Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 65
um. Þess má geta aö áöur
hafði hann leikið í átta mynd-
um sem allar voru kvikmynd-
aðar á Bretlandseyjum en þær
eru: Star Wars (1977) Force
Ten from Navarone (1978),
Hanover Street (1979), The
Empire Strikes Back (1980),
Raiders of the Lost Ark (1981),
Return of the Jedi (1983), Indi-
ana Jones and the Temple of
Doom (1984) og Indiana Jon-
es and the last Crusade
(1989).
Söngleikurinn Phanton of
the Opera, hugarsmíð Andr-
ews Lloyd Webber, verður
kvikmyndaður. Warner Bros
kvikmyndafyrirtækið framleiðir
og ítalski leikstjórinn Franco
Zeffirelli mun leikstýra. Hann
leikstýrði síðast meistara-
stykkinu Hamlet árið 1990.
Árið 1989 leit dagsins Ijós
smámynd sem vakti óskap-
lega mikla athygli, Sex, Lies
and Videotape. Leikstjórinn
var Steven Soderbergh. Nú
hefur hann lokið við nýjasta
verkið sitt, Kafka, sem hefur á
að skipa leikurum á borð við
Jeremy Irons (Reversal of
Fortune, Dead Ringers),
Theresa Russel (Whore,
Track 29, Black Widow), lan
Holm (Chariots of Fire,
Hamlet, Henry V), Alec Gu-
innes og Armin Muller Stahl
(Music Box). Ef þetta er ekki
sannkallað stjörnulið veit ég
ekki hvað til þarf. Myndin
Kafka greinir frá höfundinum
fræga og sögusviðið er Prag.
Jeremy Irons leikur trygginga-
sala sem er viðriðinn
morðmál. Hann er sakaður um
ódæði sem hann framdi ekki,
að hafa myrt vinnufélaga sinn.
Myndin var öll tekin í Tékkó-
slóvakíu. Auk þess er hún í
svart/hvítu og það gefur henni
sérstakan blæ. Kafka hlaut
lofsamlega dóma í New York
þegar hún var frumsýnd þar
fyrir nokkru. Myndin er listavel
tekin og þykir sýna kaldrana-
legt andrúmsloft. Talið er aö
stórleikarinn Jeremy Irons hafi
unni þar stóran leiksigur.
Oliver Stones situr heldur
ekki auðum höndum. Eftir að
hafa nýverið lokið við að gera
myndina JFK, sem er með
leikurum eins og Kevin
Costner, Donald Suther-
land, John Candy, Jack
Lemmon og Sissy Spacek,
heldur hann aftur til Víetnam.
Where the Sky Meets the
Earth heitir myndin sem hann
mun leikstýra næst. Tri Star
kvikmyndafyrirtækið mun
framleiða þessa mynd. Þar er
greint frá víetnamskri konu
onver stone er vinnuþjarkur hinn mesti. I fyrra geröi hann tvær kvikmyndir, The Doors og JFK. A þessu ári er hann
meö aörar tvær í takinu. Svipmyndin sýnir Kevin Costner i JFK.
Anjelica
Huston og
Raul Julia í
The Addams-
Family.
Myndin hefur
gert það gott í
miðasölunni
bæði vestan-
hafs og á
Bretlandseyj-
um. Nú er bara
að bíða og sjá
hvers konar
viðtökur hún
fær á islandi.
sem gerist Víet-Kong skæru-
liði en fer síðan til Bandaríkj-
anna og sest þar að. Forvitni-
legur söguþráður og spenn-
andi. Til stóð að Oliver Stone
byrjaði á myndinni The Mayor
of Castro Street. Hún fjallar
um borgarstjóra í San Franc-
isco, Harvey Milk, sem Robin
Williams (The Fisher King)
átti að leika. Sú mynd verður |
þó að bíða betri tíma.
Þegar Addams-fjölskyldan I
Frh. á næstu opnu
2.TBL1992 VIKAN 65