Vikan


Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 36

Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 36
STTÖRNUSPÁ HRÚTURINN 21. mars - 19. apríl Góöur tími til að styrkja langtímamarkmið enn frekar. 18. janúar lofar góðu en vertu á varð- bergi upp úr 20. janúar. Eitthvað gæti komið þér á óvart síðari hluta mánaðarins. Vertu við öllu búin(n). «> NAUT,Ð Tj) 20. april - 20. mai Athygli þín er skörp um þessar mundir svo að nú er tæki- færið til að líta á lífið og mismun- andi manngerðir á ferskan hátt. Rómantíkin virðist liggja i loftinu kringum 17. og 18. janúar. Not- aðu tækifæri sem þér gefst. TVÍBURARNIR 21. maí - 21. júní Fyrir áhrif Plútós gætirðu komist í valdastöðu á næstunni ef þú leysir skyldustörf þín vel af hendi. Forðastu því skipulags- leysi. Lítið ber til tíðinda í einkalíf- inu í bili. ",\ KRABBINN 22. júní - 22. júlí Um þessar mundir eru sterk rómantísk áhrif umhverfis þig. Njóttu þeirra en gættu þess þó að láta ekki tilfinningarnar stjórna höfðinu. Nú er líka réttur tími til fyrirgefninga. LJÓNIÐ 23. júlí - 23. ágúst Þú verður venju fremur önnum kafin(n) næstu daga og rifrildi gætu komið upp vegna vinnu eða tíma þíns utan heimilis- ins. Nú er um að gera að van- rækja engan og halda huganum opnum. MEYJAN 24. ágúst - 23. sept. Vegna áhrifa frá Plútó eru tjáskipti þín að breytast og hugs- unarháttur þinn að dýpka. Yfir- borðsmennska fer því svolítið í taugarnar á þér um sinn. Líttu þér samt nær, stundum. Þú hefur ekki svar við öllu. VOGIN 24. september - 23. okt. Þú finnur fyrir örlætis- kenndum og væntumþykju. í svona ástandi er auðvelt að verða ástfangin(n). Minnstu þess því að ekki er allt sem sýnist. Þér er al- veg óhætt að hugsa svolítið meira um sjálfa(n) þig. SPORÐDREKINN 24. október - 21. nóv. Flókin afstaða himin- tunglanna hefur losaraleg áhrif á þig á næstunni. Þér hættir til að vilja stjórna öllum og öllu. Það gengur ekki til lengdar. Bestu stundir næstu daga áttu út af fyrir Þig- BOGMAÐURINN 22. nóvember - 21. des. Haltu áfram að rækta með þér næmi fyrir tilfinningum annarra. Oft var þörf en nú er nauðsyn. 18. janúar gæti brugðið til beggja vona og framhald vik- unnar fer eftir því hvernig þú spil- ar úr spilunum þá. STEINGEITIN 22. desember - 19. jan. Framagirni þín er nokkuð sterk þessa daga enda eygirðu ýmsa góða möguleika. Reyndu samt að sýna skilning og bæta samskiptin við þína nánustu. Allt tekur sinn tíma. VATNSBERINN 20. janúar - 18. febrúar Næstu tvær vikur verða þér ekkert sérstakar og þér finnst að margt mætti betur fara. Þú þarft ef til vill fjölmenni kringum þig til að dreifa huganum en ólík- legt er að ný kynni séu á döfinni næstu daga. Þróaðu næmi þitt í staðinn. FISKARNIR 19. febrúar - 20. mars Þú ert að leggja grund- völlinn að betri dögum, hvort sem þú gerir þér grein fyrir því eða ekki. Vertu vakandi; ýmislegt ligg- ur i loftinu kringum 18. janúar. Forðastu þó að láta annað fólk notfæra sér hjartagæsku þína. Áður en Sovétríkin liðu undir lok var allt komið í megnustu óreiðu þar fyrir austan. Því hringdi Gorbatsjov í Jeitsín rétt fyrir jól og það var heldur þungt í honum hljóðið. „Ég er með tvær slæmar fréttir sem eru hvor annarri ótrúlegri." „Ég er við öllu búinn,“ sagði Jeltsín. „Komdu með fyrri frétt- ina.“ „Móðir Leníns er á lífi.“ „Nú, hvað með það? Hver er hin fréttin?“ „Hún er ólétt.“ oOo Nýgifta parið ætlaði út að skemmta sér og konan gat ekki ákveðið í hverju hún ætti að fara. „Á ég að fara í þunna silkikjóln- um sem ég fékk í jólagjöf eða þykka rúskinnspilsinu og svörtu ullarpeysunni?" spurði hún. „Mér er alveg sama, elskan. Ég elska þig gegnum þykkt og þunnt." Þau voru flutt á elliheimilið og sú gamla var óánægð. „Þú ferð aldrei með mér í bíó,“ kvartaði hún. „Hvaða vitleysa er þetta, gæska. Ég hef oft farið með þér í bíó.“ „Getur verið en nú eru þeir farnir að sýna myndir með tali og tónum.“ oOo Nýi lögregluþjónninn hringdi úr farsíma sínum á lögreglustöðina: „Ég er búinn að ná átta villing- um hérna niður á Hallærisplani," sagði hann. „Stórfínt. Komdu bara með þá hingað." „Ég get það ekki. Þeir halda mér föstum.“ oOo Það voru erfiðir tímar í hring- leikahúsinu svo að eigandinn kom að máli við manninn sem lét skjóta sér úr fallbyssu á hverju kvöldi. „Við verðum að grípa til sparnaðaraðgerða," sagði hann. „Ég hef ekki efni á að kaupa púður f fallbyssuna. Get- urðu ekki bara öskrað BANG og hoppað út úr henni?“ Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda jn)9L| !QB|q6ep 'uujuuBiu ubuub b jeiuea n6nBJ9|6 ‘ujoIlu rna JBUjnddoj) pjA )S)0 jrnns ‘)SÁ0jq jnjsq uu|duJB| ‘sj) qia qæq qusa jnjsq Lunu^sjo 36 VIKAN 2. TBL.1992
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.