Vikan - 14.11.1991, Side 6
TEXTI OG MYND: HJALTIJÓN SVEINSSON
SKYNDIDAUÐI UNGBARNA - FYRIRBÆRI SEM ENGINN GETUR SKÝRT
BYRJAÐI AÐ
GANGA KVÖLDIÐ
ÁÐUR EN HANN DÓ
aö er nokkuö algengt aö fréttir ber-
ist af þjakandi sorg á heimilum hér
á landi, þar sem ungbarn hefur lát-
ist í vöggu sinni fyrirvaralaust.
Margir þekkja dæmi þessa á meðal
kunningja eða ættingja eöa hafa haft fregnir af
slíku í gegnum þá. Leiða má að því líkur að
álíka mikið áfall sé fyrir foreldra að missa barn
sitt á þennan hátt og í slysi af einhverju tagi -
slíkt gerist fyrirvaralaust.
Fram að þessu hafa læknar ekki getað gefið
nákvæmar skýringar á orsökum skyndidauða
ungbarna, Sudden Infant Death Syndrom,
vegna þess að við krufningu kemur í raun ekk-
ert jrað í Ijós sem varpað gæti Ijósi á orsakirn-
ar. - Og verri er sú staðreynd að skyndidauði
ungbarna er nú talinn ein algengasta dánaror-
sök barna á aldrinum eins mánaöar til eins árs.
Margir foreldrar hér á landi hafa orðið fyrir
þungbærri sorg af þessum sökum en sjaldnast
hafa atburðir af þessu tagi farið hátt. Stundum
er ekki einu sinni um eiginlega jarðarför að
ræða og algengt er að litlu börnin séu lögð í
kistu hjá einhverjum fullorðnum sem dáið hefur
um sama leyti. Margir foreldrar kenna jafnvel
sjálfum sér um hvernig komið er þegar ung-
barn þeirra hefur látist í svefni og hugsa sem
svo: „Við hefðum átt að halda vöku okkar og
fylgjast betur með barninu." En það er ekki
ástæðan og enginn getur í raun útskýrt þetta.
Steinvör I. Gísladóttir er ein þeirra mæðra
sem komið hafa að barni sínu látnu í rúmi sínu
að morgni. Hún bjó þá á (safirði þar sem hún
hefur alið mestan aldur sinn. Hún býr nú í
Hafnarfirði og síöan þessi atburður átti sér
stað er liðið tæpt ár. Hún hefur valið þá leiö að
ræða opnum huga um reynslu sína við aðra.
Hún segir það hafa hjálpað sér mikið að geta
opnað sig og rætt um sorg sína. Hún kveðst
hafa áhuga á að miðla öðrum foreldrum af
reynslu sinni, foreldrum sem hafa staöið í
sömu sporum og hún. Við skulum gefa henni
orðið.
„Sonur minn var orðinn eins árs og níu vikna
þegar ég missti hann. Fyrst í stað datt engum
í hug að um vöggudauða hefði verið að ræða
þar eð barnið var orðið þetta stálpað. Það var
ekki falleg sjón sem mætti mér í rúminu hans
þegar ég vitjaði hans um morguninn. Hann var
orðinn svolítið blár í framan og sængin var vaf-
in um höfuð honum þar sem hann lá á magan-
um. Því skaut þeirri hugsun strax upp í höfði
mér að hann hefði kafnað - en svo reyndist
ekki hafa verið. Þetta gerðist aðfaranótt annars
jóladags og hafði ég litið á hann síðast um
þrjúleytið um nóttina. Þá var allt með felldu. Að
vísu þótti mér hann sofa óvenju vært og var ég
bara ánægð með það. Sem betur fór var ég
ekki ein heima með börnin þegar ég komst að
þessari voðalegu staðreynd. Kunningi minn,
sem kom í heimsókn, hafði vakið mig upp.
■ Ég var farin að halda
að þegar ég kœmi í
heimsókn til hans um
kvöldið yrðu lœknarnir
örugglega búnir að
lœkna hann, - hann hefði
bara verið veikur...
Um leið og ég sá drenginn varð mér Ijóst að
eitthvaö væri að. Ég tók hann strax upp - og
mér fannst hann allt í einu vera orðinn svo
ofsalega léttur, það var eins og hann væri tóm-
ur að innan. Ég hef oft hugleitt þetta síðan.
Hann var ískaldur viðkomu og ég hringdi undir
eins á sjúkrabíl og sagði hvers kyns var. Ég
hringdi líka í föður minn og stjúpmóður sem
bjuggu í nágrenninu - ég gat reitt mig á þau í
þessu tilviki eins og endranær. Þau voru mér
ómetanleg hjálp, ég veit ekki hvar ég væri
núna ef þeirra hefði ekki notið við. Ef ég heföi
búið hér syðra þegar þetta kom fyrir hefði ég
örugglega ekki komist svona vel í gegnum
þessa reynslu.
Áni ÉG SÖK Á DAUÐA BARNSINS?
Mér fannst líöa heil eilífð þangað til lögreglan
kom en hún kom nokkru á undan sjúkrabíln-
um. Rannsóknarlögreglan bættist í hópinn,
presturinn og læknir. Ég hafði borið drenginn
innan úr svefnherbergi og lagt hann í stofusóf-
ann. Ég gat samt ekki verið þar, ég þorði það
ekki, ég var hálfhrædd. Ég vildi heldur ekki
horfa upp á hann svona, ég ætlaði að muna
hann eins og hann var á meðan hann lifði. Mér
fannst hver mínúta eins og dagur og þegar
rannsóknarlögreglan kom fékk ég allt í einu á
tilfinninguna að þetta væri allt mér að kenna.
Tekin var nákvæm skýrsla af mér og ég síðan
beðin leyfis að drengurinn yrði krufinn í
Reykjavík. Fyrst í stað leist mér ekkert á hug-
myndina. Mér fannst það hálfkaldhæðnislegt
af yfirvöldum að biðja mig um krufningu á
barninu - eins og ég ætti sök að dauða þess,
hefði byrlað því eitthvað til dæmis.
Læknirinn spurði mig strax hvort drengurinn
hefði borðað eitthvað sérstakt daginn áður en
svo var ekki. Mér flaug þá allt í einu í hug að
faðir hans hafði verið flogaveikur og læknirinn
gat sér þess þá til að ef til vill hefði barnið feng-
ið flogaveikikrampa um nóttina og kafnað af
þeim sökum. Þá vaknaöi reiði í brjósti mér
gagnvart föðurnum - á þessum augnablikum
réð ég ekkert við tilfinningar mínar sem brutust
út, þetta var ótrúlegt.
Ég átti heima í tveggja hæða húsi. Á neðri
hæðinni bjó eldri kona og ég gat farið með
dótturina til hennar á meðan sjúkrabíllinn var á
leiðinni. Ég gat ekki hugsað mér að láta barnið,
sem var tveggja ára, verða vitni að því sem
þarna fór fram.
HÉLT AÐ HANN GÆTI LIFNAÐ VIÐ
Þennan sama dag var farið með hann á sjúkra-
húsið heima á ísafirði. Presturinn tjáði mér að
ég gæti komið þangað um kvöldið og séð hann
áður en farið yrði með hann til Reykjavíkur. í
millitíðinni var hugur minn mjög á reiki og ég
vissi varla lengur hvaö ég hét. Ég var farin að
halda að þegar ég kæmi í heimsókn til hans
um kvöldið yrðu læknarnir örugglega búnir að
lækna hann, hann hefði bara verið veikur -
meðvitundarlaus, i losti eða eitthvað því um
líkt. Um kvöldið fór ég ásamt stjúpmóður minni
á sjúkrahúsið. Þar stóðum við hjá honum og
grétum. Presturinn sagði að ég mætti klippa
lokk úr hári hans til minningar og það gerði ég.
Ég er með hann inni í rammanum utan um síð-
ustu myndina sem tekin var af honum - á að-
fangadagskvöld við jólatréð. Ég reyndi að
nudda hann og hlýja honum, hann var ennþá
svo kaldur. Það var samt mikill friður yfir hon-
um og hann var mjög fallegur.
JARÐAÐUR HJÁ LANGÖMMU SINNI
Daginn eftir var farið með hann til Reykjavíkur.
Mér var sagt að hann ætti að koma aftur vestur
6 VIKAN 23. TBL. 1991