Vikan - 23.01.1992, Qupperneq 41
eöa annan ósóma ef okkur finnst viö ekki líkleg
til aö njóta ástar þess sem við þráum og erum
kannski orðin örvæntingarfull um aö hafi ekki
skilning á hversu rosalega girnileg viö annars
erum.
AFBRÝÐI OG ANNAR
KJALLARAGANGUR
Þegar viö síðan eldumst ögn og kemur að því
aö viö teljum hyggilegt að stofna til sambúöar
gengur oft betur aö láta hlutina gerast nánast í
hvelli. Viö teljum okkur fær í allt og njótum
þess aö vera ung og ástfangin. Vissulega get-
um við tekið út alls kyns tilfinningar í þessu
ástandi og ekki allar sérstaklega höfðinglegar
og þaöan af síöur stórmannlegar því stutt er í
afbrýöi og annan úrvalskjallaragang sem virki-
lega getur veriö höfuðverkur út af fyrir sig.
Á þessum árum koma oftast börnin og íbúö-
arkaupin á sama tíma og myndast getur basl
og annað álika vesen. Þaö getur reynt veru-
lega á ástina og raunverulegar tilfinningar.
Þarna getur mikiö breyst því frá því aö hafa
gengið á bleiku ástarskýi í töluveröan tíma og
getur veriö ansi hart aö þurfa að taka furðuleg-
ustu framkomu mótpólsins sem alls ekki virðist
standa í neinu sambandi viö eld þann og hlýju
sem ástinni óneitanlega fylgdi, á fyrstu stigum
hennar að minnsta kosti.
Viö uppgötvum aö í blindu ástareldsins tók-
um við ekki eftir hvaö Jói er ömurlega morg-
unfúll og Dísa hryllilega Ijót á morgnana, fyrir
utan hvaö hún er átakanlega mikill nöldrari.
Eitt og annað getur á næstu árum verið full-
komlega óþolandi eins og til dæmis nískan í
Jóa. Margur hefur nú byggt hús og á sama
tíma ekki neitað konunni sinni um Spánarferö,
nýtt sófasett eða jafnvel gott jóladress. Það er
óhætt aö segja að flest getur orðið rifrildis- og
ágreiningsmál. Líklega dettur nánast allt byrjun-
ardekur upp fyrir þegar við erum orðin nokkuö
örugg um að erfitt sé aö losna viö okkur með
góöu móti vegna þess aö börn og bú þurfa á
okkur að halda, jafnvel þó fúl séum og niður-
brjótandi.
GRÁI FIÐRINGURINN OG
LAMBAKJÖTIÐ
Vissulega veröur aö viöurkennast aö til eru
ástarsambönd sem alls ekki taka á sig svona
hallærislegar myndir heldur veröi ástin þvert á
móti meö vaxandi þroska og auknum skilningi
á manngildi mun heitari og elskulegri en á
árum áður og varla fari hnífurinn á milli okkar.
Þegar viö aftur á móti förum aö finna aö þaö
tekur aö halla fremur hratt undan fæti og svo-
kallaður grár fiðringur fer að gera vart viö sig
getur eitt og annaö furöulegt komið upp á, jafn-
vel í ágætustu samböndum. Strákarnir fara allt
í einu að klippa sig öðruvísi til aö fela hárlosið
og hugsanlega skallamyndun. Þeir verða nán-
ast daglegir gestir í hinum ýmsu heilsurækt-
armiöstöövum og ganga með sólgleraugu svo
sjáist ekki aö þeir eru meö augun límd á ungu
gellunum sem veröa á vegi þeirra. Óttinn við
aö karlmennskan sé á hröðu undanhaldi verð-
ur yfirþyrmandi og veldur náttúrlega feikilegum
áhuga á nýju lambakjöti. Ef þaö er á sveimi
einhvers staðar í grenndinni viö þessar elskur
finnst þeim þeir vera eins og sextán ára aftur
og haga sér í samræmi viö það, þó vissulega
megi deila um þann árangur sem erfiðinu ó-
neitanlega fylgir.
Viö stelpurnar veröum aftur á móti mjög viö-
kvæmar fyrir því aö hrukkur fara að myndast,
mittið aö stækka, gráum hárum aö fjölga og allt
í einu sjáum við hvaö sonur hennar Stínu í
næsta húsi er rosalega niðurmjór og fullkom-
inn að ofan, næstum eins og Tarsan. Við get-
um lent í erfiöleikum með eitt og annað, einmitt
þegar hann á leið framhjá og kemst ekki hjá að
hjálpa okkur. Við fáum nefnilega furðu lík
hegðunarvandamál og strákarnir og viö verö-
um ekki síður lagnar viö aö sjá út fjallalömbin
og augljósa hreyfigetu þeirra.
FRAMHJÁHALD OG ÞRÁHYGGJA
Á þessum umdeildu árum viröist framhjáhald
og smáskot verulega fyrirferðarmikil hvaö sem
hver segir því alltaf er passað aö ekkert komist
upp. Raunveruleg ást virðist hverfa fyrir alls
kyns hégóma og þörfin fyrir ungdóm verður
óþolandi og hallærisleg. Vissulega vitum viö
og gerum okkur öll grein fyrir að fer hann dvín-
andi, þó ykkur dreymi dagdrauma um annað.
Ef við höfum haft einhvers konar þráhyggju til-
hneigingu má með sanni segja að hún fái í
Frh. á bls. 44
2. TBL. 1992 VIKAN 41