Vikan


Vikan - 19.09.1991, Síða 22

Vikan - 19.09.1991, Síða 22
ÍSLAND! - ÉG FÆ GÆSAHÚÐ AF SÆLU VH> TILHUGSUNINA O g; LU o CD 2 Frú Margaret Taylor býr í Northampton á Englandi og hefur komið þrisvar til íslands; bresk kona sem leggur allt sparifé sitt fyrir til að komast hingað aftur og aftur. Hún hefur auk margs annars framleitt trúðadúkkur og selt þær. Svo kemur hún hingað annað hvert ár og fjölskyldan hennar botnar ekkert í þessum áhuga hennar. Og þegar hún snýr heim til Englands aftur heldur hún svolitla fyrirlestra um ísland og sýnir lit- skyggnur í leiðinni. Þar að auki hefur hún skrifað ferðasögumar og sent til pennavina sinna um víða veröld. Hún hefur meira að segja dásamað ísland í bresku útvarpi. En hvaðan kemur henni þessi áhugi? Ég fékk hana í svolítið rabb um daginn og lagði fyrir hana nokkrar spurningar. Það þurfti ekki að draga svörin upp úr henni og hér birtist viðtalið. - Hvernig datt þér fyrst í hug að koma til íslands? Mig hefur alltaf langað að koma hingað, alveg síðan ég var barn. Ég veit ekki hvers vegna. Kannski hefur mér alltaf fundist þetta vera sá staður á jörðinni sem kemst næst hugmyndum mínum um sköpun heimsins. Þetta er í þriðja skiptið sem ég kem hingað og þessi skoðun mín hefur ekkert breyst. Hérna eru jöklar, jarðhiti og eldfjöll sem fá mann til að ímynda sér að heim- urinn sé nýfæddur. Samt var það ekki fyrsta ástæðan fyrir komum mínum hingað. Alla tíð síðan ég var svona átta, níu ára gömul hef ég verið ákveðin í að (sland væri það land sem mig langaði mest til að sjá. Svo var það árið 1986 að ég gekkst undir meiri háttar læknisaðgerð. Ég var mjög veik og var vart hugað líf. Þá hugsaði ég með mér: Fjölskyldan er vaxin úr grasi, ég á fjögur börn, það yngsta er orðið sautján ára og ég á svolitla peninga í bankanum.'Og þegar ég útskrifaðist í janúar '87 sagði ég manninum mín- um að ég ætlaði f ellefu daga ferð til Islands í júní. Þá var ég búin að bóka far í pakkaferð. Þetta var allt mjög einkennilegt. Veðrið var yndislegt allan tímann meðan ég var hérna. Satt að segja mun betra en heima á Englandi, þó mér hefði verið sagt að búast við kulda. Ég sá til dæmis aldrei ský yfir Heklu. Það lá við að þessi ferð félli niður vegna þess að við vorum aðeins fimm sem höfðum skráð okkur en venjulega þarf að minnsta kosti tíu manns. Við fengum því leið- sögumann í fimm daga og síðan gistum við á einkaheimilum næstu fimm daga og fengum annan leiðsögumann. Á ellefta degi fór ég heim og grét í flugvélinni vegna þess að ég vildi ekki yfirgefa landið. En ég byrjaði strax að öngla 22 VIKAN 19. TBL 1991

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.