Vikan - 23.01.1992, Side 40
HÖFUNDUR: JÓNA RÚNA KVARAN
Astín
ertandi
oflgjafi
Hugleiðing unt ástina
egar viö ætlum aö íhuga ástina og
áhrif hennar í lífi okkar og tilveru er
okkur vissulega vandi á höndum.
Viö verðum eins og áöur aö reyna
aö vera bæði heiðarleg og um leiö
málefnaleg til aö vangavelturnar nái tilgangi
sínum. Ástin er eins og vitsmunirnir, margþætt
og náttúrlega breytileg eftir atvikum og kannski
aldrei nákvæmlega eins í öllum tilvikum.
Sumir segja að ástin göfgi okkur og geri okk-
ur aö betra fólki, aörir segja aö aldrei þrífist
meiri lágkúra í okkur en þegar viö erum einmitt
á valdi ástarinnar. Það veröur aö teljast mjög
hryggilegt og nánast óskiljanlegt sé tekið tillit til
þess hvaö okkur getur liðiö ótrúlega vel einmitt
í hita þeirra tilfinninga sem ástin ein getur
framkallaö I hug okkar og hjarta.
Móöur- og föðurástin eru þær tilfinningar
sem viö þekkjum flest og kynnumst strax í
frumbernsku. Þessi ást er talin ein fullkomn-
asta tegund ástar og sú ást sem viö síst getum
verið án. Þegar lítið barn breiðir Ijómandi í
framan út faðminn á móti foreldri sínu brjótast
fram unaðslegar tilfinningar bæöi í okkur for-
eldrunum og barninu sjálfu. Börn geta nefni-
lega ekki þrifist svo vel fari án ástar. Þau þurfa
aö finna og skynja persónulega ást okkar for-
eldranna eöa þeirra sem annast um þau, ann-
ars er eins og þau hreinlega visni í andlegum
skilningi þess orös. Meö einlægni sinni og þrá
eftir ást og umhyggju gera börnin okkur sem
kannski erum köld og tilfinningasljó aö betra
fólki vegna þess aö þau gefa okkur ekki eftir í
þessum efnum og þar af leiöandi ná þau sem
betur fer ástum okkar flestra aö lokum.
BRANDARAR OG FÓTBOLTI
Þegar viö erum sex ára og erum aö byrja
skólagöngu erum viö flest mjög spennt og upp-
rifin fyrstu vikurnar í skólanum. Viö erum að
kynnast nýjum aðstæðum og fólki sem viö eig-
um aö tengjast á næstu mánuðum. Á þessum
eftirminnilegu árum er mjög algengt aö ástin á
hinu kyninu fái líf svo um munar, þó erfitt sé aö
trúa slíku og hvaö þá aö ástandið geti valdiö
umtalsverðum vandræðum og myndrænum
breytingum á smáfólkinu.
Sá strákurinn sem tætir af sér mestu brand-
arana eöa er bestur í fótbolta er mjög álitlegur
ástarkostur. Þaö skiptir kannski minna máli þó
viðkomandi uppfylli ekki ströngustu útlitskröfur
og sé ekkert sérlega gáfaður. Þaö hefur nefni-
lega svo miklu meira gildi aö finna innra meö
sér áöur óþekkta tilfinningu og gera tilraun til
aö fylgja henni eftir ef hægt er. Reyndar er al-
veg meiri háttar aö hafa uppgötvað svona
svakalega spennandi strák sem getur allt, jafn-
vel þó við þurfum að breyta okkur töluvert til aö
krækja í smáathygli frá viðkomandi.
Viö stelpurnar hreinlega verðum veikar og
spurningin er bara hver okkar er meiri háttar,
aö hans mati. Við lesum alla Hafnarfjaröar-
brandara sem viö komumst yfir og látum þá
fjúka af minnsta tilefní í von um að hækka í áliti
hjá stráknum. Eins fáum við lánaða alltof stóra
fótboltaskó og látum okkur ekki vanta á vara-
mannabekkinn ef ske kynni aö guttinn tæki eft-
ir okkur og kippti okkur í liðiö.
Síöan gerist þaö einn daginn aö viö lendum
í slagsmálum nokkur saman og strákurinn
okkar eltir okkur. Eftir aö hafa verið á harða-
hlaupum í tíu mínútur nær stráksi okkur og
klípur fast. Við verðum öskureiðar og spörkum
í hann og viö þá reynslu, þegar sársaukinn er
mestur, kallar hann okkur öllum þeim ónöfnum
sem hann í fljótheitum finnur. Þetta verðuryfir-
leitt til þess að ástin kulnar og áfallið veröur
þaö mikið aö varla er hægt aö horfa á viðkom-
andi í langan tíma á eftir, ööruvísi en fá græn-
ar bólur af hryllingi.
Vinsamlega handskrifiö bréf til Jónu Rúnu
og látið fylgja fullt nafn og kennitölu,
ásamt dulnefni. Svörin byggjast á innsæi
Jónu Rúnu og rithandarlestri og því miður
er alls ekki hægt að fá þau í einkabréfi.
Utanáskriftin er:
Jóna Rúna Kvaran, Kambsvegi 25, 104
Reykjavík.<
K]
KÍNASKÓR OG ANDVÖKUR
Á unglingsárunum vandast málin því þá fer
ástin aö blómstra svo um munar. Við getum
orðiö svo ástfangin aö allt annað í daglegu lífi
okkar nánast riðar til falls. Ekkert er hægt aö
gera eöa framkvæma í ástarhitanum nema
hugsa um væntanlegt samband viö þann kon-
fektmola sem viö höfum augastað á og þráum
ekkert heitara en aö taka eignarnámi.
Ömurlegast er ef ástin er ekki endurgoldin
eða jafnvel viökomandi í föstu sambandi við
einhvern annan. Keyptir eru fullkomlega hljóð-
lausir kínaskór svo hægt sé að fylgjast grannt
meö viðkomandi bæöi á skólagöngum og jafn-
vel fyrir utan gluggann á herberginu hans eftir
aö tekur að skyggja og möguleiki er á aö sjá
viðkomandi bregöa fyrir eitt augnablik. Þetta
tímabil getur verið bæöi sársaukafullt og neyð-
arlegt eftir atvikum. Andvökunætur veröa ó-
neitanlega margar, auk þess verður draumlífiö
þess eðlis að af siðgæöisástæðum er ekki á-
stæöa til aö gera það aö umfjöllunarefni hér.
Við erum á þessum árum sérstaklega næm
og þurfandi fyrir náiö tilfinningasamband, af
ósköp eölilegum ástæðum. Hormónabreyting-
ar eru miklar og viö hvorki fullorðin né börn
heldur einungis tilfinningasprengjur sem var-
ast ber að styggja eöa áreita af litlu tilefni. Viö
erum flest í námi en hugurinn miklu vinsam-
legri líkamanum en skólabókunum og þar af
leiðandi býsna erfitt að sætta sig við fúlheit þau
sem skólinn og aginn sem honum fylgir leggja
á okkur. Hætt er viö aö viö dettum í sælgæti