Vikan - 19.09.1991, Blaðsíða 31
„Þaö verður að segjast eins
og er um Japanina að þeir eru
frábærir. Kurteisir, hugsa um
náungann, fara að reglum, eru
agaðir og snyrtilegir. Eðlilega
er þeim svolítið í nöp við Vest-
urlandabúa, eins stórir, rudda-
legir og ókurteisir og við erum
nú!
Japanir hugsa mikið um að
vera hluti af samfélaginu,
fylgja reglum og að standa
sína pligt. Þeim er mjög annt
um náungann. Japanir stela
heldur alls ekki, slæpast ekki í
vinnunni og troðast ekki í bið-
röðum en það eru dyggðir sem
íslendingar ættu að tileinka
sér. Ég held að þetta séu meg-
inástæðurnar fyrir því hversu
ríkt japanskt samfélag er í
dag.
Tókíó er alvöru stórborg.
Þar er allt að gerast, allar
tískusveiflur koma þangað
jafnfljótt og til New York, sem
sagt mjög fljótt! Japanir kaupa
sér vönduð föt og eru mjög
framarlega hvað varðar músík
og tísku.
Það eru ansi undarlegar og
einlitar hugmyndir sem fólk
gerir sér um fyrirsætur. Flestir
halda að við séum allar gyðj-
um líkastar og alltaf eins og
dúkkur til fara. Sannleikurinn
er sá að við erum flestar ósköp
venjulegar stelpur sem finnst
misgaman að mála okkur og
meika. Margir halda líka að
fyrirsætur séu ótrúlega hé-
gómlegar týpur sem hamast
allan daginn við að borða gras
og gulrætur til að fitna ekki og
eyði svo kvöldinu í eróbikk.
Þannig er það ekki, flestar
Þessi forsíðustúlka Vogue heltir
Linda Evangelista. Ásta hefur
fengið mikið að gera út á það
hve mjög hún þykir líkjast hinni
þekktu sýningarstúlku.
19.TBL1991 VIKAN 31