Vikan


Vikan - 19.09.1991, Qupperneq 39

Vikan - 19.09.1991, Qupperneq 39
ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR SKRIFAR ■ VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: ÁAÁAÁÁAAÁÁÁAAÁÁAÁÁÁÁÁAÁAÁÁAÁÁ /íVINTYRI VERULEIKANS ▼TTTTTTTTTTTTTTTTTTVVTVTTTTTT Þýðingarmikil spœgipylsu- spurning... Vissuð þið að það er bannað að koma með danskar spægipylsur inn í landið? I Keflavík bíða tollverðir spenntir eftir að finna þessa vinsælu matvöru í fór- um íslendinga þegar þeir koma þreyttir heim frá Kaup- mannahöfn - eða óþreyttir eftir atvikum. Ef til vill gildir það sama um franskar, hollenskar eða bandarískar spægipylsur, en ég er aðeins orðin vel að mér varðandi þær dönsku. Það var auðvelt fyrir toll- verðina að handsama mína spægipylsu vegna þess að ég vissi ekki að það væri bannað að gæða sér á henni hér heima og reyndi því ekkert að fela hana. Auk þess er hún notuð sem auglýsing á inn- kaupapokanum í fríverslun- inni. Salami, Salami, Salami stendur stórum stöfum á pok- unum og maðurinn minn, sem eingöngu neytir jurtafæðis, var auðveldur viðfangs og afhenti pylsuna án allrar baráttu. Ekki vildi ég una þessu í fyrstu og spurði hvatlega hvort þeir vissu ekki að ég hefði oft komið með þessa vöru inn í landið, eða ætluðu þeir að reyna að segja mér að þeir gætu látið vera að smakka á herlegheitunum, menn í þess- ari aðstöðu. Þeir buðu mér kvittun fyrir að þeir hefðu fengið umrædda vöru afhenta og sögðu mér að þessi spægipylsa yrði brennd. Svo fékk ég bækling um, ja satt að segja er ég ekki farin að lesa hann, en hann fjallar um hvað sé bannað að koma með inn í landið. Að lokum lét ég mér fátt um finnast og var bara ánægð með að þeir hugsuðu um þetta eitt. í pokunum mínum var óvenju mikið af sérríi og líkjör- um, rúskinnsjökkum og þvi um líku, en á leiðinni heim í bíln- um mundi ég eftir litlu dönsku spægipylsunni sem ég keypti í lllum af gömlum húsmóður- vana, stakk í strandtöskuna og hafði því næst gleymt. Átti ég að senda hana til Keflavík- ur þegar heim kæmi? Átti ég að... Lesendur góðir. Ég læt ykk- ur um að svara þessari litlu spægipylsuspurningu eftir innstu sannfæringu og kveð að sinni. Bœn spœgipylsunnar Feldu mig í snyrtibuddunni bakpokanum eða skartgripaskríninu því annars verð ég brennd ábáli eins og Jóhanna af Örkinni. BRÚÐARKJÓLALEIGA KATRÍNAR ÓSKARSDÓTTUR ★ BRÚÐARKJÓLAR ★ BRÚÐARMEYJAKJÓLAR ★ SKÍRNARKJÓLAR ★ SMÓKINGAR ★ KJÓLFÖT GRJÓTASELI16 109 REYKJAVÍK SÍMI 76928 Restaurant /s/enskir sjc/\/cirréttir kjöt- og pxastcsréttir pizzur og ex/oressokaffi © 13340 ANDLITSBÖÐ, HÚÐHREINSUN, LITUN, FÓTSNYRTING, HANDSNYRTIN G DAG- OG KVÖLDSNYRTING VAXMEÐFERÐ hArsnyrtistofah QRANDAVEGI 47 0 626162 Hársnyrting fyrir dömur og herra OPIÐ A LAUGAKDÖGUM SÉRSTAKT VEKÐ FYKIR ELLILlFEYRISÞEGA Hrafnhildur Konráðsdóttir hárgreiðslumeistari Helena Hólm hárgreiðslumeistari Ásgerður Felixdóttir hárgreiðslunemi RA/CARA- & HÁR^RRíÐmSWFA HVERFISGÖTU 62-101 REYKJAVÍK 19.TBL 1991 VIKAN 39
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.