Vikan


Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 49

Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 49
ANNA S, BJÖRNSDÓTTIR SKRIFAR VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: ÆVINTYRI VERULEIKANS ▼▼▼TTYTTTTTTTTYTTTTTTTTTTTTTT STYRKURINN argt fer ööruvísi en ætlað er. Allt getur breyst, þróast og enginn veit hvernig leikar fara. Þaö er eitt af því æsilega í þessu lífi en jafnframt þaö sem sumir þola ekki, þaö er aö segja alla þessa óvissu. Satt aö segja þoli ég hana ekki heldur á þessu andartaki sem þetta er skrifaö, en þaö var ekki þaö sem ég ætlaði aö tala um núna. Ég ætla að segja frá því þegar ég fékk styrkinn. Ég segi styrkinn vegna þess aö þetta er fyrsti og eini styrkurinn sem ég hef fengið um ævina og er ég nú orðin miðaldra. Margt fer ööruvísi en ætlað er, sagði ég. Styrkinn forðum fékk ég til aö sækja ráöstefnu erlendis. Tveimur dögum fyrir brottför geröi létt botnlanga- bólga vart við sig og hvernig sem ég reyndi að semja viö ör- lögin varð ég aö leggjast undir hnífinn eins og sagt er. Veit ég ekki aumari stöðu en aö klöngrast upp á skuröarborö og vita það aö læknum getur orðið á. Enda vakti ég verðuga athygli þegar ég vaknaði fyrir sæluástand mitt. Ég var svo sæl yfir því að vera lifandi að ég vakti og enginn þurfti aö gera neitt fyrir mig. Ég var lögð á tveggja manna stofu og í rúminu við hliðina var falleg eldri kona sem sýndi mér mikla ástúð og tillitssemi. Leyfði mér að hvíla mig og var ekkert að masa fyrr en ég hafði jafnað mig. Ég með litlu skeinuna. Þetta var hún Sigga. Við lágum bana- leguna saman, segi ég stund- um i gamni. Ekki mína, heldur hennar. Ég fann fljótt að eitt- hvað sérstakt var á seyði, hún fékk svo marga gesti, var svo blíð við alla og líka mig. Þegar við fórum að tala saman sagði hún mér að hún væri ef til vill á förum og hún hlakkaði svolítið til. Hlakkaöi til að hitta litla bróður sinn sem dó ungur. Sagði mér svo margt. Við notuðum tímann vel, við Sigga. Þetta var eini tíminn í veröldinni sem við fengum úthlutað og þið getið ímyndað ykkur hve þakklát ég er forsjóninni fyrir að hafa fengið að dvelja með henni þessa örfáu daga. Við jarðarförina hennar sagði presturinn aö hún hefði ekki viljað að um hana væri haldin ræða. Hún sem hug- hreysti hjúkrunarfólkið og um- vafði allt yndi. Áður en ég fór heim af spitalanum sagðist ég ætla að yrkja um hana Ijóð. „Heldurðu að þú verðir búin með það áður en ...? Það væri gaman að fá að sjá það,“ sagði hún og auðvitað fékk hún það. Þótt ég sé búin að segja þessa sögu er því þann- ig farið að minningin um þessa litlu konu gerir mig hálforð- lausa. En líka glaða. Þannig er uppskeran hennar í mér. A sjúkrabeði Hún sat þarna dularfull eins og prinsessa í ævintýri. Ljómi augnanna brúnu sagði allt sem þurfti að segja, tilbúin og sátt við allt. Sannleikurinn. Hún var senn á förum. A ÞITT VIÐSKIPTAKORT HEIMA HÉR? EF ÞÚ TELUR AÐ SVO SÉ HRINGIR PÚ í SÍMA 813122 OG TALAR VIÐ HELGU BEN. Hársnyrtistofan Hár-Tískan OPIÐ VIRKA DAGA9-6 DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI SÍMI 50507 REYKJAVÍKURVEGI 64 ■ HAFNARFIHDI - SÍMI 652620 ■ HEIMASÍMI 52030 Hreinsum allan venjulegan fatnaö með bestu vélum sem fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl. TÍSKUFATAEFNI OG ALLT TIL SAUMA ■ Tískufataefni og allt til sauma. Falleg ódýr gardínuefni. Rúmföt, handklæði, sloppar og nærföt. Verslunin INGA HAMRABORG 14A KÓPAVOGI SÍMI 43812 2. TBL. 1992 VIKAN 49
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.