Vikan - 14.11.1991, Blaðsíða 41
TEXTI: ÞORSTEINN ERLINGSSON
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
OFRISK?
Svarið viö spurningunni
um það hvort kona er
ófrísk eða ekki er eitt
það afdrifaríkasta í lífi hennar.
Þegar sú spurning hefur komið
fram er mjög mikilvægt fyrir
viðkomandi að fá svariö sem
fyrst og ekki slður að hægt sé
að treysta því að það sé rétt.
Nú er það liðin tíð aö eini
möguleikinn til að fá lausn
sinna mála í þessum efnum sé
aö fara með þvagprufu í apó-
tek, hitta þar kannski vini og
kunningja og þurfa að útskýra
hvað sé á seyði og bíða svo
klukkutímum skiptir eftir þess-
ari afdrifaríku niðurstöðu.
Þróun í tækni og vísindum
hefur leitt af sér lítið, hand-
hægt og einfalt próf sem kon-
an getur framkvæmt sjálf hvar
sem henni hentar og fengið
niðurstöðuna næstum sam-
stundis og svo til hundrað
prósent örugga. Eitt þessara
prófa er það sem kallað er
Predictor, hannað af hollenska
fyrirtækinu Chefaro Internatio-
nal B.V. en Lyf hf. sér um inn-
flutning á því hér á landi.
Prófið er mjög einfalt í
framkvæmd. Þvagi er komið
fyrir í hreinu og þurru glasi.
Hetta er tekin af staf sem er
eins og penni í laginu. Þynnri
enda hans er síðan stungið
ofan í glasið. Tveir gluggar eru
á stafnum, annar hringlaga og
hinn ílangur. Fljótlega sést
rauður litur færast upp á við í
gluggunum þangað til þeir eru
báðir orðnir rauðir. Innan
fjögurra mínútna mun sá neðri
og ílangi annaðhvort verða
hvítur eða haldast rauður.
Verði hann hvltur er ekki um
þungun að ræða en sé hann
rauður, jafnvel þó liturinn sé
daufur, að þrem til fjórum mín-
útum liðnum er viðkomandi
kona ófrísk. Efri, hringlaga
glugginn verður alltaf rauður.
Hann sýnir að prófið hafi verið
rétt framkvæmt og er einnig til
litaviðmiðunar. Fljótlegra og
einfaldara getur þetta ekki
verið.
Predictor-prófið nemur svo-
kallað HCG-hormón (human
chorionic gonadotrophin
hormon) sem kemur fram í
þvagi konunnar á fyrstu t
dögum meðgöngunnar. (
því eru notuð sérstök
gullefnasambönd sem eru
Þú ert ekki þunguð ef rauði
liturinn í glugga B er horfinn að
fjórum mínútum liðnum.
Þú ert örugglega þunguð ef
rauður litur er enn í glugga B
eftir fjórar mínútur. Liturinn í
glugga A gefur aðeins til kynna
að prófið hafi verið rétt
framkvæmt.
sérstaklega næm og
stööug og nema horm-
ónið jafnvel þann fyrsta
dag sem konan ætti að
hafa á klæðum. Auk
þess tryggir sú aðferð
sem beitt er við prófið
að svo til engin hætta
sé á að eitthvað fari úr-
skeiðis. Það er til dæm-
is engin hætta á að
þvag slettist á gluggana
því ekki þarf að setja
Predictor-stafinn undir
þvagbunu. Einnig er
rakadræga efnið í stafn-
um það öflugt að ekki
skiptir máli I hvaða
stöðu hann er meðan
beðið er eftir niðurstöð-
unm.
Morgunþvag er ekki
nauðsynlegt við Pre-
dictor-prófið og því
hægt aö framkvæma
það hvenær sem er
dagsins. Þess má geta
að nú er hægt að fá
prófun gerða í
apótekum meðan
beðið er, fyrir
þær sem vilja
það heldur. □
P/MMA
snvrtistofa
EINARSNESI 34, 101 REYKIAVlK,
SlMl 12066
ERLA GUNNARSD ÓTTIR
SNYRTIFRÆÐINGUR
■ meðlimur í
félagi ísl. snyrtifræðinga.
SólbadstoTan
Laugavegi
NÝJAR COSMOLUX RS PERUR
OPIÐ
Virka daga 08.00 - 22.00
Laugardaga 09:30-19.00
Sunnudaga 11:00 - 17:00
LAUGAVEGI 99
Símar 22580 og 24610
Hársnynistofan
Hár-Tískan
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 50507
ANDLITSBÖÐ,
HÚÐHREINSUN,
LITUN,
FÓTSNYRTING,
HANDSNYRTING
DAG- OG
KVÖLDSNYRTING
V AXMEÐFERÐ
TISKUFATAEFNI
OG ALLT TIL SAUMA
■ Snið og efni í
jólafötin.
Gardínuefni.
Heimilis- og gjafavara.
'JJ Verslunin INGA
squmqveiuia! HAMRABOs^^iK2ÓPAVOGI
23. TBL. 1991 VIKAN 41