Vikan - 23.01.1992, Síða 19
Brúöur desembermán-
aðar er Jónína Waag-
fjörö. Hún er kennari í
sjúkraþjálfun viö háskóla í
borginni Mobile í Alabama-
fylki í Bandaríkjunum. Þar er
eiginmaöur hennar einnig í
framhaldsnámi í hagfræði, en
hann heitir Gunnar Sigurðs-
son.
Jónína hefur búið í Mobile
síöan í febrúar á síðasta ári
en Gunnar nokkru lengur. Jón-
ína bjó áöur í Boston þar sem
hún var í framhaldsnámi og
lauk mastersgráöu eftir aö
hafa sérhæft sig í taugasjúk-
dómum. Jónína reiknar meö
því aö þau muni búa þarna
næstu fjögur árin aö minnsta
kosti en þá ætla þau heim til
íslands.
Aðspurð um það hversu
lengi samband þeirra hefur
staðið segir Jónína að þau
séu búin aö vera saman í þrjú
ár. Sambandið var fyrstu miss-
erin erfitt að því leyti að Gunn-
ar var á íslandi en Jónina í
Boston. Það var ekki fyrr en í
febrúar á síðasta ári sem þau
gátu loks farið að búa saman.
„Við höfum aftur á móti þekkst
í fjölmörg ár. Við erum bæði í
Golfklúbbi Reykjavíkur og vor-
um vel kunnug hvort öðru á
þeim vettvangi en Gunnar er
einn af betri golfleikurum GR.
Hann fór í háskólann hér
vegna þess að hann leikur
með golfliði skólans. Hann
hefði getað fundið betri skóla
en þessi er ágætur og golfið
hjálpar honum að fjármagna
námið. Hér er svo milt loftslag
og hér fellur aldrei snjór. Hita-
stigið á þessum árstíma er
15-20 gráður og því er unnt
að spila golf árið um kring.
Þau giftu sig 28. desember í
Bústaðakirkju og voru gefin
saman af séra Pálma Matthí-
assyni. „Hann er meiri háttar
góður prestur og á vinsældir
sínar svo sannarlega skilið.
Hann talar við mann eins og
hann hafi þekkt mann lengi og
ósjálfrátt talar maður þannig
við hann líka. Vinkona mín,
Ásdís Kristmundsdóttir, söng
við athöfnina. Hún tekur þátt í
uppfærslunni á La Boheme í
Borgarleikhúsinu í vetur,
syngur þar eitt aðalhlutverk-
anna."
Veisluna héldu þau í veit-
ingahúsinu Ártúni og þangaö
komu hundrað og sextíu
manns. „Þetta var ofsalega
skemmtilegur dagur og veisl-
an tókst mjög vel. Mór fannst
verst hvað tíminn var fljótur að
líða.“ □
JOHANNES
LONG VINNUR
í ÞRIÐJA SINN
Sá sem heiðurinn á af
myndinni af brúði des-
embermánaðar er Jó-
hannes Long sem rekur Ijós-
myndastofuna Ljósmyndarann
í Mjóddinni í Reykjavík. Hann
vinnur nú keppnina í þriðja
sinn sem er glæsilegur árang-
ur. Jóhannes hefur haft Ijós-
myndun að aðalatvinnu í fjór-
tán ár en hefur stundað grein-
ina miklu lengur. Hann er
þekktur fyrir mikla vandvirkni
og smekkvísi við tökur og frá-
gang mynda. Árangurinn hefur
heldur ekki látið á sér standa
eins og raun ber vitni. Jóhann-
es kveðst hafa lagt sérstak-
lega mikla vinnu í þær myndir
sem hann hefur sent í keppn-
ina enda hafi hann tekið þátt í
henni af fullri alvöru - sam-
keppnin á þessu sviði sé mikil
og því sé nauösynlegt aö
leggja sig fram.
Starfsmenn Ijósmyndastof-
unnar, sem annast hvers kon-
ar Ijósmyndun bæði í stúdíói
og á vettvangi, eru sex að tölu.
Þar á meðal er eiginkona Jó-
hannesar, Ása Finnsdóttir,
sem er hans hægri hönd og
aðstoðar hann meðal annars
við brúðarmyndatökurnar.
Annar Ijósmyndari starfar
einnig á stofunni, Gunnar
Kristinn, fyrrum nemandi Jó-
hannesar. Allar myndir eru
fullunnar á stofunni og því er
það fagleg hönd meistarans
sem fylgir myndunum alla leið,
allt frá sjálfri tökunni og þar til
gengið er frá þeim í möppu
eða á annan hátt.
Vikan óskar Jóhannesi
Long og starfsfólki hans til
hamingju með sigurinn að
þessu sinni og vonast til þess
að fá tækifæri í framtíðinni til
að birta myndir hans á síðum
blaðsins. □
Jóhannes
Long
Ijós-
myndari.
2. TBL. 1992 VIKAN 19