Vikan


Vikan - 23.01.1992, Síða 39

Vikan - 23.01.1992, Síða 39
skólanum en mig langaði ekk- ert því á þessum aldri vill mað- ur verða eitthvað sem maður er alls ekki í raun.“ Ásta fór þó í gegnum myndlistarnám hér heima og lét ekki þar við sitja heldur stundaði framhaldsnám í Englandi eftir aö hafa reynt árangurslaust við leiklistar- skóla þar í landi. Þrátt fyrir það segist hún alltaf hafa verið að bíða eftir að komast út úr þessu, alltaf verið að berjast á móti því þetta hafi verið eitt- hvað sem aðra langaði til að hún yrði, ekki hana sjálfa. ▲ Mynd- listin er hennar klaustur. Hún segist vera nunna í gallabux- um. Hér snýr hún baki við myndinni „Samför- um“. ÆTLAÐI f SJÓINN „Þegar ég var búin að læra henti ég þessu öllu frá mér og ákvað að nú væri þessum stærstu mistökum f lífi mínu lokiö." En dramatíkinni var ekki lokið fyrir Ástu. Hún ákvað að fara í sjóinn og setja þannig punktinn aftan við mis- tökin og það að hafa ekki feng- ið að gera það sem hún vildi. Hin ólukkulega myndlistar- kona, sem ekki vildi iðka list sína, pantaði sér far með einu skipa Hafskipa hf. Hún ætlaði að láta svo virðast sem um slys hefði verið að ræða. Allt skipulagt, pottþétt, ekkert átti að geta klikkað. En nú situr hún á veitingastað I Reykja- vík, Ijóslifandi og getur ekki annað en brosað að þessu mörgum árum seinna, því sem hún leit alltaf á sem óréttlæti, því sem nú er hennar gæfa. Hætt að streitast á móti. Hætt að berjast. „Þarna opnaðist mér heimur sem ég hef alla tíð verið leitandi í síðan ég byrjaði að mála hafið. Tilgangurinn var fundinn, sá tilgangur sem ég hafði aldrei fundið í skólan- um.“ Leitin að tilganginum er lituð af einkennilegu atviki á hafinu, atviki sem fór með ætlan hennar út um þúfur. Þarna stóð hún úti á dekki, búin að pæla allt út, í brjáluðu veðri að mála hafið. „Einn daginn var ég úti að mála í vitlausu veðri, skipið valt mikið og skipverj- arnir, sem vissu af mér þarna, komu út til mín og bundu mig fasta með kaðli. Þannig gat ég ekki komið vilja mínum fram þann daginn, það hefði þótt grunsamlegt og ég vildi ekki gera foreldrum mínum það til miska að þau vissu að ég hefði svipt mig lífi. Einhvern veginn æxluðust atvik síðan svo að ég byrjaði að mála fyrir alvöru." Þarna kviknaði mynd- listarljósið í huga Ástu, Ijós sem síðan hefur logað, Ijós sem ekki deyr í bráð. SYSTIR JESÚ Hún segist alltaf hafa verið full ímyndunar og hugarflugs. Einn daginn sá hún sjálfa sig sem dóttur Guðs, systur Jesú Krists. „Það er einhvern veg- inn svo að þegar maður á um sárt að binda leitar maður á náðir Guðs." Þetta var á þeim tíma sem hún hugðist enda líf sitt, meðal annars til þess að finna út hvort Guð væri til í raun. „Ég hugsaði með mérað ég færi í sjóinn og þá yrði ég ef til vill hafmey því mig langaði það, það var minn draumur," segir Ásta og útskýrir það með því að hún hafi alltaf litið á ævintýri sem raunverulega at- burði. „Eða þá að ef það væri rétt að ég væri dóttir Guðs þá gæti ég gengið á hafinu heim. Þá væri það satt og enginn gæti sagt neitt við mig. Svo í þriðja lagi var sá möguleiki að ég myndi sökkva eins og steinn og deyja bara.“ Fjórði kosturinn fyrir Ástu var síðan að halda áfram að lifa því sem hún segir „þessu leiðinlega lífi“. Hún vildi ekki gera foreldrum sínum þetta því hún segir að þau hefðu aldrei skilið það. Þannig fór hún alla leið til Englands með skipinu. í enskri höfn kom í Ijós að Hafskip var gjaldþrota. Myndlistarkonan hafði feng- ið köllun sína eða hvað sem á að kalla það og hún hélt til ís- lands með myndirnar af haf- inu, sýndi þær við vígslu Hótel Selfoss og þar leit hún mynd- irnar allt öðrum augum, trúði varla sjálf að hún hefði málað þær. „Mér fannst þær ótrúlega fallegar og tímdi varla að selja þær þannig að ég verðlagði þær upp úr öllu valdi. Þrátt fyrir það vildi maður einn kaupa þær allar á eitt hundrað þús- und krónur, stykkið. Hann greiddi þá fyrstu út í hönd og fór með hana en einum eða tveimur mánuðum síðar var hann dáinn," segir Ásta sem lengi vel átti erfitt með að tala um þessa röð tilviljana; mis- heppnað sjálfsmorð, köllun, fyrstu málverkin, gjaldþrot skipafélags sem bauð henni með sér til að mála hafið og lát fyrsta viðskiptavinarins sem Frh. á bls. 44 2. TBL. 1992 VIKAN 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.