Vikan - 05.03.1992, Síða 7
Halldór í Alþingishúsinu, sem hefur veriö vinnustaöur hans síðan hann var 26 ára gamall.
það, að hann hefði engan áhuga á áframhald-
andi samstarfi við Framsóknarflokk og Alþýðu-
bandalag - og satt best aö segja hef ég það á
tilfinningunni að formaður Alþýðuflokksins vilji
ekki ríða sama hesti mjög lengi. Hann er fyrir
það að skipta um hesta. Ég hafði alveg sömu
tilfinningu eftir samtöl við Jón Sigurðsson.
Hann hafði enga trú á samstarfi við Alþýðu-
bandalagið og reyndar ekki okkur heldur. Þess
vegna er ég þeirrar skoöunar, að þeir hafi báðir
verið búnir að ákveða þetta fyrir kosningar. Ég
gerði mér hins vegar ekki grein fyrir því fyrr en
að kosningum loknum.
- Hvernig líst þér á stjórnarandstöðu án fjöl-
miðla, með aðeins eitt tiltölulega lítið útbreitt
dagblað á bak við sig?
Mér líst nú ekki á lýðræðið almennt með
þeim hætti. Morgunblaðið er ekkert annaö en
flokksmálgagn Sjálfstæðisflokksins. Ef blöö
eins og Tíminn, Alþýðublaðið og Þjóðviljinn
hverfa af sjónarsviöinu, sem þegar hefur gerst
með Þjóðviljann, þá heyrast ekki lengur sjón-
armið þeirra. Þessi stjórnmálaöfl verða þá ekki
lengur með í þjóðfélagsumræðunni, eins og
áður. Þar af leiðandi verður öll umræða miklu
einlitari. Ég tel það því beinlínis hættulegt fyrir
lýðræöið, ef öll þessi blöð hætta að koma út.
Það er mikill áhugi á því að reyna að stofna nýtt
blað, sem er góöur grundvöllur fyrir. Það tekst,
ef einhverjir aðilar eru tilbúnir að leggja fram
fjármagn I það. Við erum reiðubúnir til sam-
starfs við hverja þá sem eru þeirrar skoðunar
að það vanti betra jafnvægi í þjóðfélagsum-
ræðuna. Ég er vongóður um að þetta muni tak-
ast að lokum.
DAVÍÐ ÞOLIR ILLA GAGNRÝNI
- Hvað finnst þér um gagnrýni stjórnarliða á
fréttastofu útvarps?
Mér finnst hún afar ómerkileg. Hún er að
mínu mati besta fréttastofan og hefur meiri
möguleika en t.d. sjónvarpsfréttastofurnar.
Fréttastofa útvarps hefur marga ágæta starfs-
menn og þeir hafa ekkert hikað við það aö setja
fram ýmsa gagnrýni, sem fram hefur komið,
bæði á ríkisstjórn og stjórnarandstöðu. Þaö
virðist hinsvegar vera svo með Davíð Oddsson
forsætisráðherra, að hann þoli illa gagnrýni og
vilji ekki heyra hana. Hann kemur þannig fram,
aö hann virðist ávallt telja sig vera að gera rétt
og það sé yfir gagnrýni hafið. Og hann bregst
illa við þegar svo er gert og vill gjarnan skrúfa
fyrir gagnrýni. Ég veit ekki hvort honum tekst
að skrúfa fyrir fréttastofu útvarps, en það er
greinilegt að gerðar eru tilraunir til að þagga
niður I henni og ætlast er til þess aö hún verði
málpípa ríkisstjórnarinnar. En það er skylda
Ríkisútvarpsins, samkvæmt lögum, að koma á
framfæri eðlilegum skoðanaskiptum í landinu.
Hinsvegar finnst mér, að þær hótanir sem í
þessum orðum ráðherranna felast, hafi verið
teknar of alvarlega af fréttastofunni. Mér finnst
að fréttamennirnir hafi að nokkru leyti tekið tillit
til þessara ómaklegu orða, sem sýnir kannski
að ef menn eru nógu ósvífnir, þá verður þeim
eitthvað ágengt.
FORMENNSKAN EKKI
EFTIRSÓKNARVERÐ
- Þær raddir hafa heyrst, að löngu sé orðið
tímabært að þú takir við formennsku í Fram-
sóknarflokknum. Geldur þú þess á einhvern
hátt að hafa veriö svo lengi „krónprinsinn" i
flokknum?
Það er nú enginn krónprins i Framsóknar-
flokknum. Ég hef verið varaformaðurflokksins i
meira en áratug og það er vissulega langur tími
í því starfi. Ég var 26 ára, þegar ég var fyrst
5.TBL.1992 VIKAN 7