Vikan - 14.11.1991, Side 37
EINSTAKT TILBOÐ!
▲ Hljómplötugagnrýnandl
Vlkunnar er afar ánægður með
nýju plötuna frá Tin Machine
þar sem David Bowie er í
aðalhlutverki. Segir hljómsveit-
ina hafa slípast vel á þeim tíma
sem liðin er frá því fyrri platan
kom á markaðinn fyrir um tveim
árum.
RÖKRÉTT
FRAMHALD
Hljómsveitin Tin Mach-
ine, með stórstjörnuna
David Bowie i farar-
broddi, gaf út fyrstu plötuna
árið 1989 og var hún svo sem
ágæt í alla staöi. Nú er komin
ný plata með þeim félögum
Bowie, Reeves Gabrels (gítar)
og Sales bræðrunum, Tony
(bassi) og Hunt (trommur).
Platan ber einfaldlega heitið II
(Tvö) og gefur hinni ekkert
eftir, er betri ef eitthvað er.
Lagasmíðarnar eru ekki eins
brjálæðislegar og á fyrri plöt-
unni sem meðlimir sveitarinn-
ar segjast hafa notað sem af-
sökun fyrir að framleiða há-
vaða. Nýja platan er samt sem
áður rokkplata, það heyrist til
dæmis I lögunum If There Is
Something, You Can’t Talk og
A Big Hurt, sem er trylltasti
rokkari plötunnar og samið af
Bowie sjálfum. Hann semur
alla textana og öll lögin nema
eitt (lagiö Sorry eftir Hunt
Sales) í samvinnu við hina í
sveitinni. Einnig eru þarna
ballöður og I Amlapura heyrist
vel hvað Bowie er góður (ball-
öðu)söngvari. Tin Machine
hefur slípast vel á tímanum
sem er liðinn frá síðustu plötu
og er tvímælalaust vaxandi
hljómsveit, komin I réttan far-
veg í ólgu og umróti tónlistar-
bransans.
EINKUNN: ★★★★
FRASAR
ADAMS
Bryan Adams:
Waking up the Neighbours
Kanadíski rokkarinn Bryan
Adams á tvímælalaust smell
ársins I poppinu, (Everything I
do) I Do It for You. Breiðskíf-
an, sem lagið er á, er hans
sjötta en fyrsta platan hans
kom út árið 1980. Bryan
Adams er iðnaðarrokkari, þaö
fer ekkert á milli mála þegar
hlustað er á plötuna. Þar eru
rokkfrasar mjög áberandi í öll-
um lögunum. Fátt kemur á
óvart i lagasmíðunum og text-
arnir, fjórtán af fimmtán, fjalla
um stráka-stelpur og eru
endurtekningar töluverðar.
Nú styttist i að íslenskir
aðdáendur Brian Adams fái að
berja goðið augum á tónleikum
hér á landi.
Síðasta lag plötunnar er óður
um umhverfisvernd, hljómar
næstum hjákátlega eftir allt hitt
sem á undan er gengið. Ekki
verður þó af honum Bryan
Adams skafiö að hann er
fremsti rokkballöðusöngvari
dagsins I dag, toppurinn á því
sviði. Hann er væntanlegur
hingaðtil lands 17. desember.
EINKUNN: ★★
Tin Machine:
Annar hluti
Geisladiskur og myndband
saman í einum jólapakka
aðeins kr. 1.450
Á klukkutímalöngu mynd-
bandi leikur faðir rokksins á
als oddi í hinum fræga
klúbbi The Roxy í Holly-
wood og í laginu Rock And
Roll Music tekur Tina
Turner hraustlega undir
með honum á sviðinu.
Önnur lög á myndbandinu
eru: Roll Over Beethoven,
School Days, Sweet Little
Sixteen, Nadine (Is It You?),
Let It Rock, Promised
Land, MemphisTennessee,
Johnny B Goode, Brown
Eyed Handsome Man, Too
Muh Monkey Business,
Carol/Little Queenie og
Reelin’ And Rockin.
CHUCK BERRY
ROll OVER BEEIHOVEN
■wamn t sMot.
ntimmu suiiin
•uuuiua
ii3 rixiiCBiui nta u u
UtlUIMII
li .
CHUCK BERRY - Roll Over Beethoven
Roll Over Beethoven - Rock’n Roll Music - Brown Eyed Handso-
me Man - Nadine - Maybelline - My Ding A Ling - Reolin' And
Rockin' - No Money Down - Memphis Tennesse - School Day -
Too Much Monkey Business - Run Rudolph Run - Let It Rock -
Sweet Little Rock’n’Roll - Sweet Little Sixteen - No Particular
Place To Go - Johnny B. Goode
>4
PONTUNARSEÐILL SAM-BUÐARINNAR
UTANÁSKRIFT: SAM-BÚÐIN, HÁALEITISBRAUT 1, 105 REYKJAVlK
□ Sendið mér pakkann með Chuck Berry myndbandinu og geisladisknum
fyrir aðeins kr. 1.450 auk póstburðargjalds.
□ Áskrifandi Nafn: □ Óska eftir áskrift □ Óska ekki eftir áskrift
Kennitala: Sími:
Heimili:
Póstnr. Staður:
23. TBL. 1991 VIKAN 37