Vikan


Vikan - 19.09.1991, Side 42

Vikan - 19.09.1991, Side 42
SMÁSAGA EFTIR ODD SIGURÐSSON ........ ........ ÉMk<k Þráinn hafði oft hugleitt að fá sér hártopp eða mottu ofan á hvirfilinn en ekki þorað að láta verða af því — fyrr en einn góðan veðurdag... rjátíu og fimm ára, hugsaði Þráinn með hryllingi. Hann færði andlitið alveg upp að speglinum og setti stút á munninn. Ómögulegt, gjör- samlega ómögulegt, sagði hann upphátt við sjálfan sig um leið og hann færði andlitið snarlega frá aftur. Há kollvikin og þunnt hárið stakk illa í stúf við annars unglegt andlitið. Hann setti hendurnarað höfðinu og lét þær nema saman uppi á kollinum. Ég yrði gjörsamlega hræðilegur ef ég missti allt hárið, hugsaði hann dapur. Hér á árum áður hafði honum aldrei komið til hugar að það ætti fyrir honum að liggja að missa hárið. Hann - Þráinn Sveinsson - hefði þá sennilega hugsað sig dálítið um áður en hann lét háðsyrðin fjúka til þeirra sem við slík vandamál áttu að stríða. Skondnu vísurnar og skallabrandarana, sem hann hafði átt drjúgan þátt í að búa til, mátti nú ef vildi nota gegn honum sjálfum. Hann roðn- aði örlítið við tilhugsunina. Þannig vildi það einmitt oft verða. Þegar allt loft var þrotið úr manni sjálfum gat minnsta vindhviða feykt manni um koll. Þráinn hafði oft hugleitt að fá sér hártopp eða mottu ofan á hvirfilinn en ekki þorað að taka af skarið og láta verða af því. Ef einhver minntist á að hár hans væri tekið að þynnast varðist hann með þvi að slá fram kenningunni um að kyntröll væru sköllóttust allra skalla. Þangað sigldi hann hraðbyri. Hann fylgdist samt í laumi með þeim sem hann vissi að skörtuðu viðbótarhári en síðastur allra var hann til þess að samgleðjast viðkomandi væri hann spurður álits. Það fór lika dálítið í skapið á honum þegar hann horfði upp á það að þess- ir fírar, sem hann á árum áður hafði skotið sem mest á, voru í framgangi til yngri kvenna miklu harðari naglar en hann hafði nokkurn tíma ver- ið með allan lubbann. Það var engu líkara en bleðillinn á hausnum á þeim drægi að sér kvenfólk. Þráinn Sveinsson færði andlitið enn einu sinni upp að speglinum og horfði í glamp- andi augu sín. Hann hafði tekið ákvörðun. Á morgun ætlaði hann að tala við Gilla rakara. Rakarastofan hans Gilla var stór og fallega búin húsgögnum úr dýrasta leðri. Þráinn gekk inn og skimaði vandræðalega í kringum sig. Ung og fönguleg stúlka gekk til móts við hann. Átt þú pantaðan tíma? Já, svaraði Þráinn hálf- utangátta. Stúlkan fletti upp í bók og leit á Þráin. Hjá hverjum? Þráinn sá að augu hennar staðnæmdust á þunnu hárinu. Hann ætlaði að svara en stúlkan tók af honum orðið. Hjá Gilla, er það ekki? Jú-ú, stundi Þráinn. Hvert er nafnið? Þráinn reyndi að ræskja sig. Práinn Sveinsson - ég meina. Hann þurfti ekki að leiðrétta sig, það gerði hún fyrir hann. Hann fann að bolurinn var farinn að límast við hrygg- lengjuna. Gjörðu svo vel að fá þér sæti, sagði stúlkan og benti honum á dýrindis leðursófa. Gilli verður laus rétt bráðum. Má ekki bjóða þér kaffisopa. Jú, þakka þér fyrir. Þráinn reyndi að herða upp hugann. Hann settist í sófann og lét augun hvarfla um stof- una. Hann sá beint aftan á þrjá stóla og rakar- ar fóru léttum höndum um jafnmarga hárprúða hausa. Hann sá í speglinum að viðskiptavinir þeirra störðu glottandi á hann. Glottið bara, sköllóttu skrattar, ég sé í gegnum þetta hjá ykkur. Það er bara verið að klippa í kringum bieðilinn á ykkur, minna má nú sjá - ahaa. Þráinn reif stólpakjaft í huganum. Hver af þessum rakaratittum skyldi nú vera Gilli? Þrá- inn reyndi að geta sér til um það en gat engan veginn greint rödd mannsins sem hann hafði talað við í símann. Kaffið, gjörðu svo vel. Þráinn brosti stirðlega til stúlkunnar þar sem hann náði ekki hörkunni af andlitinu. Það fer alveg að koma að þér, sagði hún eins og í tilraun til að laga svipinn á honum. Þráinn saup á kaffinu og lagði bollann hægt frá sér á sófaborðið. Hann hafði vart taugar til að kyngja, var hálft í hvoru að hugsa um að hætta við allt saman og hlaupa út. Þá opnuðust dyr til hliðar við speglana og tveir menn kvöddust þar með handabandi. Annar þeirra gekk að afgreiðslukassanum og tók upp veskið. Þráinn fylgdist grannt með honum og skoðaði höfuð hans vandlega. Nei, þessi er meö ekta, hugsaði hann. Hann varð þess ekki var aö hinn maðurinn gekk til hans. Þráinn Sveinsson! Hjartað í Þráni tók kipp. Já, það er ég. Hann stóð snöggt upp. Maður- inn rétti fram höndina. Komdu sæll, Þráinn. Ég er Gilli. Þráinn þurrkaði svitann úr lófanum utan í buxurnar sínar og heilsaði. Hann fann að handtakið var traust og maöurinn allur hinn góðlegasti. Þráni létti. Komdu nú hérna inn fyrir meö mér og hafðu bara kaffibollann með þér. Við skulum spjalla saman. Þegar inn kom fann Þráinn að þarna var allt annað andrúms- loft. Það var ekki ólíkt því að ganga beint úr stórri verslunarmiðstöð inn í búö kaupmanns- ins á horninu. Þarna var skrifborð og stóll höndlarans annars vegar og eins konar smækkuð útgáfa af rakarastofu hins vegar. Gilli bauð Þráni sæti við skrifborðið og settist andspænis honum. Jæja vinur, þú er að hugsa um að gera eitthvað í málinu? Þráinn varð svo- lítið vandræðalegur. Já, það var víst meiningin að láta teppaleggja - ehee. Gilli leit föðurlega á hann. Þetta er nú ekkert til að hafa í flimting- um, síður en svo. Hann rétti Þráni nokkra bæklinga yfir borðið. Skoðaðu þetta, vinur minn. Sjáðu muninn á þessum mönnum fyrir 42 VIKAN 19. TBL 1991

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.