Vikan - 14.11.1991, Blaðsíða 57
EIGINKONA
HARRISONS FÓR
HL CLAPTONS
Þeir félagar kynntust þegar
Harrison var í Bítlunum og Eric
Clapton var í The Yardbirds
(Clapton var í The Yardbirds á
árunum 1963-65). Það er sem
sagt mjög langt síðan. Sam-
band þeirra hefur verið gott all-
an tímann þó ýmislegt hafi
gengið á. Hápunkurinn hlýtur
þó að hafa verið þegar eigin-
kona George Harrrison, Pattie
Boyd, yfirgaf hann og giftist Eric
Clapton. Hefur það ekki áhrif á
vinskap þeirra og veldur
spennu í samskiptum þeirra?
„Alveg ótrúleg," segir
Clapton. „Við spólum hvor ann-
an upp og það er alltaf eitthvað
pínulítið villimannalegt f sam-
raeðum okkar. Þetta hafði mikil
áhrif á okkur þrjú og þau áhrif
dvína aldrei. Núorðið hugsum
við hvor til annars án tillits til
þessa. Þetta var samt sem áður
tímanna tákn að vissu leyti,"
segir Clapton. Hann giftist Patt-
ie árið 1979 en þau skildu ára-
tug síðar.
TVÖFÖLD HUÓM-
LEIKAPLATA
Þrátt fyrir skrautleg samskipti
og vandræði með vín og dóp
eru báðir þessi kappar í fullu
fjöri og fyrir skemmstu kom út
platan 24 Nights með Eric
Clapton. Þetta er skífa sem var
tekin upp á þessu ári og í fyrra
í The Royal Albert Hall í
London þar sem Eric Clapton
spilaði tuttugu og fjögur kvöld í
röö. Hann kom fram ýmist með
fjóra, fimm eða sex aðstoðar-
menn og það voru engir smá-
kappar: Greg Phillinganes
(hljómborð), Buddy Guy (gftar),
Robert Cray (gítar) og Jimmy
Vaughan (gítar), bróðir Stevie
Ray Vaughan gítarleikara sem
lést eftir sviplegt þyrluslys fyrr á
árinu. Þetta eru aðeins gítar-
leikararnir á plötunni en einnig
eru á henni lög þar sem goðið
nýtur undirleiks The National
Philharmonic Orchestra undir
stjórn hins þekkta kvikmynda-
tónskálds Michaels Kamen.
Á 24 nóttum er að finna flest-
ar perlur Claptons, bæði frá
sólóferli hans, til dæmis Wond-
erful Tonight (fyrrnefnd Pattie
Boyd er hvatinn að því lagi,
sem og laginu Layla sem ekki
er á plötunni) og einnig eldri lög
sem hann gerði fræg með
Cream, eins og White Room og
Sunshine of Your Love. Þetta
er dúndurgóð tónleikaplata frá
kappanum og enginn unnandi
hans ætti að láta hana fram hjá
sér fara.
Eric Clapton er staðráðinn f
að gefa út nýja plötu sem hann
tileinkar syni sínum. Hann er
þegar byrjaður að vinna að
henni en segir að alltaf sé
eitthvað að koma upp sem tefji
hann. Platan verður um þau á-
hrif sem sonur hans, Conor,
hafði á líf hans og verður ann-
aðhvort um hann beint eða til-
einkuð honum. Fyrst er það
tónleikaferð Claptons og Ge-
orge Harrison sem hefst í Jap-
an núna í desember. Slæmt að
eiga ekki heima í Japan!
BRÚSI í
MÁLAFERLUM
Rokkstirnið „fæddur í
USA“, Bruce Spring-
steen, er nú að jafna
sig eftir málaferli sem hann
hefur staðið lengi í. Málinu
lauk með dómsátt um það bil
viku áður en það átti að fara
^ fyrir dómstóla.
O Þannig er mál með vexti að
tveir af róturum Brúsa lögsóttu
Hcj hann fyrir að borga þeim ekki
o; yfirvinnu þegar þeir voru með
honum á „Born in the U.S.A."
-E- hljómleikaferðinni sem hann
< fór um miðjan síðasta áratug!
§ Þó fengu þeir samtals um
=3 225.000 dollara (þrettán og
.. hálfa milljón íslenskra króna) í
bætur vegna samningsrofsins.
Bruce Springsteen ákvað
svo að leggja fram ákæru
gegn þeim eftir að upp komst
að annar rótarinn hafði stolið
snældum með lögum, minnis-
bókum og textum Brúsa - og
selt fyrir 28.000 dollara (tæpar
tvær milljónir íslenskar). Ekki
er vitað nákvæmlega hvað
fólst í dómsáttinni en talið er
að rótararnir hafi fengið tiltölu-
lega lága peningaupphæð í
viðbót. Annars er það að frétta
af Brúsa að ný plata er áætluð
í desember. Á myndinni má
svo sjá Springsteen-fjölskyld-
una spássera í New Jersey.
Patti Scialfa heldur á pelanum
og keyrir vagninn sem sonur-
inn Evan Springsteen, „baby
Boss“, er í.
POUR HOMMES!
JOOP!