Vikan - 14.11.1991, Qupperneq 28
Frh. af bls. 27
sé atvinnumanneskja fram í
fingurgóma.
EKKERT LEIKNÁM
Jodie Foster hefur aldrei lagt
stund á leiknám. Þá staðreynd
að hún stígur inn í hlutverk sín
án þess, að því er virðist, að
hafa nokkuð fyrir því má
kannski skrifa á það að hún er
búin að þjappa listinni að leika
saman í eitt einfalt atriöi: að
◄ Þrettán ára
lék Jodie Foster
í kvikmyndinni
Taxi Driver, en
sú mynd átti
einna stærstan
þátt I að breyta
imynd hennar
frá því að vera
barnastjarna í
hugum
kvikmyndahúsa-
gesta i það að
vera álitin
fullgild leikkona.
- og í kjölfarið
fylgdi morðtil-
ræði við Banda-
ríkjaforseta
framið af
geðsjúkum
aðdáanda
leikkonunnar...
látast. Ráðið sem hún gaf sjö
ára dreng, sem leikur son
hennar í Little Man Tate, var
að þykjast eins vel og hann
gæti. „Það er hrikalegt að
kenna leiklist á þennan hátt en
á einhvern furðulegan hátt
held ég þó að látalætin séu
leiklistin í hnotskurn."
Þó hún reyni að afhjúpa
leyndardóm leiklistarinnar ger-
ir hún sér grein fyrir því að
hann inniber meira en látaiæti.
Hún viðurkennir að hún þurfi
að hlaða sig andlega og lík-
amlega milli hlutverka og önn-
ur ástæða þess að hún reynir
að halda sig við eina kvikmynd
á ári er sú að hún hefur ein-
ungis áhuga á „stórbrotnum
dramastykkjum".
HVUNNDAGSHETJA
Little Man Tate fjallar um Fred
Tate, sjö ára gamalt undra-
barn, móður hans, Dede Tate,
barþjón sem lítur á son sinn
sem besta vin sinn, og Jane
Grierson, taugaveiklaðan sál-
fræðing sem vill koma Fred í
menntaskóla og taka hann á
brott frá móður sinni til að örva
hann andlega á máta sem
móðir hans hefur ekki getað.
„Myndin fjallar um einstætt
foreldri og einnig um hvunn-
dagshetju," segir Jodie.
„Hvunndagshetjan er líka eins
og rauður þráður í gegnum
margt af því sem ég hef gert.
Ég fæ oft að túlka fólk sem
yfirlifir siðferðislega í heimi
sem er verulega grimmur. Svo
er myndin einnig mynd af lista-
manni, hvaða listamanni sem
er. Mynd af aðila sem á í
stöðugri baráttu. Höfuð hans
og hjarta eru á algerlega and-
stæðum meiði. Hvernig á að
sameina það? Hvernig er
hægt að þola að vera með svo
stórt hjarta og svo snjallan
heila? Hann er svo vel að sér
og svo vitur að hann gerir sér
grein fyrir sársaukanum í líf-
inu.“
Finnur hún til skyldleika
með þessu undrabarni? „Ekki
sem undrabarni en sem
manneskju sem hefur lent í
því að vera öðruvísi,“ segir
leikstjórinn Jodie Foster. „Og
að því leyti að vera næm.
Leikarar eru næmir. Þegar ég
var barn var ég þegar farin að
starfa í myndum um raunveru-
leg mál. Og ég kem frá næmu
heimili. Og ég kem frá harm-
leikjum. Ekki bara frá Malibu
▲ Móðir Jodie Foster, Brandy, er umboðsmaður hennar og saman
velja þær af vandfýsni á miili kvikmyndatilboða.
< Með Óskarinn eftirsótta. Þakkarávarp hennar við það tækifæri
eru mönnum afar eftirminnileg.