokkrum vel völdum
athugasemdum um foreldra
sem horfast ekki í augu við
eigin verk og reyna að skella
skuldinni af eigin vanrækslu á
aðra.
Rob, segðu mér af nýju
plötunni.
Painkiller er mikil trommu-
plata og henni var ætlað að
vera tákn þess sem Judas Pri-
est er 1991. Við vildum sýna
fólki fram á aö eftir öll þessi ár
værum við enn færir um aö
semja kraftmikla, markvissa
og beinskeytta tónlist. Við vild-
um sýna fram á að við hefðum
eitthvað fram að færa í þunga-
rokki. Framlag Scotts skiptir
miklu máli því grunnurinn að
öllu nútímarokki er rytminn og
við vildum ýta honum framar í
tónlistinni, þannig að þar ber
eðlilega mikið í því hve Scott
er góður trymbill. Við vildum
setja trommurnar á svipaðan
stall og gítarinn sem leiðandi
hljóðfæri, líkt og Keith Moon
Frh. á næstu opnu
28 VIKAN 14.TBL.1991