Vikan - 14.11.1991, Blaðsíða 102
TEXTI: ÞÓRARINN JÓN MAGNÚSSON / LJÓSM.: BRAGI Þ, JÓSEFSSON
FIMMTUDAGSKVÖLDIÐ 2 1 . NÓVEMBER:
FORSÍÐUSTÚLKURNAR
KYNNTAR Á SVIÐI
- á glœsilegu kynningarkvöldi á Hótel íslandi
Mættar á æfingu í World Class. Leiðbeinandinn, Hafdís Jónsdóttir, er önnur frá vinstri i aftari röð.
nánar frá þessari meðferð.
Keppandinn okkar á Akureyri
verður ekki útundan þó vegalengd-
in skilji hana frá hinum keppendun-
um. Rannveig hefur flogið til
Reykjavíkur til að taka þátt í æfing-
um á sviði og á Akureyri nýtur hún
þjónustu Snyrtistofunnar Evu.
Æfingar og Ijósaböð stundar hún
hjá Stjörnuræktinni og Stjörnusól á
Akureyri.
Hár stúlknanna fyrir myndatökur
hefur Eyvi í Hárþingi greittog notar
hann þá hársnyrtivörur frá Matrix
og Joico. Förðunin hefur hins veg-
ar verið i höndum Kristínar Stef-
ánsdóttur og hefur hún jafnframt
leiðbeint stúlkunum við förðun.
Kristín notar snyrtivörur frá No
Name Cosmetics. Þau Eyvi og
Kristin munu að sjálfsögðu snyrta
stúlkurnar fyrir kynningarkvöldið
og krýningarhátíðina.
Verðlaunin, sem forsíðustúlkan
fær, eru umtalsverð, samtals
að verðmæti um eða yfir hálfa
milljón króna. Helmingurinn í
reiðufé, en afgangurinn í
ferðalögum, snyrtivörum, skart-
gripum, fötum og hljómtækjum.
Meðal annars má nefna tveggja
vikna ferð með Veröld til Costa del
Sol næsta sumar, en þangað fer
einnig stúlkan sem hafnar í öðru
sæti keppninnar. Við segjum nán-
arfrá verðlaununum í næstu Viku.
Nú er það sem sé kynningar-
kvöldið 21. nóvember sem er
næst á dagskrá. □
Iþessu tölublaði Vikunnar
er kynntur síðasti þátttak-
andinn í SAM-keppninni
um titilinn forsíðustúlka ársins
1991. Keppendurnir eru þá
orðnir átta talsins, allt einstak-
lega glæsilegar stúlkur. Þær
verða kynntar á sviði Hótel Is-
lands á sérstöku kynningar-
kvöldi fimmtudaginn 21. nóv-
ember næstkomandi. Sjálf
krýningarhátíðin fer svo ekki
fram fyrr en á galakvöldi á
sama stað annan dag janúar-
mánaðar.
Stúlkurnar leggja stund á lík-
amsrækt af miklu kappi í World
Class undir handleiðslu Hafdísar
Jónsdóttur allt fram á úrslita-
stundu. Á Hótel Islandi æfa þær
svo sviðsframkomu þar sem
Esther Finnbogadóttir frá Módel-
samtökunum leiðbeinir þeim.
En það er ekki allt upp talið. Vik-
an hefur fengið Academie snyrti-
stofurnar til að veita stúlkunum til-
sögn og aðstoð i húðrækt og
snyrtingu handa og fóta. Deila átta
stofur því verki á milli sín, ein stofa
mun annast hverja stúlku. I næsta
tölublaði Vikunnar verður sagt
Laufey og Ásdis slá ekki af í
æfingasal World Class.
102 VIKAN 23. TBL. 1991