Vikan - 14.11.1991, Qupperneq 68
TEXTl: LÍNEY LAXDAL
AÐ FORÐAST TAUGAÁFALL í
MIÐJUM JÓLAUNDIRBÚNINGI
Barnaaugu eiga aö skína
- ekki gluggarnir...
Ert þú við það að fá
taugaáfall í miðjum jólaundir-
búningi? Taktu því rólega. Þú
ert alls ekki ein um þetta og
það er hjálp að fá. Hér koma
nokkur ágæt ráð, um það
hvernig best er að lifa af jóla-
stressið og halda samt fullu
viti.
Þú yndislegi jólaundirbún-
ingur... eða hvað? Ekki það,
nei. Heyrði ég einhvern öskra?
Mér fannst ég heyra eitthvað
og ykkur sem öskruðuð hæst
bið ég að stilla skúringafötunni
til hliðar og/eða geyma pipar-
kökudeigið til morguns. Fáið
ykkur fullt glas af jólaglögg,
leggist upp í sófa og lesið
þessa grein.
Hvernig stendur á þessu
hreingerninga- og innkaupa-
æði sem grípur þjóðina í des-
ember. Tómt rugl, er það ekki?
Nei. í desembereru mestu lík-
urnar á að fá taugaáfall. Þá er
ekki nóg að vera útivinnandi
húsmóðir með þrjú til fjögur
börn. Þá fer kvenþjóðin í kapp.
Við þykjumst vera herra-
garðsfrúr frá 1890! Við
skúrum, skrúbbum, bónum,
bökum, eldum og reynum eftir
fremsta megni að aðstoða
börnin við lærdóminn og
stressið ætlar að keyra okkur
niður. Undirbúningur jólanna
er að bíta á jaxlinn, bölva í
hljóði og æða eins og hvirfil-
vindur um húsið ef á að nást
að hvítskúra allt fyrir jól.
Reynum að líta svolítið
raunhæft á málið. Er nokkur
skynsemi í því að rífa niður
þykku stofugardínurnar og
burðast með þær í hreinsun á
dimmasta tíma ársins? Eða
þvo alla veggi bara svo það sé
hreint á jólunum? Það mætti
halda að jólasveinninn væri
starfsmaður hjá heilbrigðiseft-
irlitinu. Allt á að vera þvegið,
hreint eins og á sjúkrahúsi. Til-
fellið er að við högum okkur
nákvæmlega svona.
Hvað snertir þessi hrein-
gerning jólin? Um hvað snúast
jólin? Hvernig hafa börnin
það? Spurðu sjálfa þig hvað
þau muni helst muna frájólun-
um þegar þau verða stór. Ætli
þreytt, önug og útkeyrð móðir
sé ekki þaö fyrsta sem kemur
upp í huga þeirra. Reyndu að
rifja upp hvernig þér leið sem
barni, hvernig þú vildir hafa
jólin og jólaundirbúninginn þá,
þegar þú hafðir tíma og „vit" á
að hlakka til jólanna. Að hvaða
niðurstööu kemst þú?
Kannski niðurstaðan verði
sú að þú hafir gleymt að þvo
hnífaparaskúffuna? Ef svo er
mælum við með að þú heim-
sækir sála... Á jólunum eiga
barnaaugu að skína - ekki
gluggarnir. Hættu nú þessu
stressi og plataðu alla með
ilmandi „hreinu“ húsi og það
án mikillar fyrirhafnar. Híbýli
okkar eru nú yfirleitt svo hrein
að það ætti ekki að vera nokk-
ur vandi. Síðan ferð þú í stór-
hreingerningu í janúar. Gamla
súrlykt, til dæmis reykjarlykt,
má losna við með því að hafa
skálar með ediki í gluggakist-
unum yfir nótt.
Ef þú hefur ekki haft tíma til
þess að skúra gólfin „almenni-
lega“ er ekki stór skaði
skeður. Ryksugaðu gólfiö eins
vel og þú getur, settu nokkrar
skálar - ekki þó matarilát -
með klór eða salmíaki á gólfið
og hafðu þær þar yfir nótt. Síð-
an brosir þú þínu blíðasta
þegar tengdó kemur, þefar út í
loftið og segir: Mikið ertu dug-
leg að vera búin að skúra allt.
Reykelsi er líka vel til þess
fallið að gera góða lykt í húsið,
svo ekki sé minnst á stemmn-
inguna. Grenigreinar í stórum
vasa eiga líka sinn þátt í
„hreinlætislyktinni". Það er
samt heillaráð að breiða papp-
ír undir vasann svo barrið falli
ekki á gólfið.
Það þarf enginn á tandur-
hreinum gluggum að halda á
jólunum. Búðu frekar til jóla-
skraut með börnunum og úð-
aðu jólasnjó úr dós á glugg-
ana. Þá tekur enginn eftir því
að þú hefur ekki pússað þá
síðan í október.
Ef svo illa skyldi fara að þú
yrðir veik af áhyggjum yfir að
húsið veröi ekki hreint yst sem
innst á jólunum ráðlegg ég þér
að skrifa á dagatalið fyrir
næsta ár „jólahreingerning" í
október. Þegar október síðan
rennur upp manstu það ör-
ugglega sem stendur á daga-
talinu!
Jæja, þetta var svo sem allt
í lagi en hér kemur meira. Það
er vel hægt að sleppa því að
þrífa eins vel og vant er - en
hvað um allt hitt, gjafir,
bakstur, jólakort? Ekki
hræðast. Það er hægt aö lifa
það af líka! Ætlar þú virkilega
að baka tíu smákökusortir? Er
það satt? Borðið þið virkilega
svo mikið, ofan á allan jóla-
matinn. Ert þú kannski ein af
þeim sem byrja á að henda
bakstrinum frá í fyrra áður en
baksturinn hefst? Ef svo er
skaltu baka minna. Ekki hætta
68 VIKAN 23. TBL. 1991