Vikan


Vikan - 19.09.1991, Blaðsíða 24

Vikan - 19.09.1991, Blaðsíða 24
1 B iöp \ ' 1 JKt, Einn af trúöunum sem frú Taylor framleiðir upp i íslandsferðir. ég veit ekki hvað ég á að halda. Ég fékk líka sér- stakar tilfinningar þegar ég fór upp að Herðu- .breið á leiðinni I Öskju. Við tjölduðum þar tvo sólarhringa og ég gat ekki fengið af mér að sofna allan þann tíma. Ég bara gekk og skoðaði mig um. Hvar sem ég fer er ég svo agndofa að ég er sífellt að þakka Guði fyrir að leyfa mér að verða fyrir þessari lífsreynslu. Og það er engu líkara en mér sé launaður þessi áhugi vegna þess aö veðrið er alls staðar eins og best verður á kosið. - Hvað vissirðu um ísland - til dæmis í æsku? Ekkert. Nákvæmlega ekkert nema það sem ég lærði í landafræði og það var ekkert meira en ég lærði um önnur lönd. Ég lærði auðvitað um eldfjöllin og jarðhitann en að öðru leyti fékk ég enga sérstaka fræðslu. Samt langaði mig alltaf að koma hingað. Og núna er ég þegar farin að skipuleggja næstu ferð, 1993, þegar ég ætla meðal annars aö fara til Vestfjarða. Ég hef að vísu farið til Stykkishólms og í Breiöafjaröareyjar en ekki nær Vestfjörðum en það. - Hefurðu ferðast eitthvað um Bretland? Já, já. Ég bjó I Salisbury um tíma og hef ferð- ast um Skotland, Wales, Vatnahéruðin og víða. Ég er mikið fyrir fjöll en finnst lítið varið I Kanarí- eyjar og aðra heita staði. Ég hef líka farið um önnur lönd, til dæmis með manninum mínum til Jersey - en það hafði engin áhrif á mig. Ég ferð- ast með manninum mínum annað hvert ár og þess á milli kem ég hingað. Ég hef selt svolítið af myndum sem ég hef tekið hérna. Það auðveldar mér að safna fyrir næstu ferð hingað. Svo vinn ég sextán og hálfan tíma á viku sem ráðgjafi á hjónamiðlunarskrifstofu sem heitir Relate. Allir peningarnir sem ég vinn mér inn sjálf, nema það sem ég eyði I jólagjafir og svoleiðis, fara beint í bankann og síðan I ferðakostnað til fslands. - Mér skilst að þú hafir þegar heimsótt fleiri staði á íslandi en venjulegir íslendingar heimsækja sjálfir. Ja, ég á nú helling eftir. Sumir vegir hérna eru svo ógnvekjandi, þótt fegurðin sé alltaf á næsta leiti. Ég myndi ekki þora að aka sjálf um þessa vegi heldur fer ég með langferðabíl. Rútukerfið hérna er algerlega til fyrirmyndar. Ég fór með áætlunarbíl milli Reykjavíkur og Akureyrar fyrsta árið mitt hérna og ég hef farið með rútu í Land- mannalaugar, í bíl sem tekur yfir fjörutíu manns. En það voru aldrei fleiri en sextán í honum sam- tlmis. Fólk kom og fór eftir því sem austar dró; nokkrir fóru út við Landmannalaugar eða komu inn við Eldgjá. Svona gekk þetta. Þessir bílar eru þægilegir og bílstjórarnir eru ekki bara vænstu menn heldur þaulæfðir I sinni starfsgrein. Mér urðu á heimskuleg mistök á miðvikudag- inn var. Við vorum á leiðinni austur og settumst inn á veitingahús á Hellu til að fá okkur kaffi. Og þarna var stúlka sem heitir Kristín. Hún hafði ferðast með okkur en sat nú ein svo ég bauð henni að setjast hjá okkur. Ég vissi ekki að hún er íslensk en þegar ég fór að tala við hana kom í Ijós að hún er frá Akranesi. Og fyrir algera tilvilj- un kom líka í Ijós að hún þekkti Unni vinkonu mína mjög vel. Ég varð svo himinlifandi og utan við mig af að tala við hana að ég gleymdi pen- ingaveskinu mínu þarna á borðinu og uppgötv- aði það ekki fyrr en við vorum komin á Kirkju- bæjarklaustur. Það voru að vísu ekki nema um tólf þúsund krónur í því en það sem olli mér áhyggjum var að greiðslukortiö mitt var líka í veskinu. Svo ég fór niður í afgreiðsluna á Eddu- hótelinu og stúlkan þar fann símanúmerið á veit- ingahúsinu á Hellu, hringdi þangað fyrir mig og gaf mér samband. Konan í símanum spurði hvað ég héti og þegar hún vissi nafn mitt sagði hún: „Já, veskið þitt var á borðinu og mér hefur verið fengið það til varðveislu." Ég fór svo þang- aö og settist niður til að blaða í veskinu. Þá kom stúlka, sem var að taka af borðunum, til mín og sagði: „Svo að þú átt þetta veski. Það var fullt af peningum í því.“ En allir peningarnir voru þar ennþá ósnertir svo ég bauð henni fundarlaun en hún vildi ekki taka við þeim. Svona lagað hefði aldrei getað gerst I Englandi. - Þetta hefur verið langt ferðalag. Finnst þér ekki miklar vegalengdir á milli áhuga- verðra staða hérna? 24 VIKAN 19. TBL1991 Þegar frúin kom fyrst til Þingvalla fannst henni sem hún hefði verið þar áður enda þekkti hún staðinn í krók og kring. Nei, síður en svo. Það ber alltaf eitthvað nýtt og spennandi fyrir augu. í þessari ferð sá ég Heklu og allt nýja hraunið, ég sá fossa og á aðra hönd eru þessi hefðbundnu íslensku, snævi- þöktu fjöll sem eru svo sérstök fyrir Island. Þau eru ólík öllu sem ég hef séð annars staðar. Hin- um megin eru svo græn tún og litlar hæðir. Þarna er líka það Island sem maður sér alltaf á almanaksmyndum. Þetta er eins og að ferðast á milli tveggja gjörólfkra landa. Og fyrr en varir er maður staddur á stórkostlegri hrauneyðimörk. Einu skiptin sem ég blaða í bókinni minni á ferð- um mínum er á leiðinni milli Hveragerðis og Hellu. Bæði hef ég oft farið þá leið og auk þess minnir flatlendið nálægt Hellu svolítið á enskar sveitir. - Mér skilst að þú haldir dagbók um þess- ar ferðir þínar. Já. Að vísu hef ég ekki fært tvo síðustu daga inn ennþá vegna þess að ég hef hreinlega ekki haft tíma til þess. í gærkvöld, þegar við vorum að hita okkur kaffi, benti einhver okkur á að það væri komiö fram yfir miðnætti - og það var ennþá glaða sólskin. Ein í hópnum var með myndavél sem sýnir rétta dagsetningu og klukkustund á myndunum sem eru teknar. Svo aö hún tók mynd fyrir okkur til að geta sannað þetta fyrir fólkinu heima. Annars er ég sítalandi um ísland þegar ég kem heim. Ég held að ég sé að drepa alla úr leiðindum með blaðrinu I mér. Vinkona mín, sem fór með mér í þessa ferð, hefur samt komist að því að ég hef ekki ýkt nokkurn skapaðan hlut í frásögnum mínum. „Landið er eins og þú hefur lýst því,“ sagði hún við mig um daginn og bætti við: „Fólkið er eins og þú hefur lýst því, veðrið og hvaðeina. Þakka þér fyrir að hafa farið með mig til þessa undra- lands." Yfirleitt punkta ég ýmislegt smávegis hjá mér þegar ég er komin I ró. Ég skrifa til dæmis niður verðlag - bara til að geta gert samanburð á milli ferða. Þegar ég kom hingað fyrst voru sextiu krónur I pundinu en núna eru þær hundrað og tvær. Og þótt verðlag hafi eitthvað hækkað hérna á þessu tímabili fæ ég álíka mikið fyrir pundið. - En finnst þér ísland samt ekki vera dýrt ferðamannaland? Jú, það er það. Flest er tvöfalt dýrara en heima. Máltíð sem kostar um 1500 krónur hérna kostar 700-800 krónur heima á Englandi. Besti veitingastaðurinn sem ég þekki á íslandi er Pott- urinn og pannan nálægt Skipholti í Reykjavík. Bæði er maturinn þar sérstaklega góður og þar að auki fær maður mikið fyrir peningana. Svo er ég meö vegakort sem ég merki inn á þá staði sem ég hef heimsótt svo að ég eigi auðveldara með að sjá hvað ég á eftir að sjá. Og ég hef loksins lært að nota Ferðahandbókina sem mér fannst svolítið ruglingsleg fyrst. Það er í rauninni alveg yndisleg bók því að auk hagnýtra upplýs- inga er hún hlaðin upplýsingum um þjóðtrúna, tröllin, risana, sögu landsins og hvað eina. - Hefurðu lesið einhverja Islendingasagn- anna? Allar sem komið hafa út á ensku. Ég á þær all- ar heima og hef keypt margar þeirra hérna. Ég á orðið ansi mikið af bókum um ísland. Áður en ég kom hingað í þetta skiptið pantaði ég bók um kirkjur landsins vegna þess að hvar sem ég sé kirkju tek ég að minnsta kosti mynd af henni ef ég kemst ekki inn I hana. Og nú langar mig í bók með loftmyndum af íslandi. Svo á ég alls konar pésa og bæklinga líka, til dæmis um íslenskan útsaum. Ég fékk sérstaka leiðsögn um Þjóð-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.