Vikan - 14.11.1991, Page 46
ÞÝÐING: BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR
ERTU STJÓRNANDI EÐA
HÆFIR ÞÉR BETUR AÐ VERA
UNDIR STJÓRN ANNARRA?
Með því að lesa spurningarnar hér á eftir
og svara þeim svo eftir bestu getu œttir þú
að geta komist að því hvort hiutverkið
hentar þér betur.
1. Þú situr á starfsmannafundi og yfirmað-
ur þinn hefur lokið við að útskýra nýja
starfshætti á mjög svo óljósan hátt. Því
miður skildir þú ekki helming þess sem
hann sagði svo þú
a. ákveður að þar sem fyrirmælin séu svo
óljós sé bara best að gleyma þeim, í bili að
minnsta kosti.
b. lætur í þér heyra á fundinum og biður um
nánari útskýringu.
c. talar við yfirmanninn eftir fundinn og biður
hann um nánari útskýringu.
d. talar við samstarfsmenn þína seinna og
reynir þannig að finna út hvað yfirmaðurinn
átti við.
2. Þú ert með í því að halda partí fyrir vin
þinn. Hvert þessara hlutverka mundir þú
hugsanlega leika? Manneskjuna sem
a. á hugmyndina að partíinu.
b. býr til gestalistann.
c. sér um veitingarnar og skrautið.
d. fylgir heiðursgestinum (vininum) í partíið.
3. Ný tíska er að hefja innreið sína í vina-
hópi þínum -tökum sem dæmi mjög stutt-
klippt hár. Þú mundir líklega
a. vera ein(n) af þeim fyrstu til að grípa þetta
tískufyrirbrigði og láta klippa þig strax og þér
gæfist færi á því.
b. biða aðeins og sjá í hvaða jarðveg þessi
tíska félli hjá fólki áður en þú létir til skara
skríða.
c. líta algerlega framhjá þessari tísku vegna
þess að þú vilt ekki vera eins og allir aðrir.
d. skapa þinn eigin stfl, sem er frábrugðinn
stíl allra vina þinna.
4. Við hversu margar manneskjur talarðu
daglega, þá bæði á vinnustða og í einkalff-
inu?
a. Nánast enga fyrir utan bestu vini þína.
b. Frekarmarga. Þú ert félagslynd persóna.
c. Fullt af fólki. Þú átt marga kunningja.
d. f meðallagi marga en eingöngu við þá
sem heilsa þér fyrst.
5. Hversu mikið leiðist þér ágengt og ráð-
ríkt fólk?
a. Dálítið - þér þykir ekki þægilegt að um-
gangast afskiptasamt lið.
b. Hrikalega - þú getur bara ekki haft stjórn
á þér þegar einhver er að reyna að skipa þér
fyrir.
c. Ekki mikið - ef einhver þrýstir á þig eða
röflar í þér svarar þú bara í sömu mynt.
d. Nánast ekkert - flestir verða samvinnu-
þýðir þegar þú reynir að leysa málin á sann-
gjarnan hátt.
6. Trúirfólk þér oft fyrir vandamálum sínum
og biður þig ráða?
a. Já, það er stöðugt að gerast. Þú ert mjög
góður áheyrandi.
b. Frekar oft. Fólk virðist meta ráðleggingar
þínar.
c. Sjaldan. Þú sjálf(ur) biður aldrei um hjálp
eða áheyrn og ert þvf ekki mjög skilnings-
rík(ur) við þá sem gera það.
d. Aðeins þegar þú hefur sérfræðiþekkingu
á málefninu sem um er aö ræða.
7. Verið er að stofna hverf issamtök þar sem
þú býrð og fara fram kosningar um stöðu
formanns, ritara og gjaldkera. Þú
a. sýnir ekki neinn áhuga. Svona samtök
gera ekkert gagn.
b. býðst til að hjálpa að eins miklu leyti og
þér er fært.
c. stjórnar kosningaherferð fyrir einn af
frambjóðendunum.
d. býður þig sjálf(ur) fram til eins af embætt-
unum.
8. Þú hrífst mjög af manni/konu sem þú
þekkir ekki neitt. Þú mundir líklega
a. biðja vin þinn aö kynna ykkur.
b. reyna að láta bjóða þér í partí sem þú hef-
ur frétt að hann/hún verði í.
c. finna ástæðu til að hefja samræður við
hann/hana, daðra svolítið og sjá svo til hvað
gerist.
d. hringja strax í þessa ákveðnu persónu og
bjóða honum/henni út.
9. Tveir góðir vinir þfnir lenda í hörkurifrildi
í návist þinni. Þú
a. yfirgefur svæðið og lætur þá útkijá málið
án afskipta.
b. bíður og sérð til hvernig málin þróast.
Kannski getur þú hjálpað þeim að leysa
deilumálið eftir að þeir eru búnir að öskra
svolítið hvor á annan.
c. verður mjög reiö(ur) sjálf(ur) og skammar
þá fyrir að sýna svo heimskulegan
fjandskap.
d. verður mjög reið(ur) yfir rifrildinu og þar af
leiðandi f engu ástandi til að skipta þér af
því.
10. Sölukona í verslun nokkurri gerist mjög
ýtin og reynir að fá þig til að kaupa dýrari
vöru en þú hefur ákveðið að fjárfesta í. Þú
a. verður mjög örg (argur) og kaupir ekki
neitt.
b. segir henni að þú hafir ekki ráð á tiltekinni
vöru.
c. kaupir það sem þú varst upphaflega
búin(n) að velja - bara til að ergja hana.
d. biður hana í mestu rólegheitum að láta
þig í friði svo þú getir ákveðið þig.
11. Yfirmaður þinn tilkynnir þér að þú sért
einn af þremur starfsmönnum sem til
greina kemur að ráða í mjög eftirsótta
stjórnunarstöðu. Viðbrögð þín við þessum
fréttum eru:
a Áhyggjur þess efnis að þú sért örugglega
ekki eins fær og hinir tveir.
b. Þú leggur helmingi harðar aö þér til að
auka líkurnar á því að fá stöðuna.
c. Þú gerir ekki neitt sérstakt í málinu. Þér
finnst sem hæfileikar þínir hljóti nú þegar að
vera mönnum nægilega Ijósir.
d. Þú gefur yfirmanni þínum f skyn að þér
gæti komið til með að finnast þú knúin(n) til
að segja upp, fáir þú ekki stöðuna.
12. Þér og maka þínum er boðið f veislu. Þú
ert alveg ólm(ur) i að fara en makinn vill
heldur vera heima og horfa á sjónvarpið.
Þú
a. ferð alein(n) í veisluna.
b. hótar að biðja fyrrverandi elskhuga að
koma með þér.
c. reynir eins og þú getur að sannfæra hann
um að koma með þér, en ef hann neitarferð
þú ekki heldur.
d. leyfir honum að vera með þessa mót-
spyrnu í tíu mínútur í viðbót - hann lætur
hvort eð er alltaf allt eftir þér.
13. Þú ert mjög hrifin(n) af ákveðinni mann-
eskju sem er þekkt fyrir að vera algjör skít-
hæll við gagnstæða kynið. Vinir þínir hafa
varað þig við henni. Þú værir líkleg(ur) til
að:
a. Hlusta á viðvörunina og hugsa aldrei aftur
um þessa manneskju.
46 VIKAN 23.TBL. 1991