Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 16
OF MIKILL
SMÁBORGARAHÁTTUR
„Við erum fámenn þjóð og
fylgjumst vel með en þó finnst
mér oft á tíðum vera hér of
mikill smáborgaraháttur. Mér
er til dæmis alveg sama hvað
þessi eða hinn gerir og er ekk-
ert að velta mér upp úr því. Ég
verð oft vör við fordóma, til að
mynda gagnvart forsíðu-
stúlkukeppninni og eiginlega
var enginn sem sagði: „Já,
Brynja. Farðu í þessa keppni!"
En það var vegna þess að
þetta fólk þekkti ekki um hvað
var að ræða. En við, stelpurn-
ar, ákváðum að gera keppnina
góða og það var hún frá upp-
hafi, engin spurning. Það kom
best í Ijós á kynningarkvöldinu
þar sem við vorum vissar um
að enginn myndi mæta en
VIKAN 2. TBL. 1992
húsið troðfylltist." Þetta finnst
Brynju svolítið fyndið því það
voru svo margir búnir að
yfir efasemdum um keppnina.
Þær féllu náttúrlega um sjálfar
sig þegar til kom.
„Esther Finnbogadóttir
sig ótrúlega vel og
okkur áfram sem vorum
algerlega óreyndar í
fyrirsætustörfum. Viö
vorum svo erfiðar
og hún þurfti að
kenna okkur
byrjun. Ég gæti ekki hugsað
mér betri þjálfara. Þetta skipti
svo miklu máli því að þetta
var í fyrsta skipti sem keppnin
var haldin og úrslitaatriði að
vel tækist til.“ Brynja segir þær
stúlkurnar oft hafa verið orðn-
ar taugastrekktar en þeim hafi
öllum komið mjög vel saman
og hún vonast til að þær haldi
hópinn í framtíðinni.
MIKIL KEPPNIS-
MANNESKJA
„Það voru aldrei nein rifrildi
eða neitt slíkt, nei, nei. Og mér
fannst miklu skemmtilegra að
taka þátt í keppninni en ég
bjóst við,“ segir hún ánægð á
svip. Gerði hún sér vonir um
verðlaunasæti? „Nei, en ég er
mjög mikil keppnismanneskja.
Ég vil geta unnið úr þeim
hæfileikum sem ég bý yfir því
ég er mjög metnaðargjörn og
vil gera vel það sem ég tek
mér fyrir hendur. Ég á það
jafnvel til að vera stundum of
metnaðarfull. Til dæmis kom
ekkert annað til greina en að
vera best í ballettinum. Ég er
mjög ánægð með annað sætið
og finnst Laufey mjög vel að
sigrinum komin," segir Brynja
og hvernig sem blaðamaður
reynir að finna vott af von-
brigðum eða sársauka í
raddblæ eða svipbrigðum er
ekkert slíkt sjáanlegt. Hún er
hreinskilin og einlæg þegar
hún mælir þessi orð.
FEIMNA BALLERÍNAN
Brynja segist sjálf oft hafa ver-
ið stimpluð sem þessi sem er
yfirmáta merkileg með sig.
Þetta segir hún orsakast helst
af tveimur ástæðum. Annars
vegar vegna þess aö hún er
tiltölulega feimin að eðlisfari
og hlustar frekar á samræður
heldur en að leggja sífellt eitt-
hvað til málanna þannig að lit-
ið geti út fyrir að hún þykist
eitthvað yfir aðra hafin. Hins
vegar segir hún ballettdansara
temja sér ákveðið fas. „Við
erum útskeifar og fattar í baki
þannig að maður lítur alltaf út
fyrir að vera merkilegur með
sig.“
Hún segist hafa orðið vör
við aukna athygli í kjölfarfram-
komu í auglýsingum og þátt-
tökunnar í forsíðustúlku-
keppninni, jafnvel sé ætlast til
að hún sé alltaf brosandi og
kammó. Reyndar kemur hún
þeim er þetta ritar þannig fyrir
sjónir þrátt fyrir að henni sé
Ijóst að fyrir honum þurfi hún
ekkert að vera að sýnast. En
merkileg með sig er hún ekki,
alls ekki. □