Vikan


Vikan - 23.01.1992, Page 24

Vikan - 23.01.1992, Page 24
TEXTI: ÞORDIS BACHMANN Franskt málverk frá 17. öld sem á að sýna áhrlf gelslanna frá fullu tungli á sálarlíf kvenna. VATNSBERI, TVIBURI OG VOG Stjörnuspekin á sér flókið kerfi og er hluti þess skipting í frumþættina eld, jörð, loft og vatn. Innan hvers frum- þáttar eru þrjú stjörnumerki, eitt frumkvætt, eitt stöðugt og eitt breyti- legt. Hér á eftir verður fjailað um höf- uðskepnuna loft en hér er verið að fjalla um orku náttúrunnar því stjörnu- merkin mótast af náttúrunni og endur- spegla þá krafta sem maðurinn sér þar. Að vera Tvíburi þýðir í raun ekki annað en það að vera fæddur snemma sumars. Stjörnuspekingurinn skoðar síðan eðli þess árstíma og yfirfærir það sem hann sér á persónuleika Tví- burans, enda liggur að baki sú kenn- ing að maður og náttúra séu eitt. Með því að skipta stjörnumerkjunum niður eftir trumþáttum er um leið mannfólkinu skipt niður í fjóra höfuðflokka. Eldur er táknrænn fyrir hug- sjónir og skapandi athafnaorku, jörð fyrir efnis- orku, loft fyrir hugmyndaorku og vatn fyrir sál- ar- og tilfinningaorku. Eldur og loft eru létt og svolítið ójarðnesk. Jörð og vatn eru staðfastari og jarðbundnari. META ÓBREYTT ÁSTAND LÍTILS Loftmerkin eru Vatnsberi, Tvíburi og Vog. Loft táknar hugmyndir og félagsstarf og samskipti við aðra verða því mikilvægur þáttur í lífi loft- merkjanna. Loftmerkin eru rökföst og skynsöm en með því er verið að segja að þau blandi eig- in tilfinningum yfirleitt ekki saman við viðfangs- efni sín og eigi því auðvelt með að vera hlut- laus. Þau geta einnig meðtekið og nýtt sér upplýsingar hraðar en önnur merki. Loftmerkin meta óbreytt ástand minna en jarðarmerkin og eru því ekki eins íhaldssöm. Hins vegar leggja þau meiri áherslu á vel- gengni í þjóðlífinu en eldmerkin gera. Loft- merkin geta því sameinað hagnýt gildi annars vegar og skapandi orku hins vegar og staðið fyrir gagnlegri nýsköpun. Þróun nýrrar tækni er oft undir stjórn loftmerkja. Loftmerkin eru jákvæð og opin. Þau eru yfir- veguð í framkomu og þó þau séu vingjarnleg er það oft á fremur fjarlægan og ópersónuleg- an hátt. Það stafar af því að þau setja hugsun og skynsemi ofar öllu öðru. Þau vilja leysa vandamál með því að beita rökhugsun en verða vandræðaleg í návist tilfinningasemi og virðast köld fyrir vikið. Of sterk áhrif lofts geta valdið þvi að viðkom- andi týnist í orðaleikjum og hugtakaþvælingi, 24 VIKAN 2. TBL.1992

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.