Vikan - 19.09.1991, Page 41
vægt aö átta sig á að viö getum aldrei dregið annað
að okkur en það sem er nokkurn veginn í samræmi
við okkar eigin hugsanir og framkvæmdir. Séum við í
flestum tilvikum elskulegar og sanngjarnar mann-
eskjur, sem viljum okkur sjálfum og öðrum allt það
besta, er engin ástæða til að ætla að nokkuð veru-
lega slæmt hendi okkur sem rekja má til tengsla við
krafta eða öfl sem kunna að búa í andrúmslofti hins
eðlilega lifs.
Efasemdir annarra
Hvað varðar það að kærastan þín og hugsanlega
aðrir eigi bágt með að skilja og átta sig á þessum
sérkennilegu þáttum tilveru þinnar er þetta að segja.
Dulræn skynjun er eitthvað sem erfitt er að ætlast til
að þeir sem ekki upplifa svipaða reynslu eigi auðvelt
með að trúa að eigi sér stoð i raunveruleikanum.
Þannig reynsla er alltaf einkaupplifun þess sem hana
finnur eða skynjar. Það sem við getum ekki tengt eig-
in raunveruleikaskynjun gerir okkur fremur fráhverf
og tortryggin á þannig skynjun annarra. Við getum
ekki sett okkur fyllilega inn í það sem gerist í hugar-
heimi eða tilfinningalífi annarra, jafnvel þó við séum
að öðru leyti nátengd viðkomandi.
Það er þvi ekki sanngjarnt að áfellast kærustuna
þína þó hún efist um þann veruleika sem þú einn
upplifir. Hún getur aftur á móti - með auknum skiln-
ingi og trúlega ef hún verður þess áskynja að það
sem þú upplifir kemur fram - meðal annars lært að
umbera og virða þessa sérstöku og áhugaverðu eig-
inleika þína. Mundu bara, elskulegur, að góðir hlutir
gerast hægt og allri nýrri reynslu þarf að venjast og
aðlagast. Kærastan þín er engin undantekning frá
þeim gullna sannleik.
Ömurlegra væri hins vegar ef þú sjálfur, sem skynj-
anirnar upplifir, værir fráhverfur þeim eða hafnaðir
þeim hreinlega. Það myndi einfaldlega gera þér mjög
erfitt fyrir því þú ert sýnilega sálrænn og verður það
hvort sem þér líkar eða ekki. Hins vegar er sennilegt
að eftir því sem þú þroskast meira og styrkist sem
manneskja verði mun auðveldara fyrir þig að sættast
á þessa þætti tilveru þinnar, jafnvel þó þeim fylgi
óþægindi á stundum. Líklegt er nefnilega að þeir
verði þér fremur til styrktar og blessunar þegar frá
liður, sérstaklega ef þú berð gæfu til að efla það sem
er jákvæðast og heilbrigðast í eigin sálartetri.
Lífshlutverk
Þú hefur kosið að starfa sem þjónn og það er vissu-
lega jákvætt eigi það hug þinn og áhuga. Hitt er svo
annað mál að næmur einstaklingur eins og þú kemur
til með að finna meira fyrir mögulegum óþægindum
af til dæmis drykkjuskap sem oft tengist skemmtana-
lífi fólks og þjónar upplifa öðrum stéttum fremur í
meira návígi en þeim kannski að minnsta kosti sum-
um getur reynst hollt.
Með tilliti til þess að faðir þinn hefur átt við áfeng-
isvandamál að stríða í gegnum tíðina eru ákveðnar
líkur á að um mögulega erfðaþætti sé að ræða. Sé
svo er full ástæða til að benda þér á að umgangast
vín með varkárni hvað snertir mögulega neyslu þína.
Þú ert líka sálrænn og af þeim ástæðum einum og
sér ættir þú einfaldlega aldrei að nota vín. Vínneysla
veikir vilja neytandans og opnar oftar en ekki þann
sem neytir.
Þú ert opinn og næmur fyrir og þess vegna óhent-
ugt að skapa sjálfur möguleika á frekari opnun sál-
rænna þátta þinna með áfengi. Viljinn er nefnilega
mikilvæg vörn dulræns einstaklings sem komast vill
hjá áhrifum sem eru óþægileg eöa óæskileg og jafn-
vel i eðli sínu neikvæð. Þessar vangaveltur læt ég
fljóta með til umhugsunar fyrir þig vegna framtíðar
þinnar og kannski annarra sem svipað er ástatt hjá
og þér.
Manngerð og möguleikar
Ef við að lokum íhugum manngerðina og hugsanlega
möguleika þína í gegnum innsæi mitt kann eitthvað
það að koma fram í þeirri úttekt sem hugsanlega get-
ur auðveldað þér frekari skilning á eigin ágæti. Þú ert
skemmtilega opinn og sveigjanleg manngerð félags-
lega og átt örugglega eftir að verða vinsæll í leik sem
Getur verið að þetta séu tilviljanir eða eru
þetta hrein og klár hugboð, spyr bréfritari,
sem sættir sig ekki fyllilega við næmleika
sinn og segir hann á stundum gera sig
ofsalega hræddan!
starfi. Hugarflug og framkvæmdaþrá eiga eftir að efl-
ast með þér, trúlega þegar þú kemst á fertugsaldur. I
framhaldi af því er mjög sennilegt að þú kunnir að
framkvæma einhvers konar þrekvirki sem gæti borið
ríkulegan ávöxt.
Þú ert fremur lokuð manngerð tilfinningalega og átt
sennilega nokkuð erfitt með að standa í útskýringum
á dýpri þáttum tilfinningalífs þíns. Þessum veikleika
væri gott að reyna rækta sig frá og snúa smátt og
smátt upp í andhverfu sína, sérstaklega með tilliti til
einkalífs. Þú virðist ekki beint hneigður til verklegra
þátta tilverunnar og gætir komist í verulega klípu við
það eitt að skipta um dekk á bíl. Það sem þú gætir
fengið áhuga á hverju sinni grípur sennilega hug þinn
allan þannig að lítið svigrúm kynni að finnast i hug-
skoti þínu fyrir annað á meðan. Best er sennilega fyr-
ir þig að afmarka athafnasvið þitt og varast að ætla
þér of marga hluti í framkvæmd á svipuðum tíma. Þú
ert trúlega óþarflega þrjóskur á stundum og átt senni-
lega býsna erfitt með að horfast í augu við eigin
mistök. Þetta gæti valdið tímabundnum erfiðleikum í
samskiptum, sérstaklega í einkalífi.
Tónlist gæti verið þér hugleikin og ekki ósennilegt
að á þvf sviöi hafir þú einhverja hæfileika. Dulargáfur
eru augljósar i upplagi þínu og af þeim ástæðum er
hyggilegt að rækta innra líf sitt jafnhliða ytri tilveru
þinni. Eftir þvi sem þú eldist meira verður þú fast-
heldnari á form og hefðir og kemur til með að vilja
virka stöðugur og traustur einstaklingur, sem aðrir
bæði virða og taka mark á. Þú þarft sennilega að
gæta vel að mjóhryggnum og forðast það sem gæti
mögulega valdið erfiðleikum í baki.
Dýr og sjór eru sennilega ofarlega í huga þinum og
þú sækir trúlega félagsskap og frið í hvort tveggja af
og til. Tækifæri verða mörg í lifi þínu og sennilega
flest þess eðlis að þau krefjast skjótra ákvarðana
sem þú ættir að eiga sérlega auðvelt með að fram-
fylgja. Þú ert sterkur í bland við nokkuð heppilega
viðkvæmni sem mun gera þig annars vegar úthalds-
góðan og hins vegar næman á mannleg samskipti.
Eins og þú sérð, elskulegur, er eitt og annað býsna
áhugavert í manngerð þinni og möguleikum. Það er
því full ástæða fyrir þig að líta björtum augum til fram-
tíðarinnar og óttalaust sýnist mér. Eða eins og gamli
hásetinn sagði eitt sinn af gefnu tilefni í góðra vina
hópi: „Elskurnar mfnar, það kom nú fyrir að mað-
ur varð bæði sjóhræddur og myrkfælinn hér á
árum áður og ekkert við það að athuga. Verra var
þó þegar maður gleymdi að byggja upp sjálfs-
traustið og trúarþelið. Á þessum árum hafði mað-
ur áhuga fyrir góðu ytra Iffi og vann eins og þræll
en láðist að reikna með innra lífinu, af því að
maður fékk ekki krónu í vasann f þannig vinnu-
púli. Hér sit ég því nfræður og kenni mér
guðsótta og góða siði og hefur reyndar aldrei lið-
ið betur. Þó verður að segjast elns og er að held-
ur svitnar maður oft mikið, nokkuð sem ekki hefði
gerst ef maður hefði gert sér nógu snemma grein
fyrir þvf að hamingja og sálarró fást ekki fyrir
andvirði þorskhausa heldur f gegnum góða
breytnl."
Guö styrki þig í staðfastri trú á tilgangsrlkt Iff og
gefi þér vilja til að efla það sem best er og jákvæðast
í eigin fari.
Með vinsemd,
Jóna Rúna.
19. TBL 1991 VIKAN 41