Vikan


Vikan - 23.01.1992, Side 43

Vikan - 23.01.1992, Side 43
hvítkölkuð mannvirki með hvolfþaki og moldargólfi. Þar leikur ferskt loft um sali og hæfilegt hitastig ríkir þar allan ársins hring. Það vín sem best er fallið til sérríframleiðslunnar á rætur sínar að rekja til þrúg- anna sem vaxa í kalkbornum jarðveginum i hliðunum norð- ur af Jerez. Úr þrúgum þeim, sem sprottnar eru úr sand- eða leirbornum jaröveginum annars staðar á svæðinu, er aðeins unnt að framleiða ann- ars flokks vín, sem síðan hentar vel til blöndunar. Vínið er látið gerjast yfir vet- urinn. Fljótlega kemur að þvi að gerjunin er stöðvuð á þann hátt að hæfilegt magn af brandí er sett saman við vínið. Þegar gaumgæfilega hefur verið fylgst með ferlinu i hverri tunnu í ár eða svo er aftur bætt svolitlu magni brandís út í eftir þörfum. Loks er miðinum hellt yfir í hreinar tunnur og kallast nú ungt sérrí. Lokastig sérrígerðarinnar verður þegar sætu víni er bætt út í, mismun- andi miklu - allt eftir því hver lokaútkoman á að verða. Olaroso: Það er sætt og gullið á lit, á ensku auðkennt sem Cream. Gjarnan drukkið með desertum eða rétt á und- an eða eftir kaffinu. Olaroso er borið fram vel kælt ef þaö er drukkið sem lystauki en við herbergishita að öðrum kosti. Amontillado: Milliþurrt, gott með súpunni eða við tækifæri þegar stundin er hátíðlegri en svo að við hæfi þyki aö drekka kaffi og ekki orðið nógu fram- orðið fyrir hanastél. Fino: Mjög þurrt og Ijóst á litinn og snauðast af vínanda. Það geymist síst eftir að flask- an hefur verið opnuð. Það er borið fram vel kælt og hentar vel sem lystauki á undan góöri máltíð, einnig með skelfiski og súpum. Portvín Portvínið kemur frá Portúgal eins og nafnið bendir til. Aðal- vínræktarhéraðið hefst vestan við Regua, um 40 kílómetra upp með Douro ánni í áttina frá Oporto og nær langleiðina að spænsku landamærunum. Sums staðar er ennþá not- uð hin gamla og hefðbundna aðferð við að pressa vínþrúg- urnar. Þeim er þá komið fyrir í stórum, hringlaga og opnum steinkerjum. Aðferðin er fólgin í því að hópur berfættra karla treður á vínþrúgunum klukku- stundum saman. Til siðs er að berja jafnvel trumbur og slá þannig taktinn sem karlarnir „dansa" eftir til að gera sér ara, eða Tawny, sem er gul- brúnt að lit og þyngra. Ruby: Það er ódýrast hinna þriggja flokka. Um er að ræða blöndu ungs víns, sem legið hefur í ámum í þrjú til fimm ár áður en það var sett á flöskur. Tawny: Það er eldra en Ruby og þess vegna dýrara. Hér er einnig um að ræða blöndu vina, sem þroskast hefur í ámunum þar til það hefur tekið þann gulbrúna lit sem sóst er eftir. Aldurinn get- ur verið frá sjö árum og upp í þrjátíu. Vintage: Vín úr ákveðinni uppskeru. Þaö er sett á flöskur tveggja til þriggja ára gamalt. Þegar uppskera eins árs er tal- in lofa sérstaklega góðu þá er það vín tekið frá og haft sér, en ekki notað til blöndunar, heldur selt að lokum sem Vint- age þar sem uppskeruárið er tiltekið. Mælt er með því að innihaldi flöskunnar sé hellt yfir í karöflu áður en portvínið er boriö fram og geymt í henni. Hið sama gildir um sérrí. □ hina einhæfu vinnu skemmti- legri. Þessi aöferð er nú ein- ungis viðhöfð þar sem fram- leiðslan er lítil. Allir fram- leiðendur sem einhvers mega sín hafa tekið stórvirkari bún- að í þjónustu sína þar sem af- köstin eru margfalt meiri. Á meðan gerjunin fer fram er sykurinnihald mjaðarins mælt með reglulegu millibili. Þegar það er orðið nægilegt er mjöðurinn látinn renna í önnur ker, þar sem fyrir er hæfilegt magn af sterkum brandí, sem kemur síðan í veg fyrir frekari gerjun og úr verður sætt vín. Hlutföll brandís og mjaðar eru um það bil einn á móti fjórum og hálfum. Allt portvín er látið liggja í að minnsta kosti tvö ár í trétunn- um. Annaðhvort er því þá hellt yfir á flöskur, þar sem það nær frekari þroska, eða látið liggja áfram í ámunum og þroskast þar. Fyrri hátturinn er hafður á ef um er að ræða vín , sem merkt er ákveðnum árgangi og kallast þá Vintage. Þegar upp- skeruárið er ekki tilgreint er portvíninu skipt í tvo flokka eft- ir því hversu mikinn lit það hef- ur fengið úr viðnum í ámunum, og er þá merkt sem Ruby, og er þá rúbínrautt á litinn og létt- Glösin og karaflan eru frá verslun- inni Tékk- kristal. 2, TBL. 1992 VIKAN 43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.