Vikan - 19.09.1991, Blaðsíða 52
TEXTI OG MYNDIR: JÓHANN GUÐNI REYNISSON
ALÍS MEÐ BEINT FLUG TIL
Enska borgin Newcastle fengi varla
verðlaun fyrir frumleika í nafngift. Hún
er nefnd eftir kastala nokkrum sem
var nýr fyrir rúmlega níu hundruð
árum og stendur enn. Borgin heldur
nafninu þó að kastalinn verði að teljast nokkuð
við aldur. Það verður að viðurkennast að ég
vissi ekki mikið um borgina annað en að hið
fornfræga knattspyrnulið, sem við hana er
kennt, leikur í KR-búningum og var einu sinni
eitt af bestu knattspyrnuliðum Englands. Nú
leikur liðið reyndar í 2. deild en eins og víðar
um landið snýst lífið mikið um boltaleikinn og
enn mæta um tuttugu þúsund manns á heima-
leiki. Tvö hundruð og áttatíu þúsund manna
borgin Newcastle reyndist hins vegar státa af
ýmsu fleira en svartröndóttum sparkköppum
og kom mér verulega á óvart þegar ég fór
þangað í stutta heimsókn fyrir skömmu.
„FORELDRAR" JÁRNBRAUTANNA
Það er ákaflega vinsælt í Englandi að kenna
borgir við ár og fljót sem þær standa við með
engilsaxneska orðinu „upon“. Til dæmis er tal-
að um Newcastle upon Tyne en borgin er
byggð meðfram bökkum árinnar Tyne. Borgin
gegndi áður fyrr hlutverki hjartans sem dældi
kolaförmum áfram um ána Tynes, þáverandi
lífæð Newcastle. Borgarbúar tóku einnig virk-
an þátt í iðnbyltingunni á 19. öld og borgin varð
miðstöð járnbrautaþróunarinnar, móðir járn-
brautanna segja sumir enda var George
Stephensson, „faðir" þeirra, búsettur þar.
Járniðnaður var einnig mikið stundaður í
Newcastle og þar voru einmitt smíðaðar burð-
argrindur Ölfusárbrúar.
MEÐ VOPNIN Á LOFTI
En snúum nú aftur úr fortíðinni og lítum á
Newcastle dagsins í dag. Borgin ber enn merki
þess að allt daglegt líf hafi snúist um að vera
sem næst ánni. Hún er öll byggð meðfram
henni, þéttur kjarni rauðra og brúnna múr-
steinshúsa í anda enskrar íhaldssemi og auð-
vitað er viktoríustíllinn einnig áberandi. Inni á
milli hvíla síðan ævafornar byggingar lúinn
Frh. á næstu opnu
52 VIKAN 19. TBL 1991
LJÓSM.: NW