Vikan - 23.01.1992, Qupperneq 49
ANNA S, BJÖRNSDÓTTIR SKRIFAR
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
ÆVINTYRI VERULEIKANS
▼▼▼TTYTTTTTTTTYTTTTTTTTTTTTTT
STYRKURINN
argt fer ööruvísi en
ætlað er. Allt getur
breyst, þróast og
enginn veit hvernig leikar fara.
Þaö er eitt af því æsilega í
þessu lífi en jafnframt þaö
sem sumir þola ekki, þaö er aö
segja alla þessa óvissu. Satt
aö segja þoli ég hana ekki
heldur á þessu andartaki sem
þetta er skrifaö, en þaö var
ekki þaö sem ég ætlaði aö tala
um núna. Ég ætla að segja frá
því þegar ég fékk styrkinn. Ég
segi styrkinn vegna þess aö
þetta er fyrsti og eini styrkurinn
sem ég hef fengið um ævina
og er ég nú orðin miðaldra.
Margt fer ööruvísi en ætlað
er, sagði ég. Styrkinn forðum
fékk ég til aö sækja ráöstefnu
erlendis. Tveimur dögum fyrir
brottför geröi létt botnlanga-
bólga vart við sig og hvernig
sem ég reyndi að semja viö ör-
lögin varð ég aö leggjast undir
hnífinn eins og sagt er. Veit ég
ekki aumari stöðu en aö
klöngrast upp á skuröarborö
og vita það aö læknum getur
orðið á. Enda vakti ég verðuga
athygli þegar ég vaknaði fyrir
sæluástand mitt. Ég var svo
sæl yfir því að vera lifandi að
ég vakti og enginn þurfti aö
gera neitt fyrir mig.
Ég var lögð á tveggja
manna stofu og í rúminu við
hliðina var falleg eldri kona
sem sýndi mér mikla ástúð og
tillitssemi. Leyfði mér að hvíla
mig og var ekkert að masa fyrr
en ég hafði jafnað mig. Ég
með litlu skeinuna. Þetta var
hún Sigga. Við lágum bana-
leguna saman, segi ég stund-
um i gamni. Ekki mína, heldur
hennar. Ég fann fljótt að eitt-
hvað sérstakt var á seyði, hún
fékk svo marga gesti, var svo
blíð við alla og líka mig.
Þegar við fórum að tala
saman sagði hún mér að hún
væri ef til vill á förum og hún
hlakkaði svolítið til. Hlakkaöi til
að hitta litla bróður sinn sem
dó ungur. Sagði mér svo
margt. Við notuðum tímann
vel, við Sigga. Þetta var eini
tíminn í veröldinni sem við
fengum úthlutað og þið getið
ímyndað ykkur hve þakklát ég
er forsjóninni fyrir að hafa
fengið að dvelja með henni
þessa örfáu daga.
Við jarðarförina hennar
sagði presturinn aö hún hefði
ekki viljað að um hana væri
haldin ræða. Hún sem hug-
hreysti hjúkrunarfólkið og um-
vafði allt yndi. Áður en ég fór
heim af spitalanum sagðist ég
ætla að yrkja um hana Ijóð.
„Heldurðu að þú verðir búin
með það áður en ...? Það
væri gaman að fá að sjá það,“
sagði hún og auðvitað fékk
hún það. Þótt ég sé búin að
segja þessa sögu er því þann-
ig farið að minningin um þessa
litlu konu gerir mig hálforð-
lausa. En líka glaða. Þannig er
uppskeran hennar í mér.
A sjúkrabeði
Hún sat þarna
dularfull
eins og prinsessa
í ævintýri.
Ljómi augnanna
brúnu
sagði allt
sem þurfti að segja,
tilbúin og
sátt við allt.
Sannleikurinn.
Hún var senn á förum.
A ÞITT
VIÐSKIPTAKORT
HEIMA HÉR?
EF ÞÚ TELUR
AÐ SVO SÉ
HRINGIR PÚ í
SÍMA 813122
OG TALAR VIÐ
HELGU BEN.
Hársnyrtistofan
Hár-Tískan
OPIÐ VIRKA DAGA9-6
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
SÍMI 50507
REYKJAVÍKURVEGI 64 ■ HAFNARFIHDI - SÍMI 652620 ■ HEIMASÍMI 52030
Hreinsum allan venjulegan fatnaö með bestu vélum sem
fáanlegar eru í dag. Tökum í þvott fyrir fyrirtæki. Hreinsum
einnig gluggatjöld, svefnpoka, gólfmottur, tjöld o.fl.
TÍSKUFATAEFNI
OG ALLT TIL SAUMA
■ Tískufataefni og allt til
sauma.
Falleg ódýr gardínuefni.
Rúmföt, handklæði,
sloppar og nærföt.
Verslunin INGA
HAMRABORG 14A KÓPAVOGI
SÍMI 43812
2. TBL. 1992 VIKAN 49