Vikan


Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 9

Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 9
að hafa í kringum mig fallegar konur en þær verða líka að vera þokkalega greindar og við- ræðugóðar. Hreinræktaðar rauðsokkur eru gersamlega óþolandi fyrirbæri." - Hvers vegna? „Ég set samasemmerki á milli margra þess- ara rauðsokkakvenna sem ekki snyrta sig og eru klepróttar og illa hirts hests sem stendur klepróttur í stíu sinni. Þær gætu nefnilega margar hverjar litið mjög vel út. Þetta særir hreinlega fegurðarskyn mitt. Og svo þessi yfir- gangur og einstrengingsháttur sem einkennir þær margar...“ Óli G. glottir og blaðamaður- inn hefur hann jafnvel grunaðan um að vera að gá að viðbrögðum hjá sér! „... sjálfsagt er ég bölvuð karlremba ... já, ég er það.“ - Er það þá konum sérstaklega til fram- dráttar og bjargar, fremur en karlmönnum, að líta vel út? „Nei, ég legg það að jöfnu hjá kynjunum. Ég er að tala um snyrtimennsku." Greinilega fæst ekki orð um það meir og ber að víkja talinu að öðru. PRÍMUS Á BIRKIMELNUM OG KENNSLA NYRÐRA - Þú fékkst einhvern tíma við kennslu, var það ekki?“ „Æ, jú, maður hefur komið nálægt ýmsu um dagana. Kennslan hófst þannig að ég hafði þénað vel á síld en samt ekki nægjanlega svo ég gæti gert það sem hugurinn stóð til, sem sagt að fara á listakademíuna í Kaupmanna- höfn. Ég fór til afa og bað hann bjarga mér um það sem á vantaði. Hann hélt nú ekki. Ef ég færi út í slíkt yrði ég áreiðanlega drykkjusvoli og aumingi. Og þarna stóð ég með meðmæli frá Svavari Guðnasyni upp á vasann! Gamla manninum var ekki úr að aka og ég sá mitt óvænna og innritaðist í viðskiptafræði í há- skólanum. Við Axel vinur minn leigðum okkur svo sitt hvort kvistherbergið á Birkimelnum en borðuðum niðri á Garði. Þar var afskaplega vondur matur fannst okkur, fordekruðum á góðum mömmumat. Og svo keyptum við prím- us og mölluðum á honum þennan vetur." - En kennslan? Sagnamaðurinn sendir blaðamanninum illt augnaráð - bara rétt í svip. „Það kemur að henni en upphafsins er þarna að leita. Um ára- mótin held ég satt að segja að áhuginn á við- skiptafræðunum hafi verið horfinn, hins vegar var verulegt starf að stunda þær samkomur sem buðust á Loftleiðum, Sögu, í Glaumbæ og jafnvel stöku stað öðrum. Þetta gat tekið allt frá fimmtudegi til og með sunnudagskvöldi. Það var ærinn starfi eins og þú hlýtur að sjá. Að vísu var konuefnið norður í landi en sú stað- reynd hefti lítt för mína um næturlífið. Mér tókst þó að vinna nokkurn sigur þarna á forn- fjanda mínum stærðfræðinni, varð næsthæst- ur með 14 af 16 mögulegum og þar naut ég þess að vera alltaf að lesa með vini mínum úr máladeild sem þurfti talsverðrar ítroðslu við. Um vorið var fyrsta próf enska og í henni hafði ég alltaf verið góður; já helvíti góður. En mér tókst að sofa yfir mig og mæta of seint, missa af megninu af fyrsta hluta prófsins sem var les- inn upp á ensku og sat svo aftarlega þarna uppi í hátíðarsal og heyrði ekki baun. Annað var í þeim stíl en ég skilaði ágætri teikningu man ég. Svo fór ég norður og Alan Boucher enskukennari leitaði vítt og breitt að mér en fann ekki því ég fór til Seyðisfjarðar á síld." En „Mikil skelfing hvað mér þótti þessi samgöngumáti strax heillandi." kennslan, kennslan? Blaðamaður þorir ekki að impra á henni aftur. Óli lítur ábúðarfullur á Kent sígarettuna áður en hann kveikir í henni. „Það var svo þarna um haustið að ég réð mig í kennslu við Barnaskóla íslands - stofu átta. Mér var tjáö í upphafi að ég fengi þennan bekk því ég væri enn óþreyttur af völdum kennslu. Þetta var skemmtilegur bekkur en ódæll og mörg barnanna hörmulega á vegi stödd í náminu. Þess vegna reyndi ég nú eftir föngum að stagla í hin þekkingarlegu göt, sleppti til dæmis kristinfræöi og tók grunnfögin í staðinn. Foreldrunum þótti sumum hverjum nóg um og kvörtuðu undan álaginu á börnin. Engu að síður fylgdi ég nokkrum þessara nemenda eftir, hjálpaði þeim upp gagnfræða- skóla og síðar í menntaskóla. En samleið átti ég enga með skólastjóranum. Ég sá hann eitt sinn tyfta dreng sem hafði kastað snjóbolta á heldur óvarfærinn hátt - hann beinlínis lúskr- aði á barninu. Þar kom ég að með skap mitt og hótaði öllu illu, alla vega svo illu að mér bauðst ekki að kenna þarna aftur. Ég kenndi þá bara við stýrimannaskólann og vélskólann; ís- lensku, ensku, dönsku og svo siglingafræði, hana hafði ég úr fluginu. - Já og þó einkenni- legt megi virðast eftir föll mín í stærðfærði í menntaskóla þá hef ég sífellt verið að hjálpa einhverjum með stærðfræði í gegnum tíðina." LEIDDIST Á PÓSTINUM - STOFNAÐ GALLERÍ - Hvenær kom þá að pósthúskaflanum, þessum kafla sem kunnugir bíða hvað spenntastir eftir að lesa um? Hann glottir ekki einu sinni en horfir aðeins svolítið þreytulega á spyrjandann. „Jú, jú, það kom að honum. Ég var þarna orðinn kvæntur maður, þegar ég var beðinn að leysa af á póst- inum um tveggja mánaða skeið. Við afi skipt- um þessu á milli okkar en þá var hann kominn á eftirlaun. Þessir tveir mánuðir urðu að tuttugu árum - og mikið óskaplega leiddist mér nú að vinna á póstinum! En hann afi kom á hverjum degi og heimsótti mig, öll árin sem hann átti eftir ólifuð. Ég var ákaflega háður honum and- lega og tilfinningalega; það breyttist aldrei. Það varð svona fastur póll í tilverunni hjá gamla manninum að líta inn hjá mér. Pabbi tók á sín- um tíma við af afa sem póstmeistari, konan mín vann þarna og mamma. Gárungarnir nefndu þetta auðvitað fjölskyldufyrirtæki. En hún Lilja, konan mín, hætti þarna þegar við vorum búin að vera saman í fimm ár, þá eign- uðumst við barn. Nú ég hækkaði í stöðu, fékk nefnilega vinnuna hennar og svona þokaðist þetta í gegnum árin. Allt í einu var ég kominn með fjögur börn innan sömu sex áranna og einhvers staðar urðum við að búa. Við keyptum blokkaríbúð en þakið fauk af blokkinni og það var svo sem allt í lagi. Svo var það í afmælisveislunni minni að við Guðmundur vinur minn ákváðum að nú færum við að byggja. Við fengum svo lóð í út- jaðri bæjarins, við Fteynilund, og það var létt að byggja. Verðbólgan sá um lánin. En mér leiddist í vinnunni, málaði mikið og var eins mikið í návist hestanna og mér var unnt. Það gerðist engu að síður margt afar minnisstætt. Ég opnaði gallerí, fyrsta galleríið á (slandi, Gallerí Háhól. Fram að þeim tíma mátti heita að myndlist hefði ekki selst á Akureyri. Ég kynntist ýmsum dáindisgóðum drengjum, ágætum listamönnum og konum og galleríið seldi grimmt. Ég fékk sýningar hingað norður í löngum bunum og meðalaðsókn var um fjórtán hundruð manns á sýningu. Háhóll sló mörg sölumet, jafnt hvað mín verk áhrærði svo og ýmissa annarra. Og það var mikið umleikis. Kokkteilboð við hverja opnun, veisluhöld og svo framvegis. Svo mettaði ég þennan markað. Þar fyrir utan var þetta mikið starf og málverkið mitt löngu farið að sitja á hakanum. Það þolir enginn með stórt egó.“ - Hvenær hélstu þína fyrstu sýningu? „Það var 71. Annars hef ég haldið sýningar víða og tekið þátt í samsýningum. Þar get ég nefnt til sögunnar Norræna húsið, Kjarvals- staði og Listasafn ASÍ svo nokkuð sé nefnt. Og ég seldi alltaf út og fékk ágæta dóma. Ja, nema einu sinni. Þá sagði Ólafur Kvaran [ Sjónvarpinu: „Óli Jó. kann ekki að teikna en felur vankunnáttu sína í rósaflúri." Þá varð ég súr en líklega þó enn meira reiður. Morguninn eftir þessa umsögn auglýsti ég í útvarpinu: „Komið og sjáið umdeildu sýninguna í Nor- Frh. á bls. 30 2. m. 1992 VIKAN 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.