Vikan - 19.09.1991, Qupperneq 20
Þannig sperrir Sebastian sig á forsíðu nýjasta
tölublaðs hins virta tónlistarblaðs Rolling Stone.
raunveruleg áhrif koma en hitt var mér Ijóst í
Laugardalshöllinni, aö hér var á ferðinni hljóm-
sveit sem töluvert sópar aö.
Skid Row (nafniö þýöir Rónatröð eða eitt-
hvaö svoleiöis) er ættuö frá New Jersey í
Bandaríkjunum. Þaðan kom Frank Sinatra á
sínum tíma, en þegar Rachel Bolan úr Skid
Row var spurður að því um daginn hvort hann
hlustaði nokkurn tíma á Frank Sinatra varö
hann aumur á svipinn, fiktaði við nefkeðjuna
sína, dæsti og svaraði eins og í sjálfsvörn:
„Lít ég út eins og ég hlusti á Frank Sinatra?"
Rachel er að vísu kvenmannsnafn og þýðir
Rakel en drengurinn heitir þetta í alvöru;
Rachel Bolan. Hann er af portúgölskum ættum
og það er víst allt í lagi fyrir karlmenn að heita
Rakel í Portúgal, eftir því sem mér skilst. Eftir-
nafnið, Bolan, er hins vegar hans eigin viðbót,
til heiðurs Marc heitnum Bolan sem söng
með hljómsveitinni Tyrannous Rex meðan
hann lifði. Rachel semur megnið af efni Skid
Row enda er hann einn af tveim stofnendum
hljómsveitarinnar. Hinn er Dave Sabo, kallaður
snákurinn. Hann ólst upp í nágrenni við Jon
Bon Jovi og hefur alltaf haldið góðum kunn-
ingsskap við hann, þótt hljómsveitirnar hafi allt
að því eldað saman grátt silfur um tima.
SÖNGVARINN „SKÍTHÆLL“
FRÁ BAHAMAEYJUM
Rachel og Dave stofnuðu Skid Row árið 1986
og Rachel átti hugmyndina að nafninu. Þeir
voru á leiðinni á æfingu, báðir að hugsa um
gott nafn á hljómsveit þegar Dave sá för eftir
dekk á götunni. „Skid marks“ (skrensför) sagði
Rachel þá og nafnið var ákveðið. Þá voru þeir
búnir að fá gítarleikarann Scotti Hill og
háskólastúdent frá New York, Rob Affuso að
nafni, til að spila á trommur.
Þeir voru búnir að koma sér uþp umboðs-
manni, Scott McGhee að nafni. Hann er bróðir
Doc McGhee, sem er umboðsmaður Bon Jovi,
en hvernig sem þeir leituðu fundu þeir engan
20 VIKAN 19. TBL. 1991