Vikan


Vikan - 19.09.1991, Síða 51

Vikan - 19.09.1991, Síða 51
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL NNS/EISNEISTAR YTNI Ytni af ýmsum toga getur farið töluvert í taugarn- ar á flestum. Ef um ný kynni er að ræða getur ýtni valdið vandræðum, sérstak- lega ef við nánast límum okkur hvert á annað eins og ókeypis frímerki í fyrstunni. Fáum finnst fengur í viðkynningu sem er of skjót að fá aukið líf og umfang í lífi okkar og til- veru. Gott er aö gera sér grein fyrir því að allur óþarfi í þessum ágætu efnum er frem- ur hnekkur en hitt fyrir gott mannlíf. Reynsla okkar flestra er að góðir hlutir gerast hægt. Það á ekki síst við þegar ný kynni eru á döfinni. Einstaka mann- eskja áttar sig ekki á þeim hvimleiða ávana sem felst f ótæpilegri ýtni og sem óneit- anlega getur verið óþægileg fyrir þann sem upplifir. Aftur á móti getur sú eða sá hinn sami átt mjög auðvelt með að greina ýtni sem beinist að eigin ágæti af annarra manna völdum. Oft er það svo að ef við girn- umst eitthvað öðru meira ligg- ur okkur Iffið á að seilast eftir því. Þá erum við stundum óþarflega fylgin okkur og of framhleypin, sem vissulega fellur undir ýtni. Ýtni kann að vera réttlætanleg, jafnvel nauðsynleg þegar um er að ræða baráttumál sem varða mögulega heill og hamingju okkar eða annarra. Ýtni er ill- þolanleg ef hún fellur undir einhvers konar siðleysi. Vissu- lega verður oft á tíðum að fylgja vilja sínum mjög ákveðið og markvisst eftir í ákveðnum málum, en af öllu má of mikið gera. Fólk í þjónustugreinum ým- iss konar finnur oft illþyrmilega fyrir óþarfa ýtni viðskiptavina. Fólk telur þá eigin þarfir ann- arra þörfum mikilvægari og ýtir af þeim ástæðum fullfrekju- lega á eftir óskum sínum, veldur vandræðum ef ekki er nógu hratt og fagmannlega gengið til verks eftir atvikum að mati þess ýtna. Hafa ber í huga ( þessum efnum sem öðrum að aldrei er hægt að uþþfylla nákvæmlega allar óskir okkar, hvort sem er í þessum efnum eða öðrum og ekkert við það að athuga. Bið- lund er prýði í fari fólks og gjarnan mætti bóla mun meira á þeim ágæta eiginleika þegar kemur að því að þiggja hvers kyns þjónustu. Eigingjörn ýtni hefur oftast I för með sér einhverja tegund tillitsleysis. Aðgát er mikilvæg manna á milli. Mögulega má flokka alla óþarfa ýtni undir ég- hyggju einhvers konar, sem liggur tæpitungulaust í ofmati á eigin þörfum en vanmati á annarra. Öll óþarfa ýtni er því til lítillar prýði ( fasi og fram- komu okkar hvert við annað og hana nú. □ PLAYBOY PLAYBOY > \Vn - LTLIT SF. HEILDVERSLUN Bíldshöfða 14 - Sími 671465

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.