Vikan - 23.01.1992, Blaðsíða 11
Innan við eins árs aldur var
krókurinn tekinn að beygjast...
... og fimm ára gömul var
Laufey búin að kengbeygja
hann fyrir framan myndavélina.
ÁnA GÓÐAR
VINKONUR
Eftir aö Laufey hóf þátftöku í
forsíðustúlkukeppninni tóku
henni í auknum mæli að ber-
ast atvinnutilboö varðandi
fyrirsætustörf. Hún hefur sjálf
ekkert á móti því að reyna
meira fyrir sér sem fyrirsæta.
„Mér fannst mjög gaman að
taka þátt í keppninni og hún
gefur manni mjög góð tæki-
færi. Hópurinn var líka mjög
skemmtilegur. Við vorum eins
og góðar vinkonur sem fórum
saman á ætingar. Ég fann
Fjölskyldan nýtur þess nu að slappa af eftir allt stressið í kringum
keppnina. Fra vinstri: Hermann, Laufey, Eiður Ottó, Ragnhildur,
Bjarni og Signý.
að læra það sem maður hefur
áhuga á að gera en velja ekki
eftir atvinnumöguleikum eða
tekjum. „Öll menntun er að
sjálfsögðu góð en mér finnst
mjög mikið um að fólk fái ekki
störf sem það hefur menntun
til." Er eitthvað sem hún myndi
alls ekki vilja taka sér fyrir
hendur? „Vinna í fiski. Ég
vann við það tvö sumur hjá
Granda hf. og það var vissu-
lega skemmtileg lífsreynsla en
ég komst að því að þetta er
ekki fyrir mig.“ Með skóla hef-
ur hún einnig unnið á Hard
Rock Café, á sólbaðsstofu og
í sjoppu en siðastliðið sumar
vann hún í íþróttabúðinni.
Þátttaka hennar i keppninni
kom þannig til að hún var á
skrá hjá Módelsamtökunum
◄ Samtíðarbörn-
um ungfrúar
Seljaskóla hefur
varla komið
slgurlnn á óvart.
og þaðan bárust SAM-útgáf-
unni myndir af henni. „Síðan
var hringt í mig og mér boðið
aö taka þátt. Ég samþykkti að
koma f viðtal en fannst þetta
alveg út í hött. Ég komst
samt inn, ótrúlegt en satt og
það kom mér mjög á óvart,“
segir Laufey hógvær og
reyndar gerði hún aldrei ráð
fyrir því að komast í keppnina
þar sem hún taldi hæðina
skipta svo miklu máli. Sjálfri
fannst henni hún aldrei koma
til greina sem sigurvegari, ef til
vill vegna þess hve áhyggjufull
hún var yfir lágum vexti sínum
miðað við fyrirsætur almennt.
▲ Við fermingu
voru fyrirsætu-
hæfileikarnir
farnir að gera
verulega vart við
sig.
2. TBL 1992 VIKAN 1 1