Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 13
í borgir og vafasöm hverfi
þeirra. Þá stóð hinni Ijóshærðu
Frónmær ekki á sama og
brunað var beinustu leið á
braut. „En við fórum meðal
annars í Wet and Wild og
Disney World. Þetta var æðis-
leg ferð, sól og hiti, yndislegt,"
segir Laufey og þar með hafði
draumurinn ræst.
LÉTI SLAG STANDA
Gæti hún hugsað sér að flytja
til heitari landa til frambúðar?
„Nei, ekki eins og staðan er í
dag að minnsta kosti. Ég vil
hafa fjölskyldu mína nærri mér
en ekkert er þó útilokað í
þessu fremur en öðru." Hún
gerir sér ennfremur grein fyrir
þvi að ýmsir möguleikar geti
skapast erlendis fyrir hana við
fyrirsætustörf. Laufey segist
tilbúin að láta slag standa í
þeim efnum, hún myndi taka
slíkum tilboðum, fyrst til
reynslu. „Ég get vel hugsað
mér að takast á við fyrirsætu-
störfin um tveggja eða þriggja
mánaða skeið ef mér býðst
það en ekki miklu lengur. Ég
vil kynnast þessu áður en
lengra er haldið því að ég veit
í raun lítið um hvað málið
snýst þó að forsíðustúlku-
keppnin hafi gefið mér tölu-
verða reynslu." Aðspurð seg-
ist hún myndu leggja sam-
bandið nýupptekna að veði
þvi eins og hún segir sjálf er
ekki mikið varið í samband
sem ekki héldi yfir svo
skammæjan aðskilnað.
PÆLANDI (
MANNGERÐUM
Laufeyju þykir gaman að pæla
í manngerðum og hún gerir
mikið að því að spá í fólk.
„Mér finnst mikilvægast að
fólk komið hreint og beint fyrir,
að það sé það sjálft.“ Hrein-
skilni og heiðarleiki eru eftir-
sóknarverðir kostir að mati
hennar. „Fólk á tvímælalaust
að segja við mig það sem því
finnst um það sem ég er að
gera því þá reyni ég að gera
betur,“ segir Laufey og telur
að mistök séu til þess að læra
af þeim. Hún er ekki farin að
búa en æfir sig í eldamennsk-
unni á föður sínum sem gerir
oftar en ekki grín að henni.
„Hann segir mér hvað betur
má fara og ég læri af því,“
bætir hún við. Helsti galli í fari
fólks finnst henni vera
uppgerð, þegar fólk reynir að
vera annað en það er í raun.
„Maður sér það á sumum og
mér finnst það ákaflega leiði-
gjarnt."
Laufey stendur nú á tvítugu
og það þykir ekki hár aldur.
Hvaða hugmyndir gerir hún
sér um framtíðina hvað varðar
stofnun heimilis og barneign-
ir? „Ég er ekki tilbúin eins og
er aö fara að eiga börn og
stofna heimili en sé þó fyrir
mér í framtíðinni aö ég verði
góð móðir, hvort sem börnin
verða tvö eða tíu," segir hún,
forsíðustúlkan sem lýsir sér
sem ákveðinni, stundum frekri
og hreinskilinni. □