Vikan - 14.11.1991, Blaðsíða 20
TEXTI OG MYND: HJALTIJÓN SVEINSSON
N Ý BREIÐSKÍFA KOMIN ÚT MEÐ GÍSLA HELGASYNI
Gísli við störf sín í hljóöbókagerðinni, sem hefur afar sérstöku hlutverki að gegna.
Gísli Helgason hefur verið önnum
kafinn að undanförnu eins og
endranær. Hann starfar sem
forstöðumaður hljóðbókagerðar
Blindrafélagsins, þar sem fram-
leidd eru hljóðtímarit og hljóðbækur fyrir almenn-
an markað. Þegar hefðbundnum vinnutíma lýkur
tekur svo tónlistin við. Síðustu misserin hefur
hann gert víðreist með hljómsveit sinni, Island-
icu, en ásamt honum skipa hana eiginkona hans,
Herdís Hallvarðsdóttir, Ingi Gunnar Jóhannsson
og Eggert Pálsson, sem kemur I stað Guðmund-
ar Benediktssonar sem er I leyfi. Nýverið lagði
Gísli hins vegar lokahönd á aðra hljómplötu sína
sem nefnist Heimur handa þér og kom út þann
11. nóvember.
Blokkflautan hefur verið aðalsmerki Gísla í
tæp þrjátíu ár en þá hóf hann að leika á þetta
skemmtilega hljóðfæri úti í Vestmannaeyjum. Nú
er svo komið að vart kemur lengur út hljómplata
með íslenskri, þjóðlegri tónlist nema hljómurinn
úr blokkflautunni hans heyrist einhvers staðar á
meðal annarra hljóðfæra í undirleiknum, nú síð-
ast á plötunni íslandslög.
Undanfarin fjögur ár hefur Gísli fyrst og fremst
leikið með hljómsveitinni Islandicu, sem hefur
getið sér gott orð fyrir að kynna íslenska alþýðu-
tónlist víða um lönd og hefur hljómplatan þeirra,
Rammíslensk, selst í stóru upplagi. Á þessum
fjórum árum hefur hljómsveitin komið fram á um
áttatíu tónleikum erlendis. Þegar tíðindamaöur
Vikunnar náði tali af Gísla var hljómsveitin ný-
komin heim frá Finnlandi þar sem hún lék á nor-
rænum tónlistardögum.
„Við höfum óhjákvæmilega þurft að vera mikið
á ferðinni því í langflestum tilvikum hafa tón-
leikarnir verið erlendis. Þess má geta að í vor
komum við fram á tónlistarhátíð í Álaborg í Dan-
mörku og í sumar komum við Herdís fram á ráð-
stefnu um umhverfismál sem haldin var í Norr-
köbing í Svíðþjóð. Þar hittum við meðal annarra
Sinikku Langeland kanteleleikara, - en það er
finnsk harpa. Það varð til þess að hún kom hing-
að til lands í septembermánuði, lék með í einu
lagi á plötunni minni auk þess sem hún hélt tón-
leika í Norræna húsinu."
„RAMMÍSLENSK" GEFIN ÚT í
ÞÝSKALANDI
Gísli var spurður að því hvort þau væru eingöngu
með íslensk þjóðlög og aðra íslenska alþýðutón-
list á efnisskrá sinni. Hann sagði að þó svo að
tónlist af þvi tagi væri fyrirferðarmest léku þau
einnig eigin lög með í bland. „Við höfum lagtokk-
ur fram um að flytja góð og skemmtileg íslensk
lög, sem við köllum gjarnan alþýðuperlur. Gömlu
hefðinni höfum við líka reynt aö sýna sóma. Með-
al annars höfum við grafist fyrir um það hvernig
fimmundarsöngurinn var sunginn og leitast við
að fara rétt með hann. Hið þjóðlega yfirbragð hef-
ur átt sinn þátt í því að platan okkar, sem kom út
á síðasta ári, hefur selst mjög vel og kemur út í
Þýskalandi í lok þessa árs. Við vorum hvött til
þess að hafa samband við erlenda útgefendur.
Ingi Gunnar fór á milli fyrirtækja í Þýskalandi og
hafnaði loks á einu sem sérhæfir sig í tónlist af
þessu tagi. Það gefur plötuna út þar í landi undir
sínu merki. Þetta fyrirtæki teygir arma sína út um
allan heim. Þess vegna vonum við að platan eigi
eftir að ná nokkurri útbreiðslu erlendis og verði
okkur til framdráttar fremur en hitt.“
ALLTAF SAFNAÐ f SARPINN
Gísli hefur ávallt haft gaman af að leika tónlist.
En hann hefur ekki síður ánægju af að útsetja
hana og stjórna flóknum upptökum. Við laga-
smíðar hefur hann líka fengist og nokkur laga
hans hafa náð umtalsverðum vinsældum, eins
og Kvöldsigling til dæmis. Hann var beðinn um
að gera grein fyrir hinni nýju hljómplötu sinni sem
hefur að geyma frumsamin lög hans aö mestu
leyti.
„Lögin eru frá ýmsum tímum og hafa aðeins
tvö þeirra komið áður út á plötu. Ég hef ætlað
mér að gera þetta í mörg ár en ekki haft nægan
tíma til ráðstöfunar. Þetta efni mitt hefur ekki
komist að fyrir öðru sem ég hef verið að spila og
vasast í undanfarin ár - en ég hef safnað í sarp-
inn allan tímann. Þegar ég hitti Þóri Baldursson á
félagsfundi hjá FTT í vor, Félagi tónskálda og
textahöfunda, kviknaði sú hugmynd að hann sæi
um útsetningar á lögunum mínum og stjórnaði
síðan upptöku á fyrirhugaöri plötu. Mér þykir
honum hafa tekist afar vel upp og að mínu mati
útsetti hann lögin mjög smekklega. Gömlu lögin,
sem þarna eru og komið hafa út á plötum, eru
annars vegar Kvöldsigling og hins vegar lagið
Lennon. Þau hafa bæði verið útsett upp á nýtt og
má geta þess að hið fyrrtalda, sem áður var
sungið, ernú „instrumental", aðeins leikið. Þarna
eru einnig lög sem heyrst hafa áður þó þau hafi
ekki fyrr komið út á plötu eins og Ég er að leita
þín, sem komst í 6. sæti Eurovision-keppninnar
hér á landi í fyrra. Það er við texta eftir Ásgeir
heitinn Ingvarsson og sungið af Eyjólfi Kristjáns-
syni. Alls eru lögin fjórtán á plötunni og þar af tíu
eftir mig.“
SAMKÓR KOLBEINSEYJAR
Sagt hefur verið um Gísla að hann hafi óvenju
næmt tóneyra enda hefur hann alla tíð spilað eftir
eyranu. Hann skrifar heldur ekki nótur en engu
að síður hefur hann útsett bæði eigin lög og ann-
arra fyrir fjölmörg hljóðfæri og söngraddir. Hann
segir að á einhvern hátt fari tónlistin að hljóma í
höfði hans í öllu sínu veldi. Hann hefur því mikla
ánægju af því að fá ýmsa góða hljóðfæraleikara
til liðs við sig - eins og í Ijós kemur á nýju breið-
skífunni hans.
„Þegar ég hafði skrifað skrána yfir flytjendurna
komst ég að því mér til mikillar hrellingar að við
reyndumst vera þrettán, sem er óhappatalan
mín. Ég varð svolítið órólegur yfir þessu og bætti
tveimur við. Þannig var að við Þórir og Eyjólfur
höfðum sungið raddir í einu laginu. Okkur til full-
tingis notuðum við hljóðgervil af Roland-gerð
með gervi-kvenröddum. Við kölluðum þær Ro-
land-systur. Okkur saman, það er að segja okkur
Þóri og Eyjólf ásamt þeim systrum - kölluðum við
síðan Samkór Kolbeinseyjar. Þar með voru flytj-
endur orðnir fimmtán talsins og síðan hef ég get-
að sofið rólegur."
Gísli er ekki sestur í helgan stein þó svo að
platan hans sé nú komin út. „Við ætlum að stofna
hljómsveit til þess að fylgja plötunni eftir. Hvað Is-
landicu varðar mun hún halda áfram störfum og
höfum við meðal annars fengið nokkur boð er-
lendis frá um að koma fram á tónleikum á næsta
ári. Ný hljómplata er einnig í bígerð hjá okkur.
Annars er hljómsveitin í fríi um stundarsakir þar
eð við erum öll að gera eitthvað annað. Herdís er
að undirbúa útgáfu Ijóðabókar, Ingi Gunnar er að
vinna að eigin plötu og ég mun á næstunni leggja
aðaláherslu á að kynna nýju plötuna mína.“
20 VIKAN 23. TBL, 1991