Vikan - 14.11.1991, Blaðsíða 15
voru á hinn bóginn kallaðir „spenamenn“.
Málalyktir urðu þær að enginn styrkur fékkst
og menn borguðu fargjöld sín sjálfir.
ELLEFU SINNUM KOMIÐ TIL ÍSLANDS
Tveir stórir hópar Vestur-íslendinga, á fimmta
hundrað manns, komu til Islands og voru við-
staddir Alþingishátíðina á Þingvöllum árið
1930. Þetta voru fyrstu skipulögðu hópferðirn-
ar til Islands frá Kanada og jafnframt fyrsta
ferð Sigurðar til gamla landsins.
„Við fórum með lest til Montreal og síðan
með skipi þaðan til íslands og tók ferðin sex
daga," segir Sigurður. „Ég ferðaðist mikið um
landið og fór meðal annars til Hornafjarðar,
þaðan sem móðir mín er ættuð. Það sem ég
undraðist mest í þessari fyrstu ferð var hve fáir
áttu dráttarvél og hve hand- og hestafl var
ennþá mikið notað við landbúnaðarstörf á ís-
landi. I Kanada voru vélar búnar að leysa
hesta af hólmi við heyskap og hirðingu á þess-
um árum.
Mér hefur alltaf fundist fallegt á Islandi enda
hef ég komið þangað tíu sinnum síðan árið
1930. Síðast kom ég til Islands í fyrra og ég
hef auðvitað séð miklar breytingar á landinu á
þeim sextíu árum sem liðin eru síðan ég kom
fyrst. Heilsa mín verður að ráða hvort ég á eftir
að fara tólftu ferðina yfir hafið.“
ÞJÓÐERNISKENND í BLÓD BORIN
Þegar litast er um í íbúð Sigurðar gefur bókum
hlaðið skrifborð hans til kynna að hann situr
ekki auðum höndum þótt æviárin fylli brátt níu
tugi.
„Ég fæst töluvert við þýðingar á Ijóðum og
textum. Núna hef ég nýlokið við að snúa
nokkrum Ijóða Guttorms J. Guttormssonar yfir
á ensku, að ósk dóttur hans. Um þessar mund-
ir er aldarfjórðungur síðan Guttormur lést og af
því tilefni ætlar dóttir hans að gefa út hluta af
verkum hans á ensku. Guttormur bjó á bökk-
um Islendingafljóts í Nýja-íslandi og Ijóð hans
voru mikið lesin af íslendingum sem þar
bjuggu.
Guttormur J. og Stephan G. Stephansson
Klettafjallaskáld eru tvímælalaust virtustu
skáld Vestur-lslendinga og ég hef safnað
Ijóðabókum þeirra beggja. Mörgum Vestur-ls-
lendingum fannst erfitt að skilja Ijóðin hans
Stephans en hann hefur alla tíð verið í miklu
uppáhaldi hjá mér.
Eitt af mínum eftirlætisljóðum er Fósturland-
ið eftir Stephan G. Það er þrungið þjóðernis-
kennd og ást til gamla landsins, eins og mér er
í blóð borin.“
Landið, sem mín vígð er vinna,
vöggustöðin barna minna!
Ég hef fellt í lag og línu
Ijóðið mitt í grasi þínu -
yfir höfuð yrkir mitt
aftur seinna grasið þitt!
Hjarta og hugur er
heima-bundið þér.
Met ei við milljón dali
mætur, sem á þér ég hef,...
... Landið, sem mín vígð er vinna,
vöggustöðin niðja minna!
Sigurður Wopnfjörð er verðugur fulltrúi Vestur-
Islendinga og sýnir þann hlýhug sem þeir bera
til gamla landsins í norðri. □
GEGNUMGLERIÐ
SÍMI 688081 • SKIPHOLTI 50 B • KT. 510387-1479 • VSK. 10900
23. TBL. 1991 VIKAN 15