Vikan


Vikan - 19.09.1991, Page 9

Vikan - 19.09.1991, Page 9
mér bera það með sér að þetta er fólk sem hefur víða farið og séð lífið í ýmsum myndum ofan af sviði eða kringum bransann. Þessari út- gerð fylgir mikil nálægð við fólk og gang lífsins hér og þar. Þetta er svolítið skrítin tilhugs- un en engu að síður satt. Það ríkir líka miklu meiri friður meðal hljóðfæraleikara og söngvara en maður átti að venjast hér áður fyrr þegar ill- indi, úlfúö og baktal var alls- ráðandi eða miklu meira áber- andi.“ HLJÓMPLATAN ANDARTAK „Eins og velflestir sem um langan aldur hafa haft lífsvið- urværi sitt af hljóðfæraleik átti ég mér draum að taka upp eig- iö efni og gefa út á plötu. Ég flýtti þeim draumi þegar sjúk- dómurinn sótti mig heim og hef unnið í því verkefni allt þetta ár. Draumurinn er orðinn að veruleika, hljómplata sem kemur út eftir nokkrar vikur og ég hef valið heitið ANDARTAK Mér telst svo til að alls komi um fjörutíu manns við sögu á plötunni. Þetta eru allt lög eftir mig og velflestir textarnir líka. Yfirbragðið er melódískt og stilbrigðin mörg. Segja má að fjölbreytileikinn sitji í fyrirrúmi. Þarna bregður meira að segja fyrir kvikmyndastemmningu. Annars verða aðrir en ég að dæma þegar þar að kemur. Þetta eru alls tólf lög - tólf litlar myndir í tónlistarbúningi sem mér þykir eðlilega vænt um. Þar sem ég hef nú aldrei verið rómaður fyrir góðan söng fékk ég lánaða nokkra af bestu börkunum úr bransan- um til að koma þessu til skila. Má þar nefna Andreu Gylfa- dóttur, Helga Björnsson, Bubba Morthens, Reyni Guðmundsson, Daníel Har- aldsson og Sævar Sverrisson. Þau gefa þessu skemmtilegan lit eins og þeirra var von og vísa. Hinir fjölmörgu hljóð- færaleikarar, sem lögðu mér lið, eru meira og minna sam- ferðamenn mínir í spila- mennskunni og þeir Sævar, Helgi og Bubbi lögðu til orð í texta nokkurra laga og þeir versnuðu ekki við það - það get ég fullyrt. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra gefur plötuna út ásamt mér og vona ég sannarlega að dæmið gangi upp - ekki til að fylla mínar pyngjur heldur á ágóðinn að renna til líknar- mála. Helmingur ágóðans fer til byggingar sundlaugar fyrir Þannig var ísfirska hljómsveitin Yr fyrst skipuð. Þessi mynd var tekin árið 1974. fötluð og lömuð börn, hinn helmingurinn til rannsókna á þeim sjúkdómi sem ég er haldinn, taugalömunarsjúk- dómnum MND.“ TÓNLISTIN STERK LÍFTAUG Þótt ég hafi þurft að breyta um farveg í lífinu, taka upp nýja siði í stóru og smáu, verður tónlistin aldrei frá mér tekin svo lengi sem ég held skýrri hugsun. Við spilamennskuna nota ég rafmagnstrommur en það skal skýrt tekið fram að þær leika ekki eitt eða neitt fyr- ir mig, ég leik á þær rétt eins og ég hef alltaf gert en stíllinn hefur breyst. Ég hef breytt hreyfingum og bý mig andlega og líkamlega undir hvert spila- kvöld." Nú skellir Rafn höndunum á eldhúsborðið og segir: Sjáðu, hér milli þumals og vísifingurs hefur vöðvi rýrnað og fingurnir eru mismunandi hreyfanlegir. Ég held öðruvísi á kjuðanum fyrir bragðið og þessar snöggu hreyfingar hérna - sjáðu - verða öðruvísi bæöi með höndum og fótum. Líðan mín frá degi til dags veltur á því hvernig ég hef hagað mér í það og það skiptið. Öll snögg geðbrigði, þreytta eða svefn- leysi geta framkallað stjórnleysi hreyfinga eða máttleysi. Það er því ekki að undra að ég vandi mig hverja einustu stund. Það er mitt stóra og mikla mál að halda takti í líf- inu. Ef ég geri þaö fylgir kraftur og áræði í kjölfarið, að ógleymdri lífsgleðinni." DAGURINN í DAG ER ÞAÐ SEM SKIPTIR MÁLI „Maður hugar einhvern veginn betur að því sem er í kringum mann. Með sama breytta hug- arfarinu, sem fylgdi hljómplöt- unni, dreif ég mig í skóla. Það veitir ekki af að rækta svolítið andann. Ég er nú á öðru ári í Kennaraháskólanum og það gengur bara bærilega. Það þýðir ekki að sitja aðgerðalaus og bíða eftir að eitthvaö gerist. Það hleypir hugsunum á flakk og ruglar mann í ríminu í bar- áttunni. Blákalda staðreyndin í þessu öllu saman er þessi: Þrátt fyrir kærkomna hlutdeild, hjálpsemi og væntumþykju þeirra sem næstir standa, þrátt fyrir þá gæfu að eiga góða vini sem hjálpa og að- stoða má ég aldrei gleyma því að það er ég sjálfur sem hey mína lífsbaráttu - ég stend og fell með henni rétt eins og hver annar. Hvort ég sé að standa í síð- asta sinn upp frá trommusett- inu, brautskráður og útskrifað- ur eða hvort ég sé á leiðinni í hjólastólinn eru spurningar sem ég leiði hjá mér. Svörin viö þeim mega liggja kyrr þar til tíminn leiðir þau í Ijós. Það er dagurinn í dag sem skiptir máli, fullur af áhugaverðum viðfangsefnum sem spenn- andi er að fást við. Ég nýti tim- ann vel, helst hvert einasta andartak. Einhverjum kann kannski að finnast skrýtið að heyra mann eins og mig tala svona en fyrst ég Ijáði máls á því að ræða mín persónulegu mál við Vik- una vildi ég hafa söguna sanna-engu logið, engu leynt. Ýkjur og gróusögur fylgja alltaf þegar umræðuefnið er við- kvæmt og persónulegt svo það er best að valda ekki nein- um misskilningi." □ Þessi mynd var tekin 1988 er Rafn var að spila með Bitlavina- félaginu í beinni útsendingu Rásar 2 fyrir utan útvarpshúsið við Efstaleiti. 19. TBL. 1991 VIKAN 9

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.