Vikan - 11.07.1991, Blaðsíða 43
NA AUGNABUK
Skoðanir Bandaríkja-
manna á siðgæði í fjöl-
miðlum kunna að koma
flestum tslendingum og raunar
öðrum Evrópubúum undar-
lega fyrir sjónir. Á hvaða tíma
sólarhrings sem er getur
bandarísk alþýða séð glæpi,
árásir, nauöganir og morð í
sjónvarpinu. Þar er hins vegar
algjörlega bannað að sýna
geirvörtur eða bera rassa,
hvort sem er á ungbörnum
eða fullorðnum. Því er það
ekki að ástæðulausu sem um-
ræður og jafnvel uppþot hafa
nú orðið alls staðar þar sem
þessar myndir Roberts Mapp-
lethorpe hafa verið sýndar. Á
sýningunni eru yfir hundrað
andlitsmyndir, kyrralífsmyndir
og nektarmyndir. Sex mynd-
anna teljast ganga út yfir allt
það sem bandarisk alþýða tel-
ur til velsæmis. Umræður hafa
orðið svo heitar að ríkisstyrkj-
um til sýningarinnar var fljót-
lega hætt og hefur hún verið
styrkt af einkaaðilum síðan.
Robert Mapplethorpe fæddist
f New York-fylki 1946. Þegar
hann var sautján ára hóf hann
listnám við Pratt Institute í
New York og lagði þar stund á
málun, teiknun og skúlptúr.
Fyrsta árið eftir að hann út-
skrifaðist sérhæfði hann sig f
ýmiss konar klippimyndum og
notfærði sér þá Ijósmyndir úr
blöðum f tilraunaskyni. Hann
hélt sína fyrstu sýningu árið
1971 í New York og vakti hún
nokkra eftirtekt fyrir myndir
sem settar voru saman úr Ijós-
myndum teknum úr klámblöð-
um og öðrum tímaritum.
Mapplethorpe hóf sjálfur Ijós-
myndun árið 1975 og vann þá
mest með polaroid-myndir en
það vartalsverð nýjung á þeim
tíma. Ljósmyndir hans vöktu
einnig mikla athygli og hann
varð fljótlega eftirsóttur Ijós-
myndari hjá frægu fólki. Meðal
þeirra sem hann tók myndir af
má nefna Andy Warhol, Pal-
oma Picasso, Arnold Schwar-
zenegger, Donald Sutherland
og Richard Gere.
Þrátt fyrir að margar mynda
Mapplethorpes hafi birst f
tímaritum eins og Vogue, Int-
erview og Baazar er það haft
eftir honum að listamenn eigi
að stunda list sína án tillits til
þess hvort hún geti selst eða
ekki. Hann taldi tískuljós-
myndir sínar oft vera nær list
en tísku og sagði það reyndar
ástæðuna fyrir að hann héldi
slíkri Ijósmyndun áfram.
Hvernig náði Mapplethorpe
svona miklum árangri þrátt
fyrir að vera umdeildur og for-
smáður af flestum? Sjálfur
Frh. á næstu opnu
14. TBL 1991 VIKAN 43