Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 26
verður taugakerfi hennar jafnrótt og djúp tjörn
á kyrru sumarkvöldi. Utan frá séð virðist Vog-
arorkan oft hafa náð þessu: hún er tíguleg og
í jafnvaegi, lætur sér hvergi bregða. Innvortis
er aðra sögu að segja: Vogin getur verið þanin
eins og fiðlustrengur. Ofurnæmi Vogarinnar
veldur því að hún fer stundum út af laginu.
Hvernig á að ráða bót á því? Horfiö á ballett
eða eitthvað annað fallegt. Flæði fegurðar um
skilningarvitin róar Vogina og færir hana nær
því óhagganlega æðruleysi sem er hið sanna
markmið þessa merkis.
SNILLINGURINN - EÐA ÚTLAGINN
Vatnsberinn er stöðuga loftmerkið. Stöðug
merki eru staðföst og vilja halda hlutum
óbreyttum.
Vatnsberinn er forvitinn og fróðleiksfús og
frumgerð hans er snillingurinn - eða útlaginn.
Á yfirborðinu er Vatnsberinn fulltrúi sérvisku og
frelsis. Á dýpri hátt táknar hann þróun er leiðir
til tjáningar róttækrar einstaklingshyggju, það
er að segja fullkominnar samstillingar sálar við
persónuleika og reynslu.
Pláneta Vatnsberans er Úranus, andi upp-
finninga og frelsis. Væri Úranus eina plánetan
á himinhvolfinu værum við öll svo sjálfstæð að
við værum enn steinaldarmenn, að fleygja
grjóti hvert í annað. Þá væri ekkert tungumál,
engin menning, engin lög. Á hinn bóginn má
segja að væri Úranus ekki til værum við öll enn
að færa til kletta fyrir Faraó og öll einstaklings-
hyggja væri bæld. Þetta er pláneta frábrigð-
anna, þess ferlis þegar við aðgreinum hver við
erum frá því sem allir aðrir vilja að við séum.
Hún vísar ávallt til þess ferlis þegar við neyð-
umst til þess að „brjóta gegn reglum", ætlum
við að vera sjálfum okkur trú - það er að segja
sigrast á félags- og félagamótun og mötun.
Þegar sá tími í lífi okkar gengur í garð fer það
sem gefur okkur mest í taugarnar á mömmu
og pabba... og öllum „mömmum“ og
„pöbburn" sem ákvarða lög ættbálksins.
Vatnsberinn er merki snillinga - og glæpa-
manna. Hann er táknrænn fyrir það ferli að
vera maður sjálfur. Þjóðfélagskrafan er þó sú
að fólk sýni siðvenjubundna hegðun. Kauptu
bindi! Rakaðu fótleggina! Vertu svangur á há-
degi! Utan frá séð er þetta þrýstingur. Innan frá
eru þessi öfl jafnvel enn kraftmeiri; þeim fylgja
öll innri handritin frá því að maður var krakki að
læra að vera mannvera af mömmu, pabba og
sjónvarpinu.
Vatnsberinn í þér fellur ekki inn í þjóðfélags-
lega umhverfið, í það minnsta ekki án þess að
þú svíkir sjálfan þig. Taktu stökkið og greiddu
fyrir það með einangrun og útskúfun. Það er
hátt verð - en ekki eins hátt og að lifa lífi sem
ekki er þitt eigið.
HINN MIKLI TJÁSKIPTASNILLINGUR
Tvíburarnir eru breytilega loftmerkið. Breytileg
merki eru breytileg og óútreiknanleg. Tvíbur-
inn er hinn mikli tjáskiptasnillingurog það kem-
ur ekki á óvart að bæði Tvíbura og frændur
hans í hinum loftmerkjunum tveimur er að
finna í miklum mæli á Ijósvakamiðlum eylands-
ins bláa. Frumgerð Tvíburans er sögumaður-
inn. Á yfirborðinu táknar það tjáskiptahæfni.
Sé farið dýpra táknar það þrep er leiða til þró-
unar sérlega opins huga.
Merkúr, andi skynsemi og greindar, er plán-
eta Tvíburans. Merkúr þýtur umhverfis sólina á
áttatíu og átta dögum og það gerir hann að
hraðgengustu plánetunni. Á sama hátt þýtur
hann um höfuð manns. Merkúr ann sér aldrei
hvíldar - kveikir stöðugt i taugamótum meðan
greindin berst við að búa til skipulega mynd af
veröldinni. Merkúr er fulltrúi hugsunar og
talmáls, lærdóms og ihugana. Hann er hinn
mikli áhorfandi, ávallt fullur forvitni.
Undrun, furða, tilfinning fyrir því undursam-
lega - eru meðal bestu vitundarstiga Tvíbur-
ans. Þó þetta sé loftmerki og áhersla þess þar
með á starfsemi hugans táknar Tvíburinn
eitthvað miklu frumstæðara en hugsun. Hann
er fulltrúi sjálfrar skynjunarinnar: alls hins hráa
og ómelta sem flæðir inn um skilningarvit
okkar. Sé of mikið hugsað um það mál förum
við að búa í kenningunum í stað þess að vera
í heimi skynjunar. „Vald“ læðir sér inn. Sömu-
leiðis hvað sé „rétt". Og „skýr hugsun“. Og
Tvíburarnir visna. Tvíburaorkan nærist á
endalausum nýjungum og breytingum. Þeir
þrá allt sem þeir ekki hafa séð eða fundið fyrir
fyrr. Nærðu þá! Færðu þeim samtöl, bækur,
ferðalög, menntun... allt nema leiðindi.
LOFTMERKI Á ÖLDUM UÓSVAKANS
Auk rökhugsunar og hagnýtingar hennar felst
annar grundvallareiginleiki loftmerkjanna í því
að flytja boð manna á milli, að miðla. Af Tví-
burum í fjölmiðlum má nefna Pál Magnússon á
Stöð 2, Markús Örn Antonsson, borgarstjóra
og fyrrum útvarpsstjóra, Helga Pétursson,
Bjarna Dag Jónsson og Þorgeir Ástvaldsson
auk tónlistarmannanna Bubba Morthens og
Hallbjarnar Hjartar, Hrafns Gunnlaugssonar
leikstjóra og leikaranna Tinnu Gunnlaugsdótt-
ur og Arnar Árnasonar. Baldvin Jónsson, eig-
andi Aðalstöðvarinnar, Bjarni Felixson, Edda
Andrésdóttir og Hemmi Gunn hafa tungl í Tví-
bura. Jón Óttar Ragnarsson og Jakob Magn-
ússon hafa Mars (framkvæmdaorku) í Tvíbura
og Hallgrímur Thorsteinsson á Bylgjunni er
rísandi Tvíburi.
Af fjölmiðlavogum er ritstjórinn Ellert
Schram efstur á blaði en einnig má nefna ráð-
herrana Albert Guðmundsson, Friðrik Sophus-
son og Jóhönnu Sigurðardóttir, auk söngvar-
anna Pálma Gunnarssonar og Ragnhildar
Gísladóttur. Ólafur Jóhann Ólafsson tekur sér
einnig sæti í mýkt Vogarinnar en hann er sem
kunnugt er rithöfundur sem starfar við öflugt
fjölmiðlafyrirtæki - Sony. Dóra Einarsdóttir,
Edda Björgvinsdóttir og Helgi Skúlason hafa
Venus (samskipti) í Vog og rithöfundarnir Ein-
ar Kárason, Sigurður Pálsson, Steinn Steinarr,
Vilmundur Gylfason og Þórbergur Þórðarson
eru allir með Mars í Vog.
Vatnsberar í fjölmiðlum eru áberandi og
meðal þeirra má nefna Magnús Bjarnfreðsson,
Herdísi Þorgeirsdóttur ritstjóra, Inger Önnu
Aikman, Jóhönnu Kristjónsdóttur, Jónas Kristj-
ánsson ritstjóra, Pál Þorsteinsson og Stefán
Jón Hafstein. Matthías Johannessen ritstjóri,
Elín Pálmadóttir blaðamaður og Sigmundur
Ernir Rúnarsson fréttamaður hafa Merkúr
(hugsun) í Vatnsbera en þá stöðu hafa einnig
Árni Johnsen, Davíð Oddsson, Guðni Guð-
mundsson rektor og Sverrir Hermannsson
bankastjóri.
Vatnsberinn Ronald Reagan var aðalleikar-
inn í aðalsápuóperu Bandaríkjanna í átta ár.
Af innsæi hasarmyndaleikarans beitti hann fyr-
ir sig fánanum, föðurlandinu og Ijósinu í eld-
húsglugganum hjá mömmu á þann hátt að tvö
hundruð og fimmtíu milljónir manna viknuðu
fyrir framan sjónvarpstækin. Geri aðrir betur.
Abraham Lincoln háði borgarastyrjöld og
Charles Dickens, mestur Vatnsberahöfunda,
reit bók eftir bók þar sem hann réðst á félags-
legar aðstæður Viktoríutímabilsins og reyndi
að betrumbæta heiminn.
SAMRÆMI LITA, HLJÖÐA OG ORÐA
Með sól f Vog ertu listamaður í innsta eðli
persónuleika þíns. Ef þú málar eða leikur á
hljóðfæri er það aðeins til bóta. En jafnvel þó
þú gerir það ekki er kjarni þinn samt sem áður
hlaðinn fagurfræðilegu næmi. Ræktaðu það
og þér mun líða eins og þú hafir fundið þig.
í vöggugjöf fékkstu meðfætt umburðarlyndi
fyrir þversögnum. öll mál hafa tvær hliðar og
þú tekur báðar þeirra nánast alltaf til greina.
Þetta skapar skýran huga en veldur einnig
vanda. Gættu þess að festast ekki milli tveggja
jafnaðlaðandi (eða óaðlaðandi!) möguleika og
frjósa þar. f lífinu muntu aftur og aftur standa
frammi fyrir röð af siðferðilegum eða hagnýtum
málum sem túlka má á fleiri en einn hátt og
skilja þau miklu betur en kreddubundnari
kunningjar þínir. Spurningin er hvort þú getir
gert upp hug þinn og haldið lífi þínu áfram,
með brennandi brýr að baki.
Með tungl í Vog hefurðu listamannshjarta.
Þú getur fengið tár í augun við að sjá fallegt
26 VIKAN 2. TBL.1992